Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Síða 13

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Síða 13
13 Gist í gömlum olíutönkum í 3.700 metra hæð Eftir tveggja daga ferðalag hófst fyrsti dagur í aðlögun í bongóblíðu. Lagt var upp frá bænum Cheget og gengið upp í 3.400 metra og skíðað niður brattar og skemmti- legar brekkur. A öðrum degi í aðlögun var gengið á skíðum upp fyrir Dieselhut sem er í 4.300 metra hæð. A þriðja degi var farið upp í Pastuck- hovRock, upp í um það bil 4.700 metra hæð. Fjórðu nóttina gistum við í Barrels- huts sem er í 3.700 metra hæð. Barrelshuts eru gamlir olíutankar og er allur aðbúnaður þar kominn til ára sinna og greinilegt að Rússar gera ekki miklar kröfur um þægindi. Maturinn var ekki mjög góður en Vera eld- húsmamma hugsaði samt vel um okkur og var kartöflusúpa í öll mál. Túlkurinn hét Yuri, 38 gamall Rússi sem hafði farið yfir 60 sinnum á Elbrus. I Barrelshuts var tek- inn hvíldardagur og hentaði það mjög vel þar sem það snjóaði þennan dag og viðraði illa. Kristján Maack Ijósmyndari ogfjallagarp u r í Barrelshuts. Á toppinn Klukkan þrjú nóttina eftir var síðan lagt af stað á toppinn. Mikill ís var á fjallinu. Þó að fjallið láti ekki mikið yfir sér þá hefur það reynst mörgum hættulegt og má nefna að þann 26. apríl dó pólskur göngumaður og 1. maí fórst svissneskur göngumaður. Ferðin á toppinn gekk vel. Sterkur vindur var en þegar sólin kom upp lagaðist veðr- ið. Þegar komið var upp í 5.000 metra fóru menn að finna fyrir erfiðleikum við að anda. Háfjallaveiki er kvilli sem getur komið þegar menn aðlagast of hratt upp, oftast yfir 2.500 metra hæð. Orsakir veikinnar eru minni loftþrýstingur og lítill súrefn- isstyrkur í mikilli hæð. Hún hefur áhrif á taugakerfið, lungu, vöðva og hjarta. Allt frá því að vera væg til þess að vera lífshættuleg (sjá vís- indavefinn). Næstu tvo daga var síðan gengið upp í rúma 4.000 metra hæð í frábæru veðri og ekki voru brekkurnar af verri endanum. — Elías Níelsson Línuhönnun verkfræðistofa ► sérfræðingar í m rýmingaráætlunum og rýmingaræfingum m viðbragðsáætlunum við bruna og annarri hættu öryggisúttektum og áhættumati m vinnuvernd starfsmanna m hönnun brunavarna og eftirlitskerfa Suðurlandsbraut 4A | 108 Reykjavík | sími: 585 1 500 | www.lh.is | oryggi@lh.is Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.