Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 26

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Side 26
Sigurfmnur Líndal Stefánsson, Gísli Briem og Stefán Magnús Jónsson: Það er spennandi aðfá að vera meðfrá uppbafi ogfá að starfa viðþetta að atvinnu. Þetta er heillandi starfsem fier adrenalínið til að flœða. Nýja atvinnuliðið í Fjarðabyggð Heillandi að fá að vera með frá byrjun Á vaktinni hittum við fyrir Sigurfmn Líndal Stefánsson, Gísla Briem og Stefán Magnús Jónsson. Gísli er uppalinn Reyð- firðingur og starfaði í verslun áður en hann réði sig til slökkviliðsins. Sigurfinnur, sem býr á Norðfirði en kemur úr Reykjavík, var framkvæmdastjóri og Stefán Magnús vann á bílaverkstæði. Hann er frá Þórshöfn en hefur búið seinustu ár á Reyðarfirði. Þeir voru allir í hlutastarfi sem sjúkraflutn- ingamenn áður en þeir réðu sig til atvinnu- slökkviliðsins. Þeir segja ekki síst spennandi að fá að starfa við mótun og uppbyggingu nýja slökkviliðsins. - Það er spennandi að fá að vera með frá upphafi, segir Gísli og hinir kinka kolli. - Það er spennandi að fá að starfa við þetta að atvinnu. Þetta er heillandi starf sem fær adrenalínið til að flæða. Það er gef- andi að hlúa að sjúkum. Góður árangur hefur náðst á þeim æfing- um sem liðið hefur farið á. - Við vorum kallaðir til vegna elds í vöruskemmu í starfsmannaþorpinu þar sem sex menn voru fastir inni. Eftir sex mínútur voru reykkafarar komnir inn í húsið, segir Sigurfmnur. Annars hafa fyrstu dagarnir verið rólegir. - Við erum að þjálfa okkur, handleika búnaðinn og venja okkur við hann. Við höldum líka bílunum við og förum reglu- lega yfir allan búnað. I sumar verðum við á námskeiðum og svo kemur það líka í okkar hlut að þjálfa slökkviliðið hjá Alcoa. Sfp 0aj<a ra meis tarinru 30 ^ SJÚKRAFLUTNINGA SKÓLINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.