Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Síða 14
bygging þegar eldur verður laus. Aðalmunur-
inn á úðastútunum er sá að nýju stútarnir
opnast mun fyrr, eða vel innan við 60 sek.
eftir að hitastig upp við loft nær ákveðnu
marki, vatnsdreifingin er á annan veg og
úðinn fínni. Miklar tilraunir hafa verið gerð-
ar til að ná þessum árangri, fjármagnaðar af
nefndinni og að lokum skrifuð sérstök reglu-
gerð um lágmarks kröfur og frágang. Kerfi í
íbúðarhúsi af venjulegri stærð kostar í dag
líklega innan við 10.000 krónur fyrir utan
vinnu.
Lokaorð
Vatnsúðunarkerfi er það sem koma skal
og eru reyndar þegar byrjuð að ryðja sér til
rúms, ef svo má að orði komast. Þó að
reynsla af þeim sé mjög góð hjá öðrum
þjóðum má gera ráð fyrir nokkrum byrjunar-
erfiðleikum. Vandinn er nefnilega sá að
okkur hefur ekki lærst enn að umgangast
þessi kerfi með tilhlýðilegri virðingu. Reglu-
gerð sem gerir kröfur um úðunarkerfi í
vissum húsgerðum er fyrir hendi og er það
vel. En kröfur til þeirra sem hanna slík kerfi
og setja þau upp eru engar og takmörkuð eða
engin sérstök úttekt er gerð eftir uppsetningu
af sérfróðum aðilum. Að vísu er brunamála-
stofnun ríkisins eini fasti punkturinn og fara
teikningar þangað til samþykktar, en fá-
mennið á þeim bæ hefur verið slíkt að þeir
komast ekki yfir þau verkefni sem fyrir eru
hvað þá að þeir geti bætt á sig slíku eftirliti
sem viðhafa þarf varðandi vatnsúðunarkerfi.
Drög að reglugerð um eftirlit hafa verið
skrifuð en ekki unnist tími til að ganga frá
henni. Er það með ólíkindum hvað trygging-
arfélögin eru rólynd í þessum efnum, þau
gefa fullan afslátt út á vatnsúðunakerfi án
þess að hafa nokkra vissu fyrir því hvort þau
eru rétt upp sett, vatnsmagn nægjanlegt eða
hvort viðahald þeirra er eðlilegt. Reyndar
hefur þessi vandi þegar komið fram er
kviknaði í „Ljóninu" á Isafirði, smá hönnun-
ar og uppsetningargalli varð til þess að
verulegar tafir urðu á að kerfið fór í gang
með tilheyrandi óþarfa tjóni, en kerfið bjarg-
aði þó líklega húsinu. En við skulum vona að
SLÖKKVILIÐSMAÐURINN