Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Page 31

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2007, Page 31
Gunnlaugur Jónsson fékk bronsverÖlaun í enduro. Hann er lengst til hagri á myndinni. Heimsleikar lögreglu- og slökkviliðsmanna (WPFG) voru haldnir í Adelaide í suður Astralíu dagana 16.-25. mars. Að þessu sinni voru það 16 Islendingar sem lögðu á sig tæplega tveggja sólarhringa ferðalag til að taka þátt. Voru þarna á ferð 14 slökkvi- liðsmenn frá SHS, einn lögreglumaður frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og liðs- stjóri/sjúkraþjálfari frá SHS. Tóku þeir þátt í sjö keppnisgreinum og hrepptu þrenn verðlaun á leikunum. Gunnlaugur Jónsson, Erling Þór Júlínus- son og Kristmundur Carter tóku þátt í mot- orcross og enduro (þolakstri) og fékk Gunn- laugur bronsverðlaun í enduro. Jón Trausti og Asgeir Gylfasynir kepptu í bekkpressu og fengu þeir báðir silfur í sínum flokkum. Ingólfur Olafsson og Jón Kristinn Valsson tóku þátt í badminton. Pálmi Hlöðversson keppti í golfi og Öttar Karlsson keppti í TCA (Toughest Competitor Alive). Hermann Maggýarson, Sævar Dór Hall- dórsson, Viðar Ólafsson, Pálmi Hlöðvers- son og Óskar Örn Steindórsson tóku þátt í körfubolta og með þeim spilaði Baldur Ólafsson lögreglumaður. Liðsstjóri og sjúkraþjálfari var Elías Níelsson íþróttafræðingur hjá SHS. Öll úrslit frá leikunum má nálgast á heimasíðu leikanna, www.2007wpfg.com Svo er bara að safna liði og senda enn fleiri á næstu leika sem fara fram í Kanada 2009 en allar upplýsingar um þá leika má finna á heimasíðu leikanna, www.2009wpfg.ca Golf og fótbolti á Skaganum I sumar fer að venju fram landsmót LSS í golfi og að þessu sinni fer það fram á Garðavelli á Akranesi þann 11. ágúst. Mótshaldarar stefna að því að hafa þetta besta golfmót sem LSS hefur haldið enda hefur Garðavöllur verið einn besti golfvöllur landsins undanfarin ár. Frekari upplýsing- ar um mótið verða birtar á vef LSS innan tíðar. I haust er svo stefnt að frekari keppni en þá fer fram knattspyrnu- mót LSS. Skagamenn hafa í nógu að snúast en þeir koma til með að sjá um mótið að þessu sinni. Þátttaka hefur verið þokkaleg undanfarin ár en mjög góð stemmning. Samt sem áður væri stemmningin óneitanlega meiri ef við næðum fleiri þátttakend- um og áhorfendum á mótið. Hluti íslenska hópsins við setningu leikanna. Slökkviliðsmaðurinn

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.