Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 16
Reglugerð um öryggi og
öryggisbúnað slökkviliðsmanna
Hér á eftir koma drög að reglugerð um öryggi
og öryggisbúnað slökkviliðsmanna er gerð var af
Höskuldi Einarssyni form. L.S.S. og Guðmundi
Magnússyni verkfræðingi ásamt umsögn stjórnar
L.S.S. og öryggis og heilbrigðisnefndar 9. þings
sambandsins en þingið fól stjórn L.S.S. að
samræma umsögnina í ljósi þeirra umræðna er
urðu um drögin á þinginu.
(Drög)
1. Reykköfunartæki og rey kköfun á veg-
um slökkviliða sveitarfélaga.
1.1. Öll reykköfunartæki slökkviliða sveitar-
félaga skulu vera viðurkennd af Bruna-
málastofnun ríkisins.
Stofnunin skal skrásetja öll slík tæki og sjá
til þess, að spjaldskrá yfír þau sé sífellt í
góðu lagi.
1.2. í samræmi við reglugerð um brunavarnir
og brunamál nr. 269/1978 gr. 7.5.6., er
sala reykköfunartækja háð samþykki
Brunamálastofnunar ríkisins.
Seljanda (innflytjanda) slíkra tækja og til-
heyrandi búnaðar er skylt að láta bruna-
málastofnuninni í té lýsingu á íslensku af
tækjunum, uppbyggingu þeirra og
notkun, áður en til sölu kemur.
1.3. Brunamálastofnun ríkisins skal tryggja, að
öll slökkvilið á landinu geti látið prófa
reykköfunartæki sín reglulega. í því skyni
skal stofnunin koma á fót eða vera í samn-
ingi við prófunarstöð með fullnægjandi 1.7.
prófunarbúnaði fyrir þau reykköfunar-
tæki, sem eru viðurkennd og í notkun hjá
slökkviliðum sveitarfélaga skv. gr. 1.1.
14 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
Stöðin skal annast viðgerðir slíkra tækja
eftir því sem henta þykir og skal leitast við
að hún hafi alltaf tiltæka nauðsynlegustu
varahluti í þau. Einnig skal stöðin búin
tækjum til að þrýstiprófa loftkúta.
1.4. Öll reykköfunartæki í landinu skulu koma
til skoðunar minnst á tveggja ára fresti.
Loftkúta skal þrýstiprófa minnst á fímm
ára fresti. Bilað tæki eða bilaður maski skal
sendur til skoðunar og viðgerðar strax og
bilunar verður vart, án viðgerðartilrauna
utan prófunarstöðvar. Brunamálastofnun
ríkisins eða prófunarstöðinni i hennar
umboði skal heimilt að kalla inn einstök
tæki til eftirlits og/eða prófunar hvenær
sem þurfa þykir.
Úrskurður prófunarstöðvarinnar um
hvort reykköfunartæki sé í nothæfu
ástandi og/eða hæft til viðgerðar og
notkunar skal vera bindandi.
1.5. Spjaldskrá yfir öll reykköfunartæki
slökkviliða sveitarfélaga skal vera í vörslu
prófunarstöðvarinnar. Hvert slíkt tæki
skal skráð með sérstöku númeri í spjald-
skránni.
Númer þetta fylgi alla lífdaga þess.
1.6. Þegar hætt er notkun reykköfunartækja af
einhverjum orsökum, skulu þau send
Brunamálastofnun ríkisins eða prófunar-
stöðinni, til notkunar á æfingum og til
skipta vegna tækja sem eru í prófun.
Eigendur reykköfunartækja (slökkvilið
o.fl.) greiða fyrir prófun og viðhald tækja
skv. gjaldskrá prófunarstöðvar, er
Brunamálastofnun ríkisins samþykkir.