Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 18
liða er ekki heimil, nema ákvæðum í 3. gr.
sé fullnægt.
2.5. Innan 5 ára frá gildistöku þessarar reglu-
gerðar skal allur hlífðarfatnaður slökkvi-
liða fullnægja ákvæðum hennar.
(Reglugerð þessi er sett skv. lögum
nr. 55/1969 um brunavarnir og bruna-
mál).
Umsögn L.S.S.
Eftirfarandi breytingar verði gerðar á fyrsta
kafla:
1.1. í samræmi við reglugerð um brunavarnir
og brunamál nr. 269/1978 gr. 5,6,7 er sala
reykköfunartækja háð samþykki Bruna-
málastofnunar ríkisins.
Öll reykköfunartæki í landinu skulu vera
viðurkennd af B.M.S.R.
1.2. Seljanda (innflytjanda) slíkra tækja og
tilheyrandi búnaðar er skylt að láta Bruna-
málastofnun í té lýsingu á íslensku af tækj-
unum, áður en til sölu kemur. Stofnunin
skal skrásetja öll slík tæki og sjá til þess að
spjaldskrá yfir þau sé sífellt í góðu lagi.
1.6. Þegar hætt er notkun reykköfunartækja af
einhverjum ástæðum, skulu þau send
Brunamálastofnun eða prófunarstöðinni,
og skulu þau þar merkt á viðeigandi hátt
sem ónothæf til reykköfunar enda sé
reglubundinni skoðun lokið, og síðan send
viðkomandi slökkviliði.
1.8. Reykköfunartæki skal ávallt geyma á
þurrum stað í lokuðum skáp.
1.12. Óheimilt er að setj a til reykköfunarstarfa í
slökkviliðum aðra en handhafa slíkra
skírteina.
1.14. Ekki skulu fara færri en tveir reykkafarar
16 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
saman inní eld eða reyk. Skal a.m.k. einn
úr reykkafarahóp búinn talstöð eða öðru
fullnægjandi viðvörunartæki er gefur til
kynna staðsetningu hans ef hann þarfnast
aðstoðar við starf sitt.
1.11. Þar bætist við: Undanþágu má veita frá
þessum aldurstakmörkunum með sér-
stakri umsókn til B.M.S.R. og mun fylgja
henni læknisvottorð ásamt umsögn
slökkviliðsstjóra um hæfni viðkomandi.
Að komið verði á árlegri læknisskoðun
fyrir þá menn er starfa við reykköfun.
2.1. Eftirfarandi breytingar verði gerðar á
öðrum kafla:
Sveitarfélög sem hafa slökkvilið,
samkvæmt lögum nr. 55 frá 1969 um
brunavarnir og brunamál, skulu sjá
slökkviliðsmönnum fyrir hentugum
hlífðarfatnaði til nota við slökkviliðsstarf.
Avallt skal vera til reiðu ákveðinn fjöldi
hlífðarbúninga samkv. reglum er Bruna-
málastofnun ríkisins setur hverju
slökkviliði.
Þessi grein þarf einnig að ná yfír þau
slökkvilið sem rekin eru af öðrum sveitar-
félögum s.s. Isal, Aburðarverksmiðjunni,
Varnarliðinu og fleirum.
Svona eiga hlífðarkápur slökkviliðsmanna
„ekki að vera”.