Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Síða 31

Slökkviliðsmaðurinn - 01.04.1988, Síða 31
verða eftir gildistöku hennar og húsa sem voru í byggingu þegar hún tók gildi. En þar segir einnig að í húsum fullgerðum fyrir gildistöku reglugerðarinnar skuli fara eftir kvæðum hennar eftir því sem unnt er og gera þær ráðstafanir sem brunamálanefnd telur nauðsynlega til að afstýra hættu fyrir menn og eignir. Nú er það vitað mál að flestum eldri húsum má breyta svo þau uppfylli ákvæði reglugerðarinnar, þó ljóst sé að ekki verði þau hús færð úr stað, sem byggð hafa verið eftir öðrum fjarlægðarmörkum en reglugerðin segir fyrir um. Flestar kröfur um brunavarnir geta einnig afstýrt hættu fyrir menn og eignir. Nú er það vitað mál að dómstólar hafa dæmt menn til ábyrgðar vegna slysa á þeirri forsendu að þeir hafi ekki gert nægilegar varúðar ráðstafanir, þó þeirra hafi hvergi verið krafist í reglugerðum eða öðrum reglum. Hætt er við því að erfitt geti reynst að sannfæra dómstóla um að ekki hafi verið hægt að krefjast framkvæmanlegra brunavarna og brunavarna samkvæmt reglu- gerð í húsi byggðu fyrir 1978 eftir að þar hafði orðið mannskaði. Brunavarnaskýrslur hafa nú verið staðlað- ar með eyðublöðum en áður voru þær skrifaðar, hver með sínu lagi. Brunavarna- skýrslurnar verða síðan geymdar í gagna- banka á tölvu og verður þess vegna hægt að útbúa skýrslur um vissa flokka bygginga með stuttum fyrirvara. Hugmyndin er sú, að brunavarnaskýrslurnar verði opnar öllum, sem hafa með þessi mál hafa að gera og verði þannig settir til höfuðs þeim sem standa sig ekki nógu vel í brunavörnum. Uppbygging tölvuaðstöðu Brunamála- stofnunar stendur nú þannig, að nokkrar Macintosh tölvur hafa verið keyptar og tveir svokallaðir harðir diskar, sem geta geymt mikið magn upplýsinga, en ókeypt eru tæki eins og t.d. laserprentari. Verið er að setja upp gagnakerfi fyrir brunavarnaskýrslur. Fengist hefur samþykki Fasteignamats Ríkis- ins fyrir því, að Brunamálastofnun noti þeirra gagnakerfi og þær grunnupplýsingar sem erindi eiga inn í brunavarnaskýrslur. Þess má geta að Macintosh tölvurnar eru miklu auðveldari í notkun en PC tölvur, sem mest hafa tíðkast til þessa, en að fá starfsfólk til að læra á tölvur og nota þær hefur víða reynst erfitt. Einkum gefa Macintosh tölvur mikla möguleika við ýmisskonar útgáfustarf- semi. Það skal tekið fram að hér er verið að tala um verkefni sem tekur fleiri ár að ljúka, en eftir að flesta byggingar hafa verið teknar út einu sinni og skýrslur um þær erum komnar í gagnabanka stofnunarinnar verðunöll vinna við síðari úttektir og eftirlit miklu auðveldari og árangursrríkari. Um brunavarnaúttektir Brunamálastofn- unar á þessari stundu er það að segja, að undanfarið hefur verið unnið að úttekt barnaheimila fyrir barnaverndarráð og er því verki að mestu leyti lokið. Er sá starfs- máti, að aðili, sem veitir starfsleyfi fyrir ákveðinni starfsemi nýti brunavarnaúttektir Brunamálastofnunar við ákvörðun um leyf- isveitingar, í samræmi við ofangreindar hug- myndir. Starfsmenn Brunamálastofnunar hafa nú í sumar farið nokkrar ferðir út á land eins og t.d. til Vestfjarða og Norðurlands eystra og unnið var samkvæmt ofangreindum aðferð- um við úttektir á helstu byggingum. Ætlunin hefur verið að taka út nú í sumar þá staði á landinu sem erfiðast er að fara um á veturna. Það fer ekki á milli mála að stofnunin er alls ekki fær um að taka á almennum brunavarnaúttektum af þeim krafti, sem æskilegt er, vegna mannfæðar og að núver- andi kerfi skv. lögum með brunavarnaeftirlit unnu af slökkviliðsstjórum flestum í auka- starfi er alls ekki vænlegt til árangurs. Annar málaflokkur sem líður einnig fyrir manneklu og getuleysi Brunamálastofnunar er vinna við reglugerðir og leiðbeiningar um brunavarnir ásamt alls konar kennslubókum fyrir eldvarnareftirlit og slökkviliðsmenn. Reglugerðin um brunavarnir og brunamál frá 1978 er orðin úrelt og í hana vantar stóra kafla vegna breyttra byggingarhátta og nýrra efna. Mikil þörf og raunar stór ábyrgðarhluti er, að ekki skuli vera til reglugerðir um ýmiss sérsvið á sviði brunavarna eins og t.d. með- ferð á gasi, gisti- eða dvalarheimili, meðferð hættulegra, búnað slökkviliða, eldvarnakerfa og fleira. Listi yfir helstu reglugerðir eða reglur, sem þörf er fyrir er orðinn æði langur. Staðan er sú, að þeir tveir verkfræðingar sem helst kæmu til greina til að vinna að reglu- gerðarsmíð eru yfirhlaðnir af daglegri af- greiðslu mála. Við samningu reglugerða og fyrirmæla um brunamál þyrfti að vinna tæknimenntaður maður, sem gæti einbeitt sér að þessu verk- efni og væri ekki sífellt truflaður af daglegu amstri. Einnig gæti hann sinnt útgáfustarf- semi sem mikil þörf er fyrir. Ennfremur er brýn þörf fyrir skrifstofumann, sem væri vel að sér og hefði áhuga á notkun Macintosh tölva. Slíkur starfsmaður myndi sjá um uppbyggingu gagnabanka stofnunarinnar og SLÖKKVILIÐSMAÐ URINN

x

Slökkviliðsmaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.