Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Page 29

Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Page 29
Rafmagnseftirlit ríkisins vekur athygli slökkvi- liðsmanna á eftirfarandi: I reglugerð um raforkuvirki eru ákvæði um að eigendum og umráðamönnum húseigna beri að tilkynna bruna eða slys af völdum rafmagns til Rafmagnseftirlits ríkisins, svo og að gera grein fyrir þeim atriðum, sem talið er að geti skýrt orsök eða upphaf óhappsins. Þessi tilkynningarskylda miðar að því að safna upplýsingum, skilgreina þær og vinna úr þeim á tilhlýðilegan hátt, t.d. með því að auka fræðslu, endurskoða lög og reglur o.þ.h. Enda þótt slíkar tilkynningar berist e.t.v. ekki beint til Rafmagnseftirlitsins er mikil- vægt, að rafveitan á staðnum fái örugglega þessar upplýsingar í hendur og meti gangsemi þeirra, hvað snertir ofangreindan tilgang. Slökkviliðsmenn kannast við þá tilhögun, að þegar eldsvoða ber að höndum og ein- hverjar líkur gætu bent til þess að eldsupptök kynnu að vera af völdum rafmagns, þá kallar Rannsóknarlögreglan til eftirlitsmann frá viðkomandi rafveitu, svo og Rafmagnseftir- litinu, til þess að komast að hinu sanna í hverju máli, eftir því sem hægt er. Þetta samstarf er mikilvægt. Rafmagnseftirlitið beinir þeim tilmælum til slökkviliðsmanna, ekki síður en húseig- anda sjáfra, að þeir reyni eftir mætti að koma í veg fyrir ónauðsynlegar skemmdir á rafbún- aði í sjálfu slökkvistarfinu og eftir að því er lokið, til þess að koma í veg fyrir að mikilvæg sönnunargögn fari forgörðum vegna fljót- færni eða hugsunarleysis. Nýlegt dæmi um þetta er atvik, þar sem öll verksummerki voru fjarlægð, áður en eftirlitsmenn rafveit- unnar komu á staðinn. Kviknað hafði í út frá eldhúsviftu, sem greiðlega gekk að slökkva í. Eigandinn og slökkviliðsmennirnir hjálpuð- ust að við að fjarlægja viftuna og allt sem skemmst hafði í eldinum og keyra á haugana í snarhasti, til að losna við öll óhreinindi og ónýta hluti sem fyrst. Þá mætti stundum e.t.v. fara ögn mildilegar með kúbeinið í nágrenni við rafbúnaðinn. Að endingu heitir Rafmagnseftirlit ríkis- ins á slökkviliðsmenn að þroska með sér athygli og færni í að greina atferli elds á brunastað, til þess að betur sé hægt að gera sér grein fyrir upptökum eldsins. Sumir slökkviliðsmenn sýna mikla yfirburði á þessu sviði. Þá má einnig minna slökkviliðsmenn á að vernda sjálfa sig í starfi, með því að reyna sem fyrst að rjúfa straum af brennandi húsnæði, ef rafveitumennirnir hafa þar ekki frumkvæði af einhverjum ástæðum. SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.