Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 12
Hin nýja stjórn L.S.S. f.v. Sigurbjörn Jónsson meðstj. Akranesi, Þorbjörn Sveinsson gjaldk.,
Hafnarfírði, Höskuldur Einarsson form. Reykjavík, Jónas Marteinsson ritari, Keflav.fl., Ágúst
Magnússon varaform., Selfossi, Ólafur Sigurðsson meðstj., Reykjav.fl. Á myndina vantar Jón
Ólaf Sigurðsson meðstj., ísafírði.
við hvetja lausráðna slökkviliðsmenn til að kynna
sér vel launatöflu þá er Landssamband slökkvi-
liðsmanna sendir út og birt er hér í blaðinu.
Atvinnumannaslökkviliðin þurfa að sameinast í
að koma launamálum sínum í lag og er t.d. alveg
ófært að slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli sé
tveimur launaflokkum neðar en hin atvinnuliðin
og mun stjórn L.S.S. vinna að því að fá þetta
lagfært. Þá lýsti formaður Starfsmannafélags
slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli Karl
Taylor að hans félagar væru einu atvinnuslökkvi-
liðsmennirnir í landinu er ekki nytu neinna eftir-
launa og fór fram á aðstoð L.S.S. í þeirri baráttu
hans félaga.
Þá hefur stjórn L.S.S. birt hér í blaðinu
hugmyndir um fræðslusjóð í hverju aðildarfélagi
fyrir sig og viljum við hvetja stjórnir félaganna að
kynna sér þessi mál gaumgæfilega.
Eins ogáður mun stjórn L.S.S. hafa fasta fund-
artíma og hefur fyrsti miðvikudagur í hverjum
mánuði verið ákveðinn og verður þá stjórn L.S.S.
á skrifstofunni frá kl. 17:00 og framúr en síðan eru
fundir eftir þörfum, en félagar geta alltaf hringt
heim til stjórnarmanna ef þeir þurfa að koma
upplýsingum á framfæri eða fá upplýsingar.
Eitt er það atriði sem vert er að hafa í huga
þegar verið er að gagnrýna stjórn L.S.S. fyrir
slæleg störf en það er að öll mál slökkviliðsmanna
eru mjög seinunnin og er það vafalaust vegna þess
að við erum ekki svokallaður þrýstihópur og annað
ekki kannski síður að þeir menn sem veljast í
stjórnir L.S.S. fá ekki launað fyrir sín störf og
þurfa jafnvel að greiða ferðakostnað s jálfir á fundi
hjá stjórn L.S.S. þannig að þessi störf eru öll
unnin utan venjulegs vinnutíma.
Það hlýtur að verða framtíðin að ráðinn verði
maður í hlutastarf til að sjá um rekstur blaðsins og
sambandsins og mætti bæði stjórn L.S.S. og
aðildarfélaganna hugleiða framtiðina hjá Lands-
sambandi slökkviliðsmanna.
Jónas Marteinssor
ritari
10 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN