Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 26

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 26
cdh ELDS Eldur og eðli hans hefur verið mönnum hulin ráðgáta frá árdögum. Margar tilgátur hafa verið birtar um eðli hans og rnerkilegar rannsóknir gerðar til þess að læra meira um eld og hvernig 'honum verður stjórnað. Ein tilgátan um eldinn sem þótt hefur nokkuð áreiðanleg er eldþríhyrningurinn þ. e. a. s. hiti, eldsneyti og súrefni. Enginn eldur getur logað nema þetta þrennt sé til staðar, sé eitt tekið í burtu slokknar eldurinn. I andrúmsloftinu er meðal annara efna 21% nefnda að hafa meiri áhrif á lausn brunatækni- legra vandamála á sjúkráhúsum. Taka má í þessu tilviki mið af iðnaðinum. Hvort hægt er að koma í veg fyrir að sjúk- lingar reyki í rúmunum, er spurning sem örð- ugt er að svara, en hana mætti íhuga í fullri alvöru frá læknisfræðilegu og sálfræðilegu sjónarmiði. Mannslíf hafa farið í súginn við slökkvun á brennandi plastefnum. Hér er brýn þörf á upp- lýsingarmiðlun bæði hvað snertir geymslu og notkun plastsins og eldvarnartækni. Nauðsynlegt er, að samvinna hefjist á milli þeirra aðila sem málið snertir, um stöðlun og framleiðslueftirlit með það fyrir augum, að bæta eldþéttieiginleika plastsins og gefa upplýsingar um rétta notkun plastsins. Plastiðnaðurinn hef- ur tekið frumkvæðið í þessu efni. Augu okkar hafa einnig opnast fyrir því, að við höfum vafalaust vanmetið stærð aukatjóns- ins, sem verður við plastbruna, einkum hættuna á eyðingu málmhluta og steypu. Þýtt úr támaritinu BRANDFÖRSVAR blaði sænskra slökkviliðsmanna. Eðvald T. Jónsson. súrefni. Eldurinn þarf lágmark 15% súrefni til að geta þróast, með öðrum orðum falli súrefnið niður fyrir 15% slokknar eldurinn þótt nægur hiti og eldsneyti sé til staðar. Eldi má lýsa sem hraðri efnabreytingu eða sýringu, (sýring er þegar fast efni eða fljótandi gufar upp eða sameinast lofti) samfara ljósi og hita. Þekking á þeim aðstæðum sem ráða því hvort sýring verður hröð og eldur kviknar er mjög veigamikil til þess að geta skilið grund- vallaratriði brunavarna. Til að þessi efnabreyting eða sýring geti átt sér stað þarf brennanleg efni og loft að vera til staðar. Samsetning efna er mjög mismunandi, en brennanleg efni hafa það öll sameiginlegt að þau innihalda sameindir þ. e. Carbon (kolefni) og Hydrogen (vetni). Sýring efna á sér stöðugt stað svo framanlega sem loft er til staðar, en við venjulegt hitastig er hún svo hæg að hennar verður ekki vart, t. d. gulnun á pappír og þegar járn ryðgar. En við hærra 'hitastig t. d. 'þegar logandi eldi er haldið að pappír eða tré, getur sýringin orðið svo hröð, að nægjanlegur hiti myndast svo keðjuverkun kemst af stað og bruninn heldur áfram eftir að eldspýtan hefur verið tekin frá. Við bruna flesíra venjulegra efna verður hinn raunverulegi bruni ekki fyrr en sameindir efn- isins hafa lcsnað í sundur, gufað upp og blan- dast lofti. Loginn sem sést er bruni þeirrar gas- blöndu sem myndast hefur við uppgufunina. KARL TAYLOR. Eignist hlut í flugfélagi. ARNARFLUG HF. Sími 82122 24 S LO KKVILIÐSMAÐU Rl N N

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.