Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 14

Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Qupperneq 14
Launatafla lausráðinna slökkviliðs- manna og ársgreiðslur slökkviliðsstjóra 1. desember 1981 1. -1 Sveitarfélög Ársgreiðsla Varasl. með íbúa allt að Slökkviliðsstjórar stj. 300 3.466.00 2.598.00 400 3.640.00 2.751.00 500 4.318.00 3.316.00 600 4.910.00 3.683.00 700 5.401.00 4.047.00 800 5.893.00 4.418.00 900 6.388.00 4.791.00 1000 6.873.00 5.155.00 1500 8.840.00 6.629.00 2000 11.784.00 8.840.00 2500 og þar yfir er sérsamningur. 1. -2 Hin fasta ársgreiðsla er greiðsla fyrir að annast skipulagningu slökkviliðsins, annast útköll, sitja nefndarfundi, annast skýrslugerð slökkviliðsins, mæta í réttarhöldum vegna bruna og vegna notk- unar á eigin síma vegna slökkviliðsins. Slökkvi- liðsstjórar fá auk þess sömu greiðslur og slökkvi- liðsmenn fyrir útköll og æfingar. 1. -3 Greiðsla til slökkviliðsmanna vegna útkalla og æfinga skal vera yfirvinnukaup samkvæmt 11. launaflokki 3. þrepi B.S.R.B. miðað við 1. október 1981. I þessu kaupi er ekki innifalin 12 mínútna greiðsla fyrir kaffi og matartíma er greiðist á hverja unna klukkustund í yfírvinnu, eins er orlofsfé ekki inni í þessari greiðslu, en orlof er í dag 9,7% og ber að greiða það á allt kaup samkvæmt lögum um orlof. Fyrir hvert útkall skal greiða 5 klst. og kemur sú greiðsla fyrir 3 fyrstu klst., eftir það greiðist fyrir hverja byrjaða klst. 1. -4 Þar sem ráðinn er 2. varamaður slökkvliðsstjóra skal greiða honum sem svarar í föst laun 50% af launum slökkviliðsstjóra. 1. -5 Þeir er gegna bakvöktum um helgar og eða á öðrum tíma skulu fá greidd laun og ber hverjum formanni slökkviliðsmannafélags að ganga frá því, í byrjun hvers árs. 1. -6 Hafi einhverjir slökkviliðsmenn betri samninga haldast þeir. 2. 2. -1 Hver slökkviliðsmaður skal tryggður fyrir jafn háa upphæð og hann er tryggður fyrir í sínu aðalstarfi en þó aldrei minna en í samningi slökkviliðsmanna í Reykjavík. 2. -2 Verði slökkviliðsmaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum fatnaði og munum við vinnu, t.d. úri, gleraugum o.s.f., skal það bætt samkv. mati. Slíkt tjón verður aðeins bætt ef það verður vegna óhapps á meðan útkall eða æfing stendur yfir. 2. -3 Slökkviliðsmönnum skal séð fyrir hlífðar- og öryggisfatnaði við störf sín, t.d. hjálmi, stígvél- um, öruggri yfirhöfn og vinnuvettlingum. Þessi fatnað skal endurnýja eftir þörfum. 2. -4 Greiða skal fyrir notkun á einkabifreiðum við að koma sér á eldstað sé vegalengdin yfir 5 km. 12 SLOKKVILIÐSMAÐURINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.