Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 11

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 11
11 Öll börninfá möppu meÖ skemmtilegum verkefnum og upplýsingum um eldvarnir, auk viÖurkenn- ingarskjals fýrir aÖ aÖstoÖa slökkviliÖiÖ sitt. Bergur SigurÖsson, verkefhisstjóri hjá SHS, afhendir einu barnanna á Noröurbergi gögnin. Fræðsla til starfsfólks, barna og fjölskyldna Markmið verkefnisins er þríþætt: 1. Að tryggja að eldvarnir í leikskól- unum verði ávallt eins og best verður á kosið. 2. Að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað. 3. Að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægi þess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig ná má því marki. Utbúið hefur verið fjölbreytt og vand- að fræðsluefni og önnur gögn sem nýtast ofangreindum markhópum. SHS þróaði verkefnið í samvinnu við Garðar H. Guð- jónsson kynningarráðgjafa, Þrúði Osk- arsdóttur hönnuð, Höllu Sólveigu Þor- valdsdóttur myndskreyti og menntasvið Reykjavíkurborgar. Sérstakir aðstoðarmenn slökkviliðanna í verkefninu eru slökkviálf- arnir Logi og Glóð sem eru jafnframt helsta auðkenni verkefnisins. EBI lét aðlaga fræðsluefnið þannig að það nýtist öðrum slökkviliðum í landinu og I upphafi ergerÖur samningur milli slökkviliÖs og leikskóla. Birgir Finnsson frá SHS ogAnna Borg, leikskólastjóri á NorÖurbergi, handsala hér samninginn. MeÖþeim á myndinni eru Anna SigurÖardóttir, framkvœmdastjóri EBI, og Bjarni Kjartansson frá SHS. lætur þeim það í té án endurgjalds. Verk- efnið hefur verið kynnt fyrir slökkviliðs- stjórum um allt land og hefur það fengið góðar undirtektir. Ljóst er að ráðist verður í það meðal annars á Suðurnesjum, í Árnes- sýslu, Fjarðabyggð, á Héraði og víðar. Börnin taka þátt í eldvarnaeftirliti Verkefnið fer þannig fram að slökkvilið- in heimsækja leikskólana tvisvar sinnum á hverju ári. I fyrri heimsókn er gengið úr skugga um að eldvarnir leikskólans séu í lagi. I þeirri síðari heimsækja slökkviliðs- menn elstu börnin á leikskólanum og fræða þau um störf sín og eldvarnir. Þá fá börn- in sérstaka viðurkenningu og möppu með verkefnum og upplýsingum um eldvarnir. Börnin hafa möppuna með sér heim og skilar fræðslan sér þannig til heimilanna. Á milli heimsókna slökkviliðsins annast leikskólinn eigið eldvarnaeftirlit mánaðar- lega með þátttöku barnanna. Leikskólinn skuldbindur sig einnig til að gera rýming- aráætlun og æfa rýmingu árlega, samkvæmt samkomulagi sem aðilar gera með sér í upphafi. Slökkviliösmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.