Slökkviliðsmaðurinn - 01.11.1981, Page 50
er venjulega orsök hitaflutnings af einni hæð á
aðra, frá einni vistarveru til annarrar og frá einu
svæði til annars. Teikningin á mynd 18 lýsir
þesskonar hitaflutningi. Útbreiðsla elds gegnum
ganga, upp stiga eða lyftugöng, milli veggja og
gegnum súð, orsakast mestmegnis af streymi
heitra loftstrauma.
LÖGMÁL EÐLISHITA
Eldur flyst einnig eftir og gegnum efni, sem
brennur, með beinni logasnertingu. Þegar efnið
er hitað upp að því marki, að það byrjar að gefa frá
sér eldfimar gufur, getur kviknað í þessum
gufum. Öll önnur eldfim efni, sem eru í snertingu
við hinar brennandi gufur eða loga, geta hitnað að
því marki að í þeim kvikni einnig, og þær brenni.
Flutningur hita með logasnertingu er sýndur á
mynd 19.
LÖGMÁL DULINS HITA VIÐ
UPPGUFUN
Frá eldvarnarsjónarmiði er eðlishiti mæli-
kvarði á hæfni efnis til að taka í sig hita. Þótt vatn
brenni ekki, getur það tekið í sig mikinn hita.
Hitamagnið er mælt í breskum hitaeiningum
(British Therval Units), eða Btu. Btu er skilgreint
sem magn þess hita, sem þarf til að hækka
hitastigið á einu pundi af vatni um eina gráðu a
Fahrenheit, við eða nálægt hámarksþéttni þess
(39.1 F.) eins og sýnt er á mynd 20. Eðlishiti er
skilgreindur sem hlutfallið milli þess hitamagns
sem nauðsynlegt er til að hækka hitann á tilteknu
magni efnis og magni þess hita, sem þarf til að
hækka hitastigið á sama magni af vatni um sama
gráðufjölda. Líkt og loft er valið sem mælikvarði
við samanburð á þyngd lofttegunda, er vatn valið
sem mælikvarði við samanburð á öðrum efnum.
Eðlishiti vatns er 1. Eðlishiti hinna ýmsu efna er
mismunandi.
Hraði hitaupptöku eins efnis úr öðru eykst i
réttu hlutfalli við yfirborðið, sem hitinn nær til-
Ef t.d. eins ferþumlungs ísmoli er settur i
vatnsglas, tekur það töluverðan tíma fynf
ísmolann að taka í sig hitann úr vatninu vegna
48 SLÖKKVILIÐSMAÐURINN