Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Qupperneq 30

Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Qupperneq 30
Ávarp brunamálastj óra á 15. þingi Landssam- bands slökkviliðsmanna Virðulegir þinggestir og þingfulltrúar! Ég vil í upphafi máls lýsa því hversu leiður ég er yfir því að mál hafa þróast þannig að ég er ekki hér viðstaddur á þessu 15. þingi Landssambands Slökkviliðsmanna og hef orðið að fá annan til að flytja þetta erindi. Ég mun hér á eftir drepa á nokkuð það helsta sem að mínu mati skiptir mestu máli í sambandi við störf Brunamálastofnunar og er efst á baugi þessa dagana. Helsta vandamálið sem hrjáir Brunamála- stofnun í dag er auðvitað slæmur fjárhagur, sem var löngu fyrirsjáanlegur og ekki hefur verið ráðin bót á enn. En vonandi verður leystur innan skamms með nýjum lögum um tekjustofn Brunamálastofnunar. Það er mat mitt, að auka þurfi getu og mannafla stofnunarinnar, ef hún á að rækja sitt hlutverk á viðunandi hátt. Þetta þýðir auðvitað meiri tekjuþörf. Nauðsynlegt er að tekin verði afstaða til þessa atriðis við endur- skoðun laganna um tekjustofninn nú, því ekki er auðvelt að breyta þeim fljótt aftur og reynslan sýnir að fjárveitingar liggja ekki á lausu til þessara mála. Mestur starfskraftur Brunamálstofnunar fer í fjóra málaflokka þ.e. eftirlit með hönnun og byggingu nýrrar bygginga undir starfsemi, sem reglugerðin frá 1978 segir að eigi að hljóta samþykki Brunamálastofnun- ar, eftirlit með byggingarefnum og tækjum til brunavarna, kennslu og þjálfun slökkvi- liðsmanna og eftirlit með brunavörnum í eldri byggingum. Eftirlit með brunavörnum eldri húsa hefur verið takmarkað hjá stofnuninni og ástæðan fyrir því hefur verið, að lögum nr. 74/1982 um brunavarnir og brunamál 4. gr. segir að sveitarfélög skuli fara með eldvarnareftirlit og ásamt slökkviliðsstjóra með brunavarna- mál sveitarfélagsins. Þetta hefur verið túlkað svo að Brunamálastofnun hafi takmarkaðan rétt til þess að fara inn á verksvið sveitafélaga og slökkviliðsstjóra, nema eftir því væri óskað sérstaklega. Þetta hefur því haft þær afleiðingar, að brunavarnaúttektir hafa verið mjög óhagkvæmar eins og gefur að skilja þegar verið er að fara langan veg til þess að skoða einstakar byggingar og fyrirtæki að ósk slökkviliðsstjóra. Ég varð strax gagnrýninn á þessa túlkun laganna hvað snertir verksvið Brunamála- stofnunar og verkaðferð stofnunarinnar. Ég hef tekið þá afstöðu, að betra sé að stofnunin sé gagnrýnd fyrir að ganga of langt í brunavarnaúttektum en of skammt. Ég er þeirrar skoðunar, að flestir slökkviliðsstjórar muni fagna meiri stuðningi og afskiptum frá stofnuninni í þessum efnum. Enda eiga þeir flestir mjög undir högg að sækja, þegar verið er að valda sveitungum þeirra óþægindum með kröfum um bættar brunavarnir. Ekki er því samt að neita að í hópi slökkviliðsstjóra finnast menn sem taka óstinnt upp afskipti Brunamálstofnunar af því, sem þeir telja vera í sínum verkahring, en þeir eru sem betur fer undantekningar. Stefna mín er því sú, að stofnunin taki út sem flesta byggingar eða eldhættur og vinni það verk skipulega með sem minnstum kostnaði. Hugmyndir undirritaðs eru þær, að vissir flokkar bygginga um land allt verði teknir út af Brunamálastofnun. Það er að segja flestar byggingar aðrar en venjulegt húsnæði. Það er húsnæði þar sem fólk gistir, dvelur eða safnast saman og getur verið hætta búin, ef eldur brýst út, atvinnuhúsnæði og annað húsnæði og mannvirki sem gerðar eru kröfur um að Brunamálastofnun sam- þykki nýbyggingu samkvæmt reglugerð um brunamál og brunavarnir frá 1978. Það hefur einnig verið viðtekin venja brunavarnaeftirlits í landinu að reglugerðin um brunamál og brunavarnir nr. 269 frá 1978 nái ekki til húsa byggðra fyrir setningu reglugerðarinnar. Þessi túlkun á gildi reglu- gerðarinnar er frá mínu sjónarmiði mjög vafasöm og styðst ég þar við álit lögfræðinga, sem ég hef rætt þetta mál við. Að vísu segir í reglugerðinni að hún taki til húsa sem reist SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.