Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Page 3
Fylgt úr hlaði
Arnþór Helgason.
Öryrkjabandalag íslands var stofnað árið
1961. Síðan þá hafa umsvif þess farið
vaxandi og bandalagið er nú orðið óum-
deildur málsvari og forystusamtök fatl-
aðra í landinu, enda eiga nú nær öll félög
fatlaðra aðild að Öryrkjabandalagi ís-
lands auk nokkurra styrktarfélaga.
Það hefur lengi staðið Öryrkjabanda-
lagi íslands fyrir þrifum að eiga sér engan
vettvang til þess að kynna skoðanir fé-
lagsmanna sinna og aðildarfélaga. Það
var því þegar á árinu 1984 að ákveðið var
að hefja útgáfu fréttabréfs. En af ýmsum
ástæðum dróst það á langinn og það var
ekki fyrr en bandalagið réð til sín Helga
Seljan síðastliðið haust að hægt var að
hefjast handa fyrir alvöru.
Með fréttabréfi þessu hyggst stjórn
Öryrkjabandalags íslands freista þess að
ná til aðildarfélaga bandalagsins og fé-
lagsmanna þeirra, enda verður blaðið
sent hverjum félagsmanni þeirra 14 sam-
taka sem eiga aðild að Öryrkjabandalagi
fslands.
Með fréttabréfi þessu er brotið blað í
sögu íslenskrar blaðaútgáfu því að það
verður gefið út prentað, á hljóðsnældum
fyrir sjónskerta og myndbandi fyrir
heyrnarlausa. Pannig vill stjórn banda-
lagsins tryggja að hver sá sem hefur
áhuga á því sem er að gerast innan
vébanda þess geti fylgst með þeirri um-
ræðu sem verður á síðum blaðsins og
tekið þátt í henni.
Þess er vænst að í Fréttabréfi Öryrkja-
bandalagsins birtist fréttir af starfi að-
ildarsamtaka þess og því helsta sem er að
gerast í málefnum fatlaðra hverju sinni.
Pess er vænst að forystumenn félaga
fatlaðra og styrktarfélaga þeirra ásamt
almennum félagsmönnum taki þátt í að
móta fréttabréfið og leggi því til efni.
Blaðið mun ekki birta að neinu marki
fræðilegar greinar um málefni fatlaðra,
til þess eru aðrir miðlar hentugri. En þess
er vænst að fréttabréfið verði til þess að
tengja betur saman aðildarfélög Öryrkja-
bandalagsins og styrkja stöðu þess í
samfélaginu sem hagsmunasamtaka.
Öryrkjabandalag íslands eru
hagsmunasamtök fatlaðra. Bandalaginu
ber að vera á verði um hagsmunamál
fatlaðra hverju sinni og stuðla að úrbót-
um í málefnum þeirra. Þrátt fyrir al-
menna velmegun hér á landi hafa fatlaðir
íslendingar oft borið skarðan hlut frá
borði. Síðasta dæmi þess eru ný tollalög
og matarskattur, sem bitna harðast á
þeim sem síst skyldi. Hagsmunir fatlaðra
voru sennilega bornir fyrir borð í þessari
lagasetningu vegna vanþekkingar em-
bættis- og þingmanna auk þess sem
forystumenn fatlaðra sjálfra voru ef til
vill ekki nægilega vel á verði. Öryrkja-
bandalagið hefur nú sett á oddinn að fá
þessi mál leiðrétt væntanlega í góðri
samvinnu við þingmenn og embættis-
menn.
Öryrkjabandalag íslands tekur ekki
afstöðu með einum stjórnmálaflokki
gegn öðrum. Samt sem áður hlýtur
bandalagið að móta sér stefnu í þeim
málefnum sem snerta hag fatlaðra án
tillits til hagsmuna einstakra flokka eða
embættismanna. Því má búast við
hagsmunaárekstrum, en þeir verða ætíð í
þjóðfélagi sem byggist á því að koma
sjónarmiðum á framfæri með þeim bar-
áttuaðferðum sem tíðkast nú innan
stjórnmálaflokka, verkalýðshreyfingar
og annarra hagsmunasamtaka í sam-
keppnisþjóðfélagi nútímans. Öryrkja-
bandalagið mun meta stöðu sína hverju
sinni og taka afstöðu sem hæfir hagsmun-
um fatlaðra.
Að lokum skal sú ósk borin fram að
Fréttabréf Öryrkjabandalag íslands verði
starfi þess og aðildarsamtaka þess sú lyfti-
stöng sem stefnt er að.
Arnþór Helgason,
Formaður stjórnar
Öryrkjabandalags íslands
3