Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Side 10
við Staðar'bruna. Þar var unnið við lokaða
raðdælingu, frumdæla í 350 m fjarlægð frá
brunastað, auk 40 m hæðarmunar á brunastað
og vatnstökustað, og þar ofaná kafófærð af
snjó. Það var að mínu áliti hæfni dælustjór-
anna, sem hér réði úrslitum. Ég held að ég fari
rétt með, að það sé vinur minn, Rúnar Bjarna-
son, slökkviliðsstjóri í Reykjavík, sem einhvers-
staðar skrifar, að betra sé að hafa fáa góða
menn, heldur en marga sæmilega í slökkviliði.
Það eru orð að sönnu, og við hér á Suðureyri
erum blessunarlegalega heppnir, því kjarni liðs-
ins er skipaður mjög hæfum og traustum mönn-
um.
Að lokinni nákvæmri athugun eftir brunann
á Stað, ritaði ég sveitarstjórninni bréf, þar sem
ég fór fram á sérstaka fjárveitingu til kaupa á
ýmsum búnaði handa slökkviliðinu. Sveitar-
stjórnin varð í einu og öllu við beiðni minni
og -er ég afar ánægður með jákvæðar og hvetj-
andi undirtektir sveitarstjórnarmanna hér á
nauðsyn þess, að efla og viðhalda svo sem kostur
er, brunavarnir hér við Súgandafjörð.
Eldvarnaeftirlit er einn traustasti póstur eld-
varna, og ber að leggja sérstaka rækt við það,
og ég tel nauðsynlegt að meira verði gert í því
að uppfræða almenning um nauðsyn góðrar
umgengni og umhirðu kynditækja húsa sinna.
Hreinlæti og snyrtimennska í kyndiklefum er
aðalsmerki þeirra, sem þar ráða húsum. Hér
á Suðureyri eru nú, eins og lög gera ráð fyrir,
öll hús skoðuð árlega, og sum oftar ef ástæða
er talin á. Víða er ástand og umhirða kyndi-
tækja hér með ágætum, en of víða er þetta
ekki nógu gott. Áfram verður haldið og er unn-
ið að úrbætum í þessum og öðrum málum sem
að gagni mega koma við brunavarnir hér og
öll samskipti eldvarnareftirlitsins við húseig-
endur hér eru góð og fólk vill hafa þessa hluti
í lagi, en gerir sér kannski ekki alltaf grein
fyrir því, að jafnvel örlítil olíusmitun, skapar
hættuástand, og stefnir öryggi þeirra og annara
í voða. Þessum hugsanlega voða ber okkur að
afstýra með traustu eftirliti og uppfræðslu.
Gott og vel þjálfað slökkvilið, búið góðum
tækjabúnaði og aðstöðu til geymslu og viðhalds
8
tækjabúnaðar, er svo sjálfsögð öryggisþjónusta
hverju byggðarlagi, að um það verður ekki
deilt. Eldsvoðar koma alltaf upp af og til, og
þá skiptir það meginmáli að manntjón verði
ekki, það væri hörmulegt ef heimfæra mætti
manntjón í eldsvoða upp á tækjaskort, eða ann-
an vanbúnað slökkviliðs. Andvaraleysi í þess-
um málum og öðrum, er lýtur að almanna-
vörnum, á því að vera óþekkt fyrirbrigði.
Síðan Brunamálastofnun ríkisins tók til starfa
árið 1970-, hafa orðið stórstígar framfarir í
brunavörnum hér á landi og að sama skapi
stórminnkandi brunatjón. Stofnunin hefur því,
að mínu viti, nú þegar sannað tilverurétt sinn,
enda hvert sæti þar skipað hæfu fólki undir
traustri stjórn brunamálastjóra, Bárðar Daní-
elssonar. Það þarf ekki að horfa langt um öxl,
til að sjá framfarirnar og mér hefur oft verið
hugsað til þeirra ágætu manna, sem á undan
mér hafa gegnt embætti slökkviliðsstjóra hér
á Suðureyri ,nánast að segja tækjalausir, en bó
með þá ófrávíkjanlegu og þungu skyldu á herð-
um, að vernda og bjarga lífi og eignum manna
hér í byggðarlaginu. Þeirra aðstaða var erfið
og þannig mun hafa verið víðast hvar á land-
inu allt fram að þeirri stundu að hjól bruna-
málastofnunar ríkisins fóru að snúast og fyrir
alla muni þá höldum þeim gangandi.
Slökkviliðsmaðurinn, blað L.S.S. er vandað
blað og þarf að vera það. Margir vel hæfir menn
hafa frá upphafi útkomu þess, skrifað góðar og
fræðandi greinar í blaðið og verður vonandi
áframhald þar á. Eg tel þó, að það gæfi blaðinu
aukið gildi, ef slökkviliðsmenn skrifuðu annað
slagið lifandi frásagnir af störfum sínum við
slökkvistörf og annað er lýtur að brunavörnum.
Ekki sakar þó menn láti fljóta þar með almenn-
ar fréttir úr heimabyggðum sínum, þó að það
varði ekki brunamál. Það ber að stefna að því
að 'blaðið fari inn á hvert heimili í landinu.
Til að svo megi verða, þá þurfa slökkviliðsmenn
almennt að styðja við bakið á blaðstjórn, með
smá greinarkornum, helst svo að blaðstjórn
hafi ávalt úr nægu efni að velja í hvert blað.
Til að slá botninn í þennan darraðadans sund-
urlausra punkta, þá nokkur orð um samgöngu-
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN