Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 32
Astvaldur Eiríksson, Keflavíkurflugvelli:
BRUNARANNSÓKNIR
Um sumarið 1980 sótti ég nokkra vikna
námskeið, vestur í Bandaríkjunum, sem fjallaði
um brunarannsóknir. Slökkviliðsstjóri hafði um
langt árabil reynt að koma manni úr okkar röðum
á umrætt námskeið en ekki tekist fyrr, vegna
geysilegrar ásóknar, og ekki hverjum sem er
hleypt inn á slík námskeið því brennuvargar hafa
gjarnan hug á að nema slíka hluti. Á þetta
námskeið, sem er haldið á vegum flughersins og
talið með þeim bestu sem völ er á komast aðeins
menn með mikla reynslu í slökkviliði og eldvarn-
areftirliti. Vegna hinnar miklu eftirspurnar er
mikið námsefni afgreitt á stuttum tíma. Skólinn
var frá kl. 06:00 á morgnana til kl. 15:00 á daginn 6
daga vikunnar. Aðstaða er þarna öll hin
ákjósanlegasta bæði til rannsókna og verklegrar
kennslu. Álagið á mannskapinn var geysilegt, í
hverri viku voru viðhöfð próf til að fylgjast með
hvort menn voru með á nótunum, ef einhver
slakaði á og náði ekki þeim árangri sem til var
ætlast var viðkomandi sendur viðstöðulaust heim.
Að námskeiðinu loknu þreyttu allir bæði verklegt
og bóklegt próf og þeir sem það stóðust voru út-
skrifaðir með viðeigandi og myndarlegt skjal upp
á vasann og geymi ég mitt með virðingu og
ánægjulegum minningum um mjög áhugavert
tímabil.
Ritstjórn Slökkviliðsmannsins hefur farið
þess á leit við mig að ég gerði þessum málaflokki
nokkur skil í blaðinu og hef ég fallist á að reyna
eftir bestu getu og þeim aðstæðum sem
takmarkast af stuttri grein í tímariti, því ég tel að
slíkt eigi brýnt erindi til allra slökkviliðsmanna og
sérstaklega þeirra aðila sem þurfa að kveða á um
eldsupptök hverju sinni.
Reynsla Bandaríkjamanna í þessum efnum er
sú að þar sem brunarannsóknir hafa verið teknar
föstum tökum, þ.e. fólk menntað til hlutanna og
allir eldar krufnir gaumgæfilega, hefur komið í ljós
að viljandi íkveikjur eru margfalt fleiri en talið var
áður. í byggðarlögum þar sem áður var talið að
30 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN
Ástvaldur Eiríksson forst.m. eldvarnar-
eftirlitsins á Keflavikurflugvelli.
hlutfall viljandi ikveikja hafi verið um og innan
við 5% breyttist hlutfallið uppí 20-25% sem talið
er vera meðaltal brunaorsaka í því landi, en fróðir
menn telja að þetta hlutfall sé í raun enn hærra.
Ástæðan er sú að brennuvargar kveikja gjarnan í á
þann veg að öll sönnunargögn eyðileggist í
eldinum og hitt að málin væru ekki nógu vandlega
krufin og menn kunnu ekki nógu vel til slíkra
verka.
Annað atriði í þessu sambandi er að tjón það
sem verður í íkveikjueldum er talið vera 30-50% af
heildarbrunatjóni Bandaríkjamanna. Ástæðan
er sú, að brennuvargar kveikja gjarnan í á þann
hátt að tjónið verður algert. Sagt er að engin
glæpastarfsemi blómstri eins mikið og starfsenn
brennuvarga, en fyrirtæki og einstaklingar ku
geta leigt slíkt fólk til að hafa fé út úr tryggingar-
fyrirtækjum, og þeir klárustu í bransanum fa
ákveðna prósentu af tryggingarupphæðinni fynr
vikið. Mér er ekki kunnugt hvað talið sé hlutfall
viljandi íkveiktra elda hér á landi, en líklegt ma
telja að raunverulega sé það töluvert hærra en