Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 29
Yflrskrift JC-dags á Islandi í
ár „Jákvætt hugarfar“
Yfirskrift JC dags á íslandi var í ár „Jákvætt
hugarfar“. Þess vegna helguðum við í JC Akranes
deginum Rauða boltanum því við töldum þetta
verkefni vera mjög jákvætt fyrir okkar
byggðarlag, eins og allt það er lýtur að auknu
öryggi bæjarbúa í brunamálum.
Vikuna 24.-31. október munu því líklega flestir
Akurnesingar hafa heyrt setningu eitthvað í þess-
um dúr, þegar bankað var uppá, á heimilum
þeirra af félögum í JC Akranes:
j,Góðan daginn ég er hér á vegum J C Akraness og
mig langar til að kynna þig fyrir rauða boltanum“.
Þessi rauði bolti sem þarna er rætt um er
rúmlega 9 cm hringlaga límmiði rauður að lit
með gulum eldtungum í miðju og er endurskin í
þeim. Símanúmer lögreglu Akraness 1166 er
prentað á bakhlið límmiðans, sem snýr inn í
herbergið.
Ætlunin með dreifingu þessa miða var sá að ef
eldur kæmi upp að næturlagi yrði hann fyrsta vís-
bending til slökkviliðsmanna um það hvar í
húsinu væri sofandi fólk sem þyrfti hjálpar við.
Því eitt það fyrsta sem slökkviliðsmenn gera er
þeir koma að brennandi húsi er að athuga glugga-
tjöld með það í huga hvað af þeim gæti hugsanlega
verið í svefnherbergjum. Ef þessi litli rauði bolti
er til staðar í öllum svefniherbergisgluggum þá
sparar það dýrmætan tíma og sá tími getur þýtt
mannslíf.
Fyrirmynd rauða boltans er fengin frá Banda-
ríkjunum þar sem hann er notaður í smærri
bæjum og byggðarlögum þar sem eins og hér á
Akranesi eru slökkvilið skipuð af áhugamönnum.
Þar er það viðurkennd staðreynd að þessi litli
rauði bolti hefur bjargað fjölda mannslífa.
Þær viðtökur sem við fengum hjá bæjarbúum
við þessu verkefni voru í einu orði sagt frábærar
því aðeins 1 af hverjum 100 að meðaltali töldu sig
ekki geta tekið þátt í þessu og kváðust ekki hafa
áhuga.
Þar sem kostnaður í kringum rauða boltann var
þó nokkuð mikill og ákveðið var að selja hann
undir kostnaðarverði var leitað til tryggingar-
félaganna og fengum við styrk frá 5 af þeim 7
tryggingarfélögum sem starfandi eru hér á staðn-
um. Einnig var ákveðið að ef um einhvern tekju-
afgang yrði að ræða skyldi hann renna óskiptur til
tækjakaupa fyrir slökkvilið staðarins.
Ég undirrituð vil fyrir hönd JC Akraness færa
þeim sem studdu okkur og styrktu og einnig
öllum þeim er tóku vel á móti okkur þessa viku
bestu þakkir og óskir um að þessi herferð okkar
hafi orðið til þess að vekja upp umræður sem svo
aftur stuðli að auknu öryggi bæjarbúa.
Sigrún Á. Ámundadóttir,
Forseti JC Akraness, starfsárið 1981-82.
.....—...... ■ —s
Hótel
Akranes
Ával/t viðbúnir
Allar veitingar
Gisting
V /
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 27