Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Side 28
Þorgeirs & Ellerts hefur eflst og þar starfa nú um
130 starfsmenn.
Margir Akurnesingar starfa hjá Járnblendifé-
laginu á Grundartanga, en þar starfa um 150
starfsmenn.
Byggingariðnaður hefur eflst á undanförnum
árum og hafin hefur verið bygging 50-80 íbúða
árlega.
ÞJÓNUSTA.
Sjúkrahús Akraness hefur 96 legupláss, þar
starfa 200 starfsmenn, margir í hlutastarfi.
Sjúkrahúsið er rómað fyrir góða aðhlynningu.
A dvalarheimilinu Höfða eru 38 íbúðir fyrir 44
vistmenn. Heimilið var tekið í notkun 1978. Hver
einstaklingsíbúð er 28 fermetrar. Aðstaða öll
þykir ágæt.
Þrír leikskólar starfa með hálfsdagsvistun fyrir
150 börn og tvö dagheimili með heilsdagsvistun
fyrir liðlega 40 börn. Samt eru biðlistar, en þó
minni en víðast hvar.
Bókasafn hefur starfað frá 1964 en flutti í nýtt
hús 1972. Útlán eru komin yfir 60.000 á ári.
I grunnskóla eru um 1000 börn. Þar af eru 160 í
nýjum skóla, Grundarskóla, sem enn er í
byggingu.
Fjölbrautaskóli tók til starfa haustið 1977 og
var þá með 186 nemendur. Nemendafjöldi er nú
550 auk 100 nemenda í öldungadeild. Skólinn
hefur vaxið og eflst ótrúlega hratt.
BYGGÐASAFNIÐ AÐ GÖRÐUM.
Gamla húsið að Görðum var byggt á árunum
1880-85 og er fyrsta hús á íslandi byggt úr
steinsteypu. Nýja safnhúsið var tekið í notkun í
júlí 1974. Séra Jón M. Guðjónsson var
aðalhvatamaður að stofnun safnsins. Safnið er
mjög ríkt af munum. Þar er t. d. kútter Sigurfari,
eini kútterinn sem nú er í eigu landsmanna.
ÍÞRÓTTIR OG FÉLAGSLÍF.
Félagslíf er mjög mikið. I bænum starfa á
annað hundrað félög og félagasamtök. Iþróttalíf
er öflugt og Akranes er þekkt fyrir góða
íþróttamenn, sérstaklega knattspyrnumenn.
Iþróttahúsið er hið stærsta utan Reykjavíkur og
var tekið í notkun árið 1976.
Hér er ágætur knattspyrnuvöllur og góður 9 -
hola golfvöllur. Hestamennska hefur aukist mikið
á síðustu árum og í uppbyggingu er
hesthúsahverfi við Æðarodda, ásamt aðstöðu
fyrir hestamennsku.
Akranesi 1981
Magnús Oddsson.
Brunabótafélag íslands
Húseigendur athugið að brunatrygging
hússins sé í /agi.
Það er hagkvæmt að hafa al/ar trygg-
ingar á sama stað.
B/ býður yður at/ar tryggingar.
----------------------Akranesumboð BÍ—
26 SLOKKVILIÐSMAÐURINN