Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Side 16
Landssamband slökkviliðsmanna:
Skýrsla stjórnar
Fljótlega eftir að stjórnin tók til starfa hóf
hún að leita að hentugu húsnæði fyrir skrif-
stofur L.S.S. Eigandi þess húsnæðis sem við
höfðum þurfti sjálfur á því að halda og áttum
við að rýma það um áramót. Það er alveg
ótrúlegt hve erfitt er fyrir fjárvana samband
að finna húsnæði sem hentar á viðráðanlegu
verði. Ófáar voru þær kompurnar og kytrurn-
ar sem skoðaðar voru bæði af stjórn L.S.S.
og Emil Pálssyni. f desember gerðum við
leigusamning og töldum þar með málið úr
sögunni, en það fór á annan veg. Leigusalinn
stóð ekki við neitt af því sem um samdist og
urðum við að fá lögfræðiaðstoð við að rifta
samningnum. Að lokum fengum við ágætt
húsnæði að Laugavegi 59 (Kjörgarði). Þetta
eru ca. 50 fermetrar og skiptist í tvö herbergi.
Við fluttum svo í nýja húsnæðið í apríl og
buðum af því tilefni ýmsu aðilum til smá-
veislu. Okkur bárust margar góðar gjafir
þann dag, m.a. ný og fullkominn ritvél frá
Brunabótafélaginu.
Rekstur skrifstofunnar var með hefðbund-
nu sniði en salan minnkaði mikið eftir að við
fluttum, eru nefndar ýmsar ástæður fyrir
dræmri sölu nú í sumar. Húsnæðið er í
kjallara og hefur því ekki glugga að götu. Þá
var starfsemin með rólegra móti yfir sumar-
mánuðina en nú í haust er salan farin að
aukast aftur.
Er það von mín að salan haldi áfram að
aukast, en að öðru leyti vísa ég til reikninga í
sambandi við rekstur skrifstofu. Starfsmaður
okkar á skrifstofunni, Emil Pálsson hætti
störfum hjá okkur þann 31. ágúst. Ég vil nota
þetta tækifæri og færa Emil sérstakar þakkir
fyrir störf hans í þágu L.S.S. Við starfi Emils
tók Guðmundur Fylkisson úr slökkviliði
Hafnarfjarðar. Guðmundur er starfsmaður
okkar hér á þinginu og geta fulltrúar leitað til
hans ef þá vanhagar um eitthvað.
Samstarfið við B.M.S.R. hefur verið gott
á árinu. Ekki var unnið neitt sameiginlegt
verkefni með B.M.S.R. eins og í fyrra.
Stjórnin hélt þó þrjá formlega fundi með
brunamálastjóra þar sem fjallað var og skipst
á skoðunum um alla þætti íslenskra bruna-
mála. Gífurlegur fjárhagsvandi er nú hjá
B.M.S.R. og hefur stjórn stofnunarinnar
haft af þessu miklu áhyggjur. Undirritaður
fór ásamt Halldóri Vilhjálmssyni þrisvar á
fund félagsmálaráðherra. Á þeim fundum
lögðum við þunga áherslu á að fjárhagsvandi
B.M.S.R. yrði leystur. L.S.S. hefur ætíð
verið þess fylgjandi að brunamálastofnun
verði efld og starf hennar aukið, en L.S.S.
hefur fullan rétt á að fylgjast með og taka
þátt í að móta störf B.M.S.R. Það starf hefur
hvílt á herðum Gísla Lórenssonar og hefur
hann, að mati undirritaðs, skilað því með
stakri prýði. Gísli nýtur fulls trausts allra
stjórnameðlima L.S.S.
Talsvert hefur verið unnið að undirbúningi
að kennslubók í brunavörnum, sem ætluð er
börnum á grunnskólastigi. Málið hefur verið
kynnt ýtarlega fyrir ráðhera, en bókin hefur
verið þýdd og búin til prentunar af Höskuldi
Einarssyni. Höskuldur gaf L.S.S. bókina á
því vinnslustigi sem hún er nú. Og sýnir það
enn og aftur hvern hug sá heiðursmaður ber
til L.S.S. Kunnum við honum bestu þakkir
fyrir.
Stjórnin óskaði eftir því við Þóri Gunnars-
son að hann sæti áfram í skólanefnd félags-
málaráðuneytisins. Þórir féllst fúslega á að
klára verkið og í vor leit skýrsla nefndarinnar
dagsins ljós. Ekki er vafi á að sitt sýnist
hverjum um skýrslunar, en undirritaður
bendir þingfulltrúum á, að í fyrsta skipti
liggur fyrir opinber skýrsla og tillögur um
menntunarmál slökkviliðsmanna á íslandi.
Þórir varð við ósk okkar um að kynna
skýrsluna hér á þinginu og mun hann gera
það undir sérstökum dagskrárlið á morgun.
Skýrslan var send formönnum allra aðild-
arfélaga L.S.S. með þingboði. Það er von
okkar að hún hafi verið rædd í sem flestum
félögum.
Blaðið okkar, Slökkviliðsmaðurinn, kom
aðeins einu sinni út. Vandamálin við útgáfu
blaðsins vaxa með hverri nýrri útvarpsstöð
sem tekur til starfa. Höskuldur Einarssonar
sá um útgáfu þessa btaðs og skilaði það
hagnaði til L.S.S. upp á rúmlega 119.000 kr.
^<5
SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN