Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Blaðsíða 38
ASKORUN
TIL
SLÖKK VILIÐ S STJÓR A
Brunamálastofnun ríkisins sendi á þessu ári frá
sér til umsagnar drög að tveimur reglugerðum,
sem tvímælalaust stuðla að bættum starfsskilyrð-
um og auka öryggi slökkviliðsmanna við störf sín.
Reglugerðirnar munu einnig stuðla að aukinni
vernd á lífí og eignum hins almenna borgara,
þegar settar verða lágmarks kvaðir í reglugerð
um búnað og tækjakost slökkviliðanna.
Reglugerðirnar eru:
1. Drög að reglugerð um reykköfunartœki og
reykköfun á vegum slökkviliða sveitarfélaga
og um hlífðarfatnað slökkviliðsmanna.
Aðeins hafa borist svör frá 6 aðilum.
2. Drög að reglugerð um búnað og tœkjakost
slökkviliða og vatn til slökkvistarfa.
Aðeins hafa borist svör frá 9 aðilum.
Einmitt þessi mál hafa verið ofarlega á baugi hjá
slökkviliðsmönnum og er þeim málið skylt.
Slökkviliðsstjórar, sveitarstjórnir og fleiri aðilar,
sem með brunamál fara hér á landi, fengu reglu-
gerðardrögin til umsagnar og rann skilafrestur út
í september.
Það fer vart milli mála, að undirtektir eru allt of
daufar og geta umsagnir frá svo fáum aðilum
tæplega talist marktækar fyrir heildina.
Brunamálastjóra er ljóst, að ýmsu má breyta og
vafalaust færa til betri vegar í báðum þessum
reglugerðum, og er öllum ábendingum tekið með
þökkum í því efni.
Skorað er á slökkviliðsstjóra, að bregðast
nú skjótt við og sjá til þess, hver í sínu
sveitarfélagi, að strax verði gengið frá
tilheyrandi umsögnum til Brunamálastofn-
unar, hafl það ekki þegar verið gert.
Með kveðju,
Þórir Hilmarsson
brunamálastjóri ríkisins.
36 SLOKKVILIÐSMAÐURINN