Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Síða 21
Félag slökkviliðsmanna
Akranesi
Aðdragandinn að stofnun Félags slökkviliðs-
manna á Akranesi var sá að verið var að stofna
landssamband slökkviliðsmanna. Fyrir forgöngu
slökkviliðsstjórans Stefáns Teitssonar var hafist
handa um stofnun félags. Aflað var laga frá
samsvarandi félagi og ýmissa upplýsinga sem að
gagni mættu koma. Stofnfundur var haldinn 29.
Sept. ’73. Var þar gengið endanlega frá
félagsstofnun, samþykkt lög og kosin stjórn.
Fyrstu stjórn skipuðu Arsæll Jónsson
formaður, Þorbergur Þórðarson ritari, Sigurbjöm
Jónsson gjaldkeri og Þorsteinn Jónsson
meðstjórnandi. Endurskoðendur Eggert Sæ-
mundsson og Stefán Teitsson.
Ársgjald félagsmanna var ákveðið sem svaraði
launum fyrir eina æfingu, hefur það haldist
óbreytt síðan. Gjaldkeri innheimtir gjaldið hjá
bæjargjaldkera og gengur um leið frá greiðslum á
Slökkviliðsmanninum og gjöldum til L.S.S.
Þingfararkostnaður tekur svo bróðurpartinn af
því sem eftir er. Félagið sendi fulltrúa sína á
framhaldsstofnfund L.S.S., þá Stefán Teitsson
slökkviliðsstjóra og Ársæl Jónsson formann
félagsins. Stefán Teitsson átti sæti í sambands-
stjórninni í mörg ár og hefur félagið sent fulltrúa á
öll þing L.S.S.
Starfsemi félagsins var frekar léttvæg fyrstu
arin vegna aðstöðuleysis og þrengsla. En með
stækkun á stöðinni fengu slökkviliðsmenn
rúmgott herbergi með húsbúnaði til afnota fyrir
félagsstarfsemi sína. Slökkviliðsmenn á Akranesi
hafa yFirleitt notið velvildar bæjaryfirvalda
gagnvart launum og öðru er lítur að þeirra starfi.
En eins og gerist og gengur í sveitarstjórnar-
ntálum verða mannaskipti í ýmsum stöðum.
Fyrra samkomulag er misskilið eða mistúlkað og
Verða því óhjákvæmilega árekstrar, jafnvel útaf
smámunum. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt
fyrir hvert félag að gera sinn kjara- og starfssamn-
ing sem kveður á um hin ýmsu réttindamál. Félag
slökkviliðsmanna Akraness gerði slíkan samning
1979. Samningurinn er í megindráttum
samhljóða samningsuppkasti L.S.S. um kaup og
kjör slökkviliðsmanna.
Með samningi þessum er líka fengin viss
viðurkenning á félaginu sem slíku og L.S.S.
Fræðslumál eru ofarlega á stefnuskrá félagsins.
Fenginn var maður frá Brunamálastofnun
Islands til fræðslustarfsemi, flutti hann erindi og
sýndi kvikmyndir um brunavarnir og slökkvilið
auk ýmiss annars fróðleiks sem féll í góðan
jarðveg. Þökk sé Guðmundi Péturssyni.
Fyrirlestur var fluttur um reykköfun og eiturefni
Núverandi stjórn Félags slökkviliðsmanna á
Akranesi. F.v. Sigurbjörn Jónsson gjaldkeri,
Ársæll Jónsson form., Þórhallur Björnsson
ritari, Guðjón Bjarnason starfsm. slökkviliðsins.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 19