Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 25
25
Samstarfssamningur milli Alcoa Fjarðaáls og Fjarðabyggðar um brunavarnir í Fjarðabyggð var staðfestur í byrjun maí. Samningurinn felur í sér stofnun
atvinnuslökkviliðs sem verður hiðfyrsta á Austfjörðum en tólfmanns verða atvinnuslökkviliðsmenn.
gildi fyrir vakthafandi starfsmenn og við
ráðum níu menn til að sinna þeim til að
eiga fyrir hluta af afleysingum. Gert er ráð
fyrir að ráða tímabundið afleysingamenn
eins og aðrir á orlofstímum. Þar horfum við
meðal annars til hlutastarfandi liðanna, því
þar eru menn sem hafa fengið þjálfun. Við
eigum því að vera ágætlega tryggir í afleys-
ingum. Það getur reynst erfitt að fá menn
með full réttindi til að leysa af en við erum
bjartsýnir. Við höfum fundað með okkar
hlutastarfandi mönnum og virðist vera
áhugi meðal þeirra að koma að afleysingum
í atvinnuliðinu. Það er ákveðið tækifæri til
að bæta við sig þekkingu og reynslu.
Ekki lengra viðbragð
Slökkviliðin á Eskifirði og Reyðarfirði fá
um sjö útköll vegna bruna á ári, en sjúkra-
útköllin á þeim stöðum eru hátt í tvö
hundruð svo ljóst er að sjúkraflutningarnir
verða stór hluti af þjónustu slökkviliðsins.
— Það eru ákveðnir staðlar sem við þurf-
um að uppfylla og eru í samningnum við
HSA. Sinna skal neyðarflutningi innan átta
mínútna frá útkalli í 90 prósent tilvika í
þéttbýli.
— Það hafa ekki verið mikil viðbrögð frá
bæjarbúum enda er liðið ekki fyllilega tekið
til starfa. Hlutastarfandi liðin á Eskifirði
og á Reyðarfirði verða ekki lögð niður fyrr
en þetta lið er tilbúið til starfa. Við höfum
aðeins heyrt gagnrýnisraddir um að verið sé
að færa sjúkra- og slökkvibíla frá Eskifirði
og Reyðarfirði, sem er rétt. Oryggismið-
stöðin er staðsett á milli þessara þéttbýlis-
kjarna og það var meðvituð ákvörðun. Ein-
hverjir hafa áhyggjur af því að viðbragðs-
tíminn lengist þar með en það á ekki að
vera því í stöðinni eru menn á vakt allan
sólarhringinn, viðbúnir að stökkva strax í
útkall. I dag eru til dæmis þeir sem eru á
vöktum á sjúkrabílunum að vinna annars
staðar. Þegar útkall kemur eiga þeir eftir
að sækja bílinn og klæða sig. Tíminn sem
tekur að keyra frá Öryggismiðstöðinni á
Hrauni er ekki það langur að hann ætti að
breyta miklu, en við leggjum allt kapp á
að hafa viðbragðstímann sem stystan, segir
Guðmundur Helgi.
Á innan við mínútu
Vaktir atvinnuslökkviliðsins hófust um
páskana og síðan hefur liðið farið í fjögur
útköll, að sögn Guðmundar Helga.
- Það hafa orðið þrjú bílslys á Hólma-
hálsinum og við álverið. I bílveltu sem varð
við starfsmannaþorpið var tækjabíllinn
kominn á staðinn innan við mínútu eftir
útkallið og sjúkrabíllinn skömmu síðar.
Utkallið kom á sunnudagsmorgni og rétt
eftir vaktaskipti. Tækjabíllinn var á ferð-
inni á álverslóðinni þannig að viðbrögðin
voru snögg.
— Við höfum sett okkur það markmið að
hafa á að skipa vel þjálfuðu liði sem fljótt er
að bregðast við. Við leggjum áherslu á for-
varnir, eldvarnaeftirlit og þjálfun sem nær
til blutastarfandi liðanna og styrkir þau.
Allt í allt erum við með tæplega 120 manna
lið og við viljum að hluta- og atvinnuliðið
nái vel saman. Það verða möguleikar fyrir
þá sem keyra sjúkrabíla á Norðfirði og
Fáskrúðsfirði að koma á vaktir á stöðinni
og fá um leið þjálfun og endurmenntun
sem eykur öryggi og færni.
Slökkviliðsmaðurinn