Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Síða 14

Slökkviliðsmaðurinn - 01.05.1976, Síða 14
Tjón vegna olíu á og í jörðu M'sðferð olíuefna eykst stöðugt og hefur ætíð nokkra á'hættu í för með sér. Fyrr eða síðar verður tjón vegna leka, efnisgalla o. fl. o. fl. Við flytjum inn árlega milljónir kúpikmetra af oliu. Aðeins fáein promille þessarar olíu valda tjóninu, en samt sem áður er hér um þús- undir kubikmetra að ræða. Aður fyrr kærðu menn sig kollótta um þótt nokkrir kúbikmetr- ar olíu rynnu út. En þsgar þetta byrjaði að valda umtalsverðu tjóni á verðmætum, þá varð að finna ráð til þess að hreinsa olíuna og safna henni saman. Nokkur hreinsunarfyrirtæki voru sett á laggirnar, sem með tímanum fengu góða þekkingu og reynslu á olíuhreinsun. Sérstakur útbúnaður fyrir olíuhreinsun leit dagsins ljós. Á síðustu árum hafa slökkviliðin dregist æ meira inn í baráttuna gegn olíutjóninu. Hafa slökkviliðsmenn nægilega þekkingu á þessum efnum? Vita þeir hvernig best má vinna að þeim? Vita þeir hvernig olían dreifist á jörð og í jarðveg og vatni. Fagbókmenntir hafa verið ritaðar um þessi málefni en erfitt er að fá heild- armynd með því að lesa þær. Þessvegna hefur samband sænskra slökkviliðsmanna reynt að gefa heildarsýn á vandamálinu í bókinni: Olía, tjón, hreinsun og einnig hefur verið gefinn út bæklingur, sem fjallar um olíu og hreinsun á henni, og er mjög fræðandi. Greinin hér á eftir á að gefa upplýsingar um hvernig tjón á olíu verður og hvernig má tak- marka það. Samkynja jarðvegur. Er olía rennur á jörð og niður í jarðveg, dreif- ist hún einkum vegna þyngdarafls og yfirborðs- spennu. Þessir kraftar eru háðir ýmsum þátt- um, svo sem gerð jarðvegsins, halla hans og vatnsinnihaldi, herslu hans og fleira. Einnig verður að taka með í reikninginn þyngd olí- unnar og hitastig og óhreinindi í olíunni. Þegar yfirborð jarðar er ‘hert á einhvern hátt, t. d. með asfalti, sprungulausri steypu og þessháttar, þá getur olían ekki sigið niður í jarðveginn. Teikningar sýna það sem gerist. 1. mynd: Qlian hefur lekið út og myndar dálít- inn poll á jörðinni en mestur hlutinn sígur of- an í jarðveginn, sem í þessu tilfelli er sam- kynja t. d. möl. Vegna þyngdarkraftsins fer olí- an niður á við. Um leið dreyfist hún og verður í laginu líkt og ,,pera“ vegna holrúma í jarðveg- inum. Á yfirborðinu virðist sem lítið tjón hafi orðið, en talsvert mikið magn olíu getur hafa runnið niður í jarðveginn og valdið miklu tjóni. Straumhraðinn. 2. mynd: Olían hefur sigið niður að grunn- vatninu. Yfirborð grunnvatnssins stöðvar hreyf- 12 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.