Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 17

Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 17
1-8. Reykköfunartæki skal geyma á þurrum stað, hengd upp í lokuðum skáp. Áður en slökkviliðsmenn eru settir til starfa í reykköfun skulu þeir gangast undir lágmarksþjálfun sem er: 4-8 klst. bókleg kennsla (uppbygging tækja o.fl.) 16-20 klst. verklegar æfíngar undir stjórn kennara viðurkenndra af Brunamálastofn- un ríkisins. Brunamálastofnun ríkisins skal gangast fyrir námskeiðum í þessu skyni og séu að þeim loknum gefín út sérstök reykköfun- arskírteini að undangengnum hæfnispróf- um og læknisrannsóknum, skv. nánari reglum er stofnunin setur. 1-10. Brunamálastofnun ríkisins er heimilt án undangengis hæfnisprófs að gefa út reyk- köfunarskírteini til slökkviliðsmanna, sem sannanlega hafa hlotið fullnægjandi þjálf- un í reykköfun fyrir gildistöku reglugerð- ar þessarar, enda liggi fyrir í hverju tilviki meðmæli frá viðkomandi slökkviliðsstjóra og Landssambandi slökkviliðsmanna. Utgáfa skírteinis skv. þessari grein er þó aðeins heimil innan eins árs frá gildistöku reglugerðar þessarar. 1-11. Reykköfunarskírteini skal endurnýja á tveggja ára fresti og skal með umsókn um endurnýjun leggja fram fullnægjandi læknisvottorð og vottorð frá viðkomandi slökkviliðsstjóra um að æfingarskyldu sé fullnægt. Handhafí reykköfunarskírteinis sé ekki yngri en fullra 20 ára og ekki eldri en 45 ára. 1-12. Óheimilt er að setja til reykköfunarstarfa í slökkviliðum sveitarfélaga a$ra en handhafa slíkra skírteina, nema sérstök undanþága brunamálastjóra liggi fyrir hverju sinni. 1.13. Æfingar skulu haldnar með reykköfurum a.m.k. 20 klst. á ári undir stjórn kennara viðurkenndra af Brunamálastofnun ríkis- ins. Séu æfíngar þessar óháðar annarri æfingarskyldu slökkviliðanna. 1.14. Um framkvæmd reykköfunar á vegum slökkviliða sveitarfélaga skulu gilda eftir- farandi öryggisreglur: Ekki skulu fara færri en tveir reykkafarar saman inn í eld eða reyk. Skal a.m.k. einn úr reykkafarahóp búinn talstöð, og geti hann haft talstöðvarsamband við stjórn- endur slökkvihópsins. 2. Um hlífðarfatnað slökkviliðsmanna. 2.1. Sveitarfélög, sem hafa slökkvilið, skv. lögum nr. 55/1969 um brunavarnir og brunamál, skulu sjá slökkviliðsmönnum sínum fyrir hentugum hlífðarfatnaði til nota við slökkvistarf. Þar sem slökkvilið er að verulegum hluta myndað af mönnum sem að jafnaði stunda önnur störf, skal vera til reiðu ákveðinn fjöldi hlífðarbúninga skv. reglum er Brunamálastofnun ríkisins setur hverju slökkviliði. 2.2. Hlífðarbúningur skal a.m.k. vera eftir- farandi: Öryggishjálmur með hettu, jakki, buxur, vettlingar og stígvél. Hlífðarfamaðurinn skal vera þannig að gerð og efni til, að hann verji slökkviliðsmann- inn eftir föngum þeim sérstöku hættum sem slökkvistarfinu fylgja. 2.3. Allur hlífðarfatnaður, sem sveitarfélag kaupir í þessu skyni, skal vera viður- kenndur af Brunamálastofnun ríkisins og einnig skal hann hafa hlotið umsögn Landssambands slökkviliðsmanna. 2.4. Endurnýjun eldri hlífðarfatnaðar slökkvi- SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 15

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.