Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 24
Bruninn
í Sí Eriks sjúkrahúsinu
í Siokkhólmi
Bruninn í St. Eriks sjúkrahúsinu í Stokkhólmi
'þarfnast engrar sérstakrar skýringar við. Hann
var í sjálfu sér venjulegur bruni, sem segir okk-
ur flest það sem við vitum um bruna. Afleið-
ingarnar hefðu orðið aðrar ef notuð hefði verið
sú þekking sem fæst með því að kynna sér
'byggingar, herbergjaskipan þeirra, útgöngulsið-
ir o. fl.
I eftirfarandi grein ásamt myndum af brun-
anum í St. Eriks sjúkrahúsinu, verður reynt
að svara þeim spurningum, sem leita á eftir
slíka bruna.
Stórbrunarnir 1975 hafa vakið ýmsar spurn-
ingar, sem lengi hafa brunnið á vörum manna.
Þessar spurningar varða plastefni og bruna,
upplýsingar fyrir starfsfólk, byggingarlöggjöf-
ina, óútreiknanleik stórbrunanna o. fl.
Við skulum nú í'huga nokkrar þessara spurn-
inga, sem fram hafa verið bornar í sam'bandi
við stórbrunana í janúar—mars 1975.
Við getum strax slegið því föstu, að hinir
stærstu þessara bruna höfðu allir einn sameig-
inlegan nefnara, bruna í plasti. Hér er um að
ræða 'brunana í offsetprentsmiðjunni í Solna,
aðalverkstæði og birgðageymslu sporvagnanna
í Stokkhólmi og St. Eriks sjúkrahúsinu. Tjón-
ið, sem varð í þessum brunum, er metið á rúm-
lega 50 milljónir sænskra króna.
'Eins og alltaf verður, koma fram ýktar
kröfur og spurningar úr ýmsum áttum: Á að
banna notkun ákvsðinna plastefna? Er hættu-
legt að vera sjúklingur á sænskum sjúkrahús-
um? Er ekki hægt að stöðva reykingar í rúm-
um? Er byggingarlöggjöfin ófullnægjandi?
Án þess að rökstyðja það nánar, getum við
>
T.v. stigagangur. Vœngjahurðir með hrógleri. Einn dó
í reykherberginu, annar rétt fyrir utan.
Gangurinn séður frá sjónvarpsherberginu. Brunaher-
bergið til hœgri.
svarað þessum spurningum neitandi. Við skul-
um heldur ræða hér um fyrirbyggjandi aðgerðir,
sem vel mætti taka til nánari athugunar. Við
skulum byrja á sjúkrahúsunum.
Við eigum að sjálfsögðu að draga jákvæðan
lærdóm af tjóninu með því fyrst og fremst að
gera starfsfólki og sjúklingum það ljóst, að
brunahættan er fyrir hendi, og einnig hvers-
konar aðstæður hún getur skapað og hvernig
draga má úr þessari hættu.
Brýn þörf er fyrir skjótvirka brunaboða á
sjúkrahúsum. Aðrar aðgerðir koma einnig til
greina, svo sem vel hannaðar undankomuleiðir
og heppilegri deildaskipting. Dýnur úr óverk-
uðu mjúku froðuplasti eru oft teknar fram yfir
dýrari dýnur, sem brenna illa. Til þess að
breyting verði á þessu, er þörf á stað'betri neyt-
endaupplýsingum, ef til vill í formi stöðlunar
eða framleiðslueftirlits. Auk þess væri æski-
legt, að starfsfólkið fengi með tilstyrk sérstakra
J
22
SLOKKVILIÐSMAÐURINN