Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 11
Af stjórnarnefnd og
s væðisstj órnum.
I dagsins önn.
sem utan. Ekki leið á löngu uns ýmsir
vildu láta fé af hendi rakna okkur til
stuðnings.
Davíð Oddsson borgarstjóri og stjórn
Reykjavíkurborgar sýndu einstakan skiln-
ing og keyptu húsnæði það sem við erum í,
í dag að Alandi 13, en þetta hús sem og
mörg önnur þar í grennd eru hönnuð með
þarfir fatlaðra í huga. Leigjum við það en
eigum allt innbú, þ.m.t. vélar og allt sem
notað er til sjúkra- og iðjuþjálfunar.
Um áramótin 1986—87 réðumst við í að
byggja við húsnæðið, þ.e.a.s. stofu fyrir
iðjuþjálfun og föndur og svo forstofu, þar
sem fyrirséð var, að við værum að
sprengja utan of okkur og kom á daginn
að ekki veitti af þessu aukaplássi. Fólk
kemur til okkar snemma á morgnana og
dvelur yfir daginn fram undir kl. 17.00.
Tvisvar í viku er farið í sund í laugina á
Grensásdeild Borgarspítalans í fylgd
sjúkraþjálfarans okkar Bjargar Björns-
dóttur og fer alltaf einhver starfstúlka
henni til aðstoðar. Finnst fólki það hafa
verulega gott af þessu, bæði vegna þjálf-
unarinnar og félagsskaparins, því eins og
flestum er kunnugt, þá er oft lagt margt á
ráðin og ýmislegt skeggrætt í baðhúsum og
sundlaugum, því hiti og vatn gerir fólk svo
afslappað og glatt.
Starfsfólk dagvistarinnar er allt til hinn-
ar mestu fyrirmyndar og öll samvinna.
Læknir er til viðtals daglega sem eykur á
öryggi fólksins. Fræðslu/tímarit hafa verið
gefin út reglulega undanfarið. Ferðir verið
farnar, t.d. til Þingvalla og snætt af úti-
grilli og stansað í Hveragerði í bakaleið og
nokkrar styttri ferðir t.d. í leikhús og
Kjarvalsstaði o.fl.
í mars n.k. verður haldinn fundur nor-
rænu M.S. félaganna í Reykjavík m.a. í
tilefni 20 ára afmælisins okkar.
í Álandinu eru allir sem ein fjölskylda
og vonumst við til þess, að þessi starfsemi
sé aðeins upphaf að öðru meira.
Stjórn félagsins skipa: Gyða Jónína Ól-
afsdóttir formaður, John E.G. Benedikz
varaformaður, Sigurbjörg Ármannsdóttir
ritari, Elín Herdís Forkelsdóttir gjaldkeri.
G.Ó.
Oft eru sett á blað eða reifuð í ræðu góð
og göfug markmið, sem aldrei verða
annað og meira. Einhver kann að hafa
hugsað svo ókristilega að félagsleg fram-
kvæmdaáætlun Þroskahjálpar og Ör-
yrkjabandalagsins yrði vart meira en fall-
eg orð í notalegum umbúðum og þegar á
reyndi yrði annað uppi á teningnum.
En nokkur prófsteinn kom hér á fljót-
lega eftir að þessi áætlun hafði verið
kynnt á sameiginlegum fundi samtak-
anna í október síðastliðnum.
í lögum um málefni fatlaðra segir svo
um fulltrúa í stjórnarnefnd og svæðis-
stjórnum, að í stjórnarnefnd um málefni
fatlaðra og í svæðisstjórnum hvers um-
dæmis skuli þrír fulltrúar tilnefndir sam-
eiginlega af Þroskahjálp og Öryrkja-
bandalaginu.
Og hér stendur á stöku og þarf einingu
um.
Saman var sest og er skemmst frá því
að segja, að þar tókst svo til, að ekki gat
orðið betra samkomulag milli fulltrúa
samtakanna um hinar ýmsu tilnefningar.
Er þó um býsna viðkvæmt og vanda-
samt mál að tefla, einkum þar sem bæði
félagsleg og persónuleg áhersluatriði
geta verið til staðar.
En svo reyndist ekki vera. Hvoru
tveggja samtökin sýndu hinn besta fél-
agsþroska og samstarfsvilja og náðu al-
gjörri einingu um allar tilnefnigar. Segja
má því að bæði samtökin eða þau sam-
eiginlega hafi staðist prófið með prýði.
í stjórnarnefnd voru tilnefnd:
Hafdís Hannesdóttir,
Helgi Seljan,
Jón Sævar Alfonsson.
Til vara: Ásgerður Ingimarsdóttir,
Jóhann Guðmundsson,
Vilhjámur Hjálmarsson.
Félagsmálaráðherra hefur nú staðfest
þessar tilnefningar og með ráðherrabréfi
skipað framantalda fulltrúa í stjórnar-
nefnd til næstu fjögurra ára og hið sama
gildir um skipan svæðisstjórna.
Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra er
að öðru leyti þannig skipuð.
Formaður skipaður af ráðherra:
Gréta Aðalsteinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur.
Frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti:
Ingimar Sigurðsson deildarstjóri.
Frá menntamálaráðuneyti:
Kolbrún Gunnarsdóttir sérkennslufull-
trúi.
Frá sambandi íslenskra sveitarfélaga:
Ingibjörg Pálmadóttir hjúkrunarfræð-
ingur.
Tilnefning í einstakar svæðisstjórnir
frá Ö.B.Í. og Þroskahjálp varð sem hér
segir:
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra í
Reykjavík:
Aðalmenn:
Gerður Steinþórsdóttir, Reykjavík,
Hörður Sigþórsson, Reykjavík,
Sveinn Indriðason, Reykjavík.
Varamenn:
Gísli Helgason, Reykjavík,
Sigurrós Sigurjónsdóttir, Reykjavík,
Alda Sveinsdóttir, Reykjavík.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Reykjanessvæði:
Guðbjörg Birna Bragadóttir, Kópa-
vogi,
Guðríður Ólafsdóttir, Kópavogi,
Hrafn Sæmundsson, Kópavogi.
Varamenn:
Kristinn Hilmarsson, Keflavík,
Haukur Þórðarson, Mosfellsbæ,
Jóhanna Sigurðardóttir, Mosfellsbæ.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á Vest-
urlandi:
Aðalmenn:
Halldór Sigurðsson, Akranesi,
Sigríður Pétursdóttir, Borgarnesi,
Valgerður Björnsdóttir, Borgarnesi.
Varamenn:
Þorvarður Magnússon, Akranesi,
Svanhvít Pálsdóttir, Stykkishólmi,
Guðjón Ingvi Stefánsson, Borgarnes.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Vestfjörðum:
Aðalmenn:
Evlalía Sigurgeirsdóttir, Bolungarvík,
Gísli Hjartarson, ísafirði,
Hildigunnur Högnadóttir, ísafirði.
Varamenn:
Ingibjörg Jónasdóttir, Suðureyri,
Jónína Ásbjarnardóttir, Flateyri,
Ólafía Aradóttir, ísafirði.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Norðurlandi vestra:
Aðalmenn:
Eymundur Þórarinsson, Varmahlíð,
Kristján ísfeld, Brú,
Valey Jónasdóttir, Siglufirði.
Varamenn:
Sigríður Höskuldsdóttir, Blönduósi,
Jón Dýrfjörð, Siglufirði,
Jónas Björnsson, Siglufirði.
Svæðisstjórn um málefni fatlaðra á
Norðurlandi eystra:
11