Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 4
Starf Ö.B.Í. á síðasta starfsári. Úr ræðu formanns. í þessu fyrsta fréttabréfi Ö.B.Í. þykir við hæfi að rifja upp nokkur meginatriði úr skýrslu formanns Ö.B.Í. sem hann flutti á aðalfundi 25. okt. á síðasta ári. Aðeins verður tæpt á því helsta, er þar kom fram. Samstarf við Þroskahjálp. í upphafi var rakið hversu til hefði tekist með samstarf við Þroskahjálp á liðnu starfsári. Samráðsnefnd hefði verið sett á lagg- irnar og skilaði hún drjúgum árangri alveg sérstaklega með drögum að félags- legri framkvæmdaáætlun, en þau voru kynnt rækilega á sameiginlegum fundi Ö.B.Í og Þroskahjálpar 24. okt. á liðnu ári. í kjölfar þessa er að vænta enn nánara samstarfs þessra tveggja heildarsamtaka. Minnt var á aðgerðir svokallaðs „bylting- arráðs“, sem sömu heildarsamtök komu á fót undir forystu Hrafns Sæmunds- sonar. Skammdegisvaka var haldin 11. des. 1986 til varnar framlögum í Fram- kvæmdasjóð fatlaðra alveg sér í lagi. Vakan fór fram við Alþingishúsið og á Hótel Borg. Árangur þeirra aðgerðar skilaði sér án efa í 40 miljóna viðbótar- framlagi til sjóðsins. Vakan vakti mikla athygli, m.a. fyrir tilstuðlan fjölmiðla og eins og orðrétt segir í skýrslu formanns: „stjórnmálaflokkar léku á reiðiskjálfi“ út af hugsanlegu sérframboði fatlaðra. „Byltingarráðið“ stóð einnig fyrir Kosningavöku fatlaðra á Hótel Sögu, er sótt var af um 1000 manns. Þar áttu fulltrúar stjórnmálaflokkanna orðastað við fulltrúa fatlaðra um hagsmunamál fatlaðra og stefnu stjórnmálaflokkanna í þeim málum. Einnig voru flutt eftirminnileg dagskrár- atriði. Kosningavakan varð þeim er fylgdust með ógleymanleg, sýndi styrk samstöðunnar og olli því ótvírætt að meira var fjallað um málefni fatlaðra í kosningabaráttunni en áður hafði verið. Samhliða var gefið út kynningarrit með kröfum samtakanna. íslensk getspá. Gjörbylting varð á högum og mögu- leikum Ö.B.Í. með starfsemi íslenskrar getspár -lottósins- og hefur gjörbreytt framkvæmdamöguleikum Hússjóðs Ö.B.I. svo og félagslegri stöðu þess. Síðan „lottóið" byrjaði hefur Ö.B.Í. fengið í sinn hlut 70 milljónir króna (okt.’87). Samstarfssamningur var gerð- ur milli stjórna Ö.B.Í. og Hússjóðs bandalagsins. Fyrstu þrjú árin renna 80% til framkvæmda á vegum Hússjóðs, en 20% til félagslegra framkvæmda á vegum Ö.B.Í. Er þessi samningur í fyllsta samræmi við lög um „lottóið“. Ö.B.Í. á 40% í íslenskri getspá og tvo fulltrúa í stjórn: Arinbjörn Kolbeinsson og Björn Ástmundsson. Þeir ásamt framkvæmdastjóranum Vil- hjálmi B. Vilhjálmssyni hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf. Vilhjálm nefndi formaður „hugmyndafræðing fyrirtækis- ins og auðgjafa bandalagsins.“ Félögum innan bandalagsins hefur ver- ið skrifað og þau beðin um nánari til- lögur um framtíðarstefnu bandalagsins. Unnið verður úr þeim hugmyndum, er svörin gefa til kynna. Stuðningur Ö.B.Í. við félögin á ekki að vera til að hrifsa frumkvæði frá þeim, heldur stuðla að því, að starf þeirra eflist sem allra mest og ákvarðanatekt um mál- efni fatlaðra verði meir í höndum fatlaðra sjálfra. Hlíf — öryggismiðstöð. Þá var rætt um útboð Tryggingastofnun- ar ríkisins á öryggiskerfi fyrir sjúklinga í heimahúsum. Fyrirtækin Vari og Securitas tóku þátt í útboðinu ásamt fyrirtækinu Fjölrás. Framkvæmdastjóri Fjörásar leitaði m.a. til Ö.B.Í. um möguleika á stofnun hluta- félags um rekstur öryggismiðstöðvar, sem þjónaði þessu hlutverki. Félagið Hlíf, öryggismiðstöð, var svo formlega stofnað 8. júní með aðild Ö.B.Í. Tryggingastofnunin ákvað hins vegar að ganga ekki til samninga við hið nýstofnaða félag og þar við situr. En félagið er til og nauðsyn slíkrar þjónustumiðstöðvar dregur enginn í efa. Starfsþjálfun fatlaðra. Rakinn var aðdragandi að starfsþjálfun fatlaðra og saga hennar. Upphafið námskeið — Skóli fatlaðra — sem hófst 1983 á vegum nokkurra samtaka með aðild að Ö.B.I. Fyrrverandi félagsmálaráðherra Alex- ander Stefánsson beitti sér fyrir fundi í september 1986 með fulltrúum Ö.B.Í. og Rauða krossins og í kjölfarið var skipuð nefnd undir forystu Margrétar Margeirs- dóttur, sem gerði tillögur til ráðherra um framtíðarskipan mála. Á grundvelli þeirra var gengið til samninga við Ö.B.Í. um rekstur Starfs- þjálfunar fatlaðra, sett reglugerð og skipuð stjórn stofnunarinnar með tveim fulltrúum Ö.B.Í. Starfsþjálfun fatlaðra var svo sett 6. okt. s.l. og er það Guðrún Hannesdóttir námsráðgjafi, sem veitir henni forstöðu. Með ágætu samstarfi við Hússjóð Ö.B.Í. og sér í lagi formanninn, Odd Ólafsson var innréttað húsnæði að Hátúni 10 a, 9. hæð, þar sem starfsþjálfun fatlaðra er til húsa. Kennslugreinar eru: íslenska, enska, hagnýtur verslunarreikningur, bók- færsla, félagsfræði og tölvufræði. Þetta er merkur áfangi á þeirri leið að vinna sem best að endurhæfingu fatlaðra. Framtíðarsýnin er sú að skólakerfið sjái til þess, að þessi nauðsynlega fræðsla sé til staðar. Þjónusta og þáttaka. Minnt var á lögfræðiþjónustu Ö.B.Í. en við hana starfaði Halldór S. Rafnar um árabil. Nú er Jóhann Pétur Sveinsson lögfræð- ingur til viðtals á skrifstofu Ö.B.I. alla þriðjudagsmorgna. Þáttur í starfi Ö.B.f. hefur verið aðild að sýningum og þátttaka í ráðstefnum. Ö.B.Í. átti virka aðild að tveim sýningum á starfsárinu og m.a. þátttöku í þrem veigamiklum ráðstefnum. Einnig á Ö.B.Í. aðild að nefndum og starfshópum. Má þar sér í lagi nefna hóp um hús- næðismál, sem átta samtök í landinu standa að. Fulltrúi Ö.B.Í. var Ólöf Ríkarðsdótt- ir. Starfshópurinn boðaði til ráðstefnu um nýjungar í húsnæðismálum 23. októ- 4

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.