Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Blaðsíða 41
I heimsókn í Norska brunaskólanum.
felldan niður söluskattinn (momsið) af þeim
vörum er við keyptum og gekk á ýmsu með það.
Kl. 14.00 hófst síðan ráðstefnan af fullum krafti
vorum við mættir þar fjórir fulltrúar frá
Islandi og hlustuðum með sperrt eyru á athyglis-
verða fyrirlestra og kynningar á skólamálum Svía
^b.a. tillögur um aukna skólagöngu sænskra
slökkviliðsmanna. Voru tillögurnar í þá áttina að
byrjað var strax í grunnskóla, þaðan yfir í
'ðnskóla, tvær til þrjár vikur í praktiskri vinnu á
slökkvistöð og síðan áfram allt uppí 2280 klst.
ttámstími. T.d. var björgunarþjónusta með allt að
480 klst., kemisk fræðsla allt að 123 klst.,
fyrirbyggjandi fræðsla allt að 341 klst.,
húsbyggingatækni allt að 275 klst. og vélfræði allt
að 75 klst. Vorum við félagarnir sammála um að
v>ð gætum svo sem notfært okkur eitthvað af allri
hessari námsskrá heima á íslandi.
Um kvöldið var siglt um höfnina á tveim bátum
°g var tækifærið notað til að kynnast svolítið
innbyrðis. Rektor norska brunaskólans varð
°kkur síðan samferða heim á hótel og voru íslensk
hrunaskólamál þar efst á baugi, einnig lýstum við
ahuga okkar á að koma í formlega heimsókn í skól-
ann, skoða hann og ræða um hvort ekki væri
hugsanleg einhver samvinna á milli væntanlegs
íslensks brunaskóla og þess norska. Folde rektor
tók öllum okkar málaleitunum með miklum
ágætum og mæltum við okkur mót föstudaginn
11. 9. í húsnæði skólans, sem er í Grorud, rétt fyrir
utan Osló.
Þriðjudagurinn hófst með fyrirlestrum um
nánara samstarf hinna norrænu slökkviliða, rætt
var um stórslys og stórbruna utan Svíþjóðar og
kom Island þar inní myndina með eldsumbrot-
unum í Heimaey 1973, sýnd voru ýmis línurit og
myndir um tíðni þessarra slysa og orsakir. Fór um
flesta ráðstefnugesti vegna óhugnaðar sumra
myndanna. Enskur slökkviliðsmaður ræddi um
flutning á hættulegum efnum í tankbílum og um
hversu nauðsynlegt væri að koma á skipulagi og
reglum um merkingu þessara bifreiða. Fluttur
var fyrirlestur um búnað og fjölda danskra
slökkvistöðva og almannavarnastöðva. Rætt var
um hversu marga menn þyrfti til að svara elds-
útköllum, niðurröðun þeirra á bíla og hversu
lengi þeir mega vera á leiðinni. Danir miða við að
vera 10 mínútur í bæjum og borgum annars staðar
15 mínútur. Rætt var um sparnað þann er víða
virðist vera landlægur og var borinn saman
kostnaður við slökkvilið í Danmörku, Bretlandi
og Þýskalandi.
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN 39