Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 8
bjartsýnisverðlaunin. Og óþarft er að taka
fram að enginn er kátari og kætir aðra
betur á kvöldvökum en hún.
Anna Ingvarsdóttir heitir önnum kafin
kona, sem gegnir því hlutverki að vera allt
í öllu í fjármálum á svæðinu og þó víðar
væri farið. Framkvæmdastjóri Hússjóðs
og fjármálalegur framkvæmdastjóri
vinnustofanna hefur býsna mörgum
hnöppum að hneppa — auk sinna eigin —
og nýliðinn er undrandi á þeim undra-
tökum er hún hefur á öllu er að veraldar-
vafstri snýr og er hún þó kærleiksrík kona
sem hinar. Nú iðkar hún húsakaup,
„brask“ mundu sumir segja í skjóli „lottó“
auðsins algóða og eirir engu.
En dugnaður og dáð eru greinilega
„lífsmottó“ hennar og lifað eftir þeim.
Ekki verður svo við þetta skilið án þess að
geta um hinn góða anda skrifstofunnar —
anda, sem öðru hvoru birtist í eigin pers-
ónu, en má í gríni gefa nafnið: Oddur yfir
og allt í kring og öllu gamni fylgir ærin
alvara.
En nú víkur að öðru —- og nátengdu þó.
Nýliðinn gerði óðar af sér óskunda
nokkurn, er hann var hýstur héðra. Einar
Aðalsteinsson, tæknifræðingur Örtækni
— sat innst í kór — innar eðalkonum, en
varð að víkja fyrir nýliðanum og hverfa á
vit vinnustofu sinnar að fullu og öllu eða
svo gott sem. Einar er svo sem forðum var
sagt „hvers manns hugljúfi og leikur allt í
höndunum á honum.“
Um starfsemi þá er hann stjórnar mun
síðar fjallað sérstaklega, enda forvitnilegt,
en nýliðinn hefur ekki hundsvit á þeirri
hugvitsamlegu hátækni, sem Einar kann
jafnvel eða betur en margföldunartöfluna
og er þá mikið sagt. Eitt er á hreinu: Þar
inni undir hans „regiment" una menn hag
sínum mæta vel.
Nú þá lítur alltaf annað slagið inn til
okkar úr annríki sínu — „barnið á bæn-
um“ — og er ekki hægt að segja að
saumað sé að henni, en þetta er Guðrún
Guðmundsdóttir forstöðumaður — kona
— saumastofunnar. Hún ber með sér
þann góða þokka, sem henni virðist snið-
inn af sjálfu sér og allar hennar iðnu
kvinnur njóta þessa við nostur sitt.
En ekki er öll sagan sögð varðandi
kvennalánið, því öðru hvoru svífur af
hæstu hæðum ofan til okkar sú ágæta
Guðrún Hannesdóttir, sem veitir forstöðu
Starfsþjálfun fatlaðra af lipurð og lagni,
en ærinni röggsemi engu að síður.
Innlit hennar gleður auga og hressir
huga.
Og yrði nú upprof nokkurt eðli málsins
samkvæmt, ef nýliðinn væri enn nýliði, en
við því heiti hefur tekið Kristín Jónsdóttir,
sem hefur nýtt ár hjá okkur með öllum
sínum ráðum og leiðbeiningum, sem létta
eiga öðrum lifsgönguna. Hún greinir sjálf
örstutt frá eðli starfans síðar, en bætist í
það broshýra safn sómakvenna sem undir-
ritaður á nú í raun allt undir.
Helgi Seljan.
Ásgerður lngimarsdóttir.
Rí Ásgerði
og önn daganna.
Fjölþætt starfsemi kallar á verkfært fólk,
sem kann hvoru tveggja: skil á því sem
skiptir máli og kann að umgangast fólk
og sinna hinum mannlegu samskiptum
svo vel fari.
Ofmælt mun það ekki, að fram-
kvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins, Ás-
gerður Ingimarsdóttir kunni hvoru
tveggja frábærlega vel og starfi í samræmi
við það.
Ógerlegt er að fara yfir verksvið henn-
ar allt í örstuttu viðtali, en til að forvitn-
ast um meginlínur fengum við Ásgerði til
að svara nokkrum spurningum.
Fyrst um tímana tvenna, því Ásgerður
hefur unnið á skrifstofu Ö.B.Í. um 17 ára
skeið, þó það sé fyrst nú, sem hún er
ráðin í fullt og fast starf sem fram-
kvæmdastjóri.
Hvað er efst í huga hennar nú er
varðar þróun mála þennan tíma?
Þegar Öryrkjabandalag íslands var
stofnað 1961 hafa sjálfsagt engir fjár-
munir verið í sigti. Tilgangurinn öldungis
sá að félögin mynduðu heild til þess að
þoka málefnum öryrkja áfram. Hugsun
þeirra manna, sem stofnuðu bandalagið
hefur réttilega verið: Sameinaðir stönd-
um við — sundraðir föllum við.
Fljótlega var komið á fót skrifstofu í
húsakynnum S.Í.B.S. og Guðmundur
heitinn Löve ráðinn framkvæmdastjóri.
Pað var lán bandalagsins að strax í byrjun
skyldi ráðast þangað jafn mikilhæfur og
góður maður og hann var. Guðmundur
var sjálfur öryrki og hafði víðtæka þekk-
ingu á málefnum öryrkja.
Þegar farið var að huga að sameigin-
legu verkefni fyrir öryrkjafélögin kom
strax í ljós að húsnæðismálin brunnu
hvað heitast á félögunum og þess vegna
var Hússjóður bandalagsins stofnaður.
Honum hefur frá upphafi veitt forstöðu
Oddur Ólafsson. Starf Odds að þessum
málum er svo mikið og merkilegt að ég
vona að einhver taki sig fram úr skaftinu
og skrifi sögu hans. Það er með ólíkind-
um hverju áræði, kjarkur og dugnaður
Odds hefur komið til leiðar í húsnæðis-
málum og öðrum málum öryrkja. Hann
og Guðmundur Löve sneru bökum
saman frá upphafi og upp risu húsin í
Hátúni hvert af öðru. Ekki vil ég láta hjá
líða að nefna fyrsta byggingameistara
bandalagsins, Ingvar Þórðarson, sem
ekki var bara byggingameistari heldur
8