Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 30

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Blaðsíða 30
útstreymið. Ef það tekst ekki, leyfið innihaldi hylkisins að brenna upp og ef unnt er, flytjið hylkið á óhultan stað. Dæmigerðir acetylena eldar verða við log- suðustútinn, kranann eða slönguna, stjórnkran- ann og stjórnlokurnar. Eldur hefur einnig kviknað inni í hylkinu. Ef eldur logar í kring- um kranann, stjórnkranann eða lausa öryggis- loku, þá er venjulega hægt að slökkva hann með hanska, blautri tusku eða einhverju þess háttar. Þegar öryggisloka opnast heyrist hvæsandi hljóð og er styrkleiki þess í réttu hlutfalli við þrýstinginn í hylkinu. Loginn verður 10—15 feta langur og vegna þrýstingsins brennur hann 1—2 fet frá hylkinu. Loginn á að minnka á um það bil 20 mín. í 3—4 fet. Þegar gasið heldur áfram að brenna fær það á sig gulleytan blæ. Þetta stafar af acetone innihaldi 'hins brennandi gass. Eldur sem logar við öryggisloka er venjulega ekki hættumerki. Hann getur bent til að of mikí- um þrýstingi sé létt á hylkinu, sem að öðrum kosti gæti orsakað sprengingu í honum. Á að slökkva eldinn eða láta hann brenna? Hér koma ýmsir þættir til greina, stærð svæð- isins sem hið brennandi hylki er á, magn brenn- anlegs efni á svæðinu, hvort vatnsúðunarkerfi er til staðar eða ekki og hvaða hætta er fyrir hendi ef eldinum er leyft að brenna. Einnig ber að hugleiða, ef eldurinn er slökktur, hvort gas- ið getur myndað sprengiblöndu áður en hægt er að ræsta það út úr byggingunni. Eldur inui i hylki. Verktaki einn hafði fyllt á nokkur acetylene hylki og hálfri stundu síðar varð sprenging í einu þeirra. I skýrslu um þennan atburð sagði: „Fyllingin inni í hylkinu var svo skemmd að hreint acetylene safnaðist saman í tómarúminu og sprakk undir miklum þrýstingi.11 I þessum eldi urðu 5 sprengingar á 10 mínútum. Hægt var að ráða niðurlögum eldsins á einum klukku- tíma. Sá sjaldgæfi atburður getur gerst að eldur nái að komast inn í hylkið, þar sem gasið klofn- ar í kolefni og vetni og myndar ósýnilegan eld og hvæsandi hljóð og veldur því að málningin brennur utan af hylkinu meðan eldurinn læsir sig í gegnum fyllingarefnið. Ef fyllingin er í góðu ásigkomulagi verður engin sprenging svo fremi að hylkinu sé haldið köldu .Sprautið vatnsúða á hylkið og dragið það langt frá bygg- ingunni. Festið úðastútana og leitið skjóls með- an innihald hylkisins brennur upp. Ef hið hvæsandi hljóð er mjög hávært og hylkið er kirsuberjarautt og tekið að bólgna að ofan, Isitið þá skjóls tafarlaust meðan þið sprautið á hylkið, þar sem sprenging kann að vera á næsta leiti. Eg vona einlæglega að þið þurfið aldrei að notfæra ykkur þessar upplýsingar, en ég ráð- legg ykkur að líta á acetylenahylkin og þjálfa vel slökkvilið ykkar. Ástvaldur Eiríksson. Skiljasi skipanir jpinar? Slökkviliðsstjóri gaf varaslökkviliðsstjóra sínum eftirfarandi fyrirmæli: „Annað kvöld kl. 20.00, verður haley’s hala- stjarnan sýnileg á þessu svæði, en slíkur atburð- ur verður aðeins einu sinni á 75 ára fresti. Eg mun halda stuttan fyrirlestur um þetta sjald- gæfa fyrirbæri fyrir alla þá, sem áhuga hafa á og eru þeir beðnir að safnast saman á æfingar- svæðinu við æfingarstöðina. Ef hann rignir, get- um við ekki séð neitt, svo að þið skuluð safna mönnunum saman í áheyrendasal æfingarstöðv- arinnar og ég mun sýna þeim kvikmynd um fyrirbærið.“ Varaslökkviliðsstjóri við yfirvarðstjóra: „Samkvæmt skipun slökkviliðsstjóra mun Ha- ley’s halastjarnan birtast yfir æfingarsvæðinu kl. 20.00 á morgun. Ef hann rignir, verður farið með alla, sem vilja koma, í kvikmyndahúsið, þar sem þetta sjaldgæfa fyriribæri mun eiga sér stað. Það gerist aðeins einu sinni á 75 árum.“ Yfirvarðstjóri við varðstjóra: „Samkvæmt 28 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.