Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Blaðsíða 12

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Blaðsíða 12
Vaskir SHS-menn gengu á hæsta fjall Evrópu Áttunda apríl síðastliðinn hélt sex manna hópur af stað til Rússlands í þeim tilgangi að ganga á Elbrus, hæsta fjall Evrópu, og leika sér á fjallaskíðum. Hópurinn keypti pakka hjá Pilgrimtours sem er rússnest fyrir- tæki og sáu þeir um hótel og fararstjórn á fjallið. Ferðalangarnir voru Ari Hauksson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá SHS, Elías Níelsson, íþróttafræðingur SHS, Einar Stefánsson, Ingólfur Gissurarson, Kristán Maack og Magnús Friðjónsson, allir þaulvanir fjallamenn. Flogið var í gegnum Stokkhólm til Moskvu og daginn eftir til bæjarins Mine- ralniyeVody. Þaðan var fjögurra tíma keyrsla upp í Kákasusfjöllin í bæinn Azau sem er í 2.300 metra hæð og þar gistum við fyrstu þrjár næturnar. Elbrus er 5.642 metrar á hæð, 832 metrum hærri en Mont Blanc. Eftir fall Sovétríkjanna fluttist Elbrus yflr til Evrópu og varð þá hæsta fjall álfunnar. Sexmenningunum sóttist gangan á toppinn vel. Slökkviliðsmaöurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.