Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 13
Endurskoðun almannatrygginga Svohljóðandi bréf hefur verið sent til aðildarfélaga Ö.B.Í. Reykjavík 10/12/87. Heiðraða félagsstjórn! Nú stendur fyrir dyrum allsherjarend- urskoðun tryggingalöggjafarinnar. Að mörgu mun þar þurfa að hyggja, því hratt mun eiga að starfa. Undirritaður hefur verið beðinn um að taka sæti í nefnd þeirri, er hefur þetta mikla starf að sínu verkefni. Honum er því vandi á höndum. Án þess að beðið sé um á þessu stigi neina úttekt á löggjöfinni eða víðtækum, alhliða tillögum til úrbóta væri gott að þessi mál yrðu rædd í félögunum, þannig að þau yrðu tilbúin til álitsgerðar síðar, þegar eftir yrði leitað. Hins vegar væri mjög æskilegt, ef fé- lögin vildu senda inn sem fyrst nokkur meginatriði, sem þau teldu að leiðrétt- ingar þyrftu við. Mættu vera þrjú-fjögur atriði, sem heitast brenna á í dag. Undirrituðum væri þökk í því að fá slíkt inn á borð sitt sem væntanlegt veganesti til vandasamrar iðju. En æskilegt væri svo að félögin fund- uðu sérstaklega um þessi mál síðar og sendu væntanlegri nefnd breytingartil- lögur eða hugmyndir að þeim, þegar til þess kæmi. Hefi sambandi við ykkur um þessi mál, þegar þau skýrast, m.a. hver stýra muni starfi nefndarinnar. Með kærum kveðjum, Helgi Seljan. Nú hefur nefnd þessi verið sett á laggirnar með ráðherrabréfi frá 17. des. s.l. Formaður nefndarinnar er Finnur Ing- ólfsson aðstoðarmaður heilbrigðis- og tryggingaráðherra, en ritari nefndarinnar er Gunnar Jónsson lögfræðingur. Verk- svið nefndarinnar er viðamikið og marg- þætt og segir svo í erindisbréfi: Hlutverk nefndarinnar skal m.a. vera eftirfarandi: 1. Að endurskoða lögin um almanna- tryggingar og leggja mat á þau mark- mið, sem fram koma í núgildandi lögum. 2. Að skoða tengsl almannatrygginga- laganna við önnur lög s.s. lögin um málefni aldraðra og fatlaðra. 3. Að gera úttekt á stjórnskipulagi og verksviði Tryggingastofunar ríkisins. 4. Að endurskoða deildarskiptingu stofnunarinnar og embætti trygginga- yfirlæknis. 5. Að endurskoða fyrirkomulag trygg- ingaumboða og sjúkrasamlaga. Nú er vitað að ráðherra hyggst láta nefnd þessa starfa svo hratt, sem auðið er og helst skila áliti svo, að á Alþingi 1988—89 verði unnt að afgreiða nauðsynlegustu breytingar og helst allt málið. Undirritaður vill því brýna fyrir að- ildarfélögum svo og einstaklingum sem áhuga hafa á breytingum að senda inn hugmyndir sínar sem allra fyrst. Eitt er alveg víst, af ærnu er að taka. Helgi Seljan. Tölvumidstöð fatlaðra Tölvumiðstöð fatlaðra var stofnuð 24. nóvember 1985, en þá hafði undirbún- ingshópur starfað um nokkurt skeið, en til hans var stofnað að tilstuðlan SAF- ÍR—hópsins svonefnda. Eftirtalin félög stóðu að stofnuninni: Blindrafélagið Félag heyrnarlausra Landssamtökin Þroskahjálp Sjálfsbjörg, landssamtök fatlaðra Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Öryrkjabandalag Islands Eftirtalin markmið voru efst í huga stofnenda: a) söfnun upplýsinga um vélbúnað og hugbúnað, sem nýtist fötluðu fólki í sambandi við tölvur til atvinnu, náms og tómstundastarfs; b) þróun slíks búnaðar og aðhæfing að íslenskum aðstæðum; c) dreifingu slíks búnaðar; d) skráning upplýsinga um ráðstefnur og námskeið á þessu sviði. 1. janúar 1987 tók miðstöðin til starfa og var undirritaður ráðinn sem forstöðu- maður í hlutastarf. Síðastliðið ár var aðallega unnið við söfnun upplýsinga, en einnig hefur ein- staklingum, félögum og stofnunum verið veitt ýmiss konar ráðgjöf varðandi tölvu- málefni fatlaðra. Á yfirstandandi ári mun aðaláherslan verða lögð á kynningu á miðstöðinni, söfnun og flokkun upplýsinga, uppsetn- ingu á gagnabanka um hug- og vélbúnað sem hentað getur fötluðum og, að sjálf- sögðu, ráðgjafaþjónustu við fatlaða og aðstandendur þeirra. Forstöðumaður Tölvumiðstöðvar fatl- aðra á sæti í starfshóp sem starfar á vegum Nordiska nemden för Handikapp- fraagor, en starfshópnum er ætlað að safna upplýsingum um hugbúnað sem nýtist fötluðum. Starfshópurinn hefur gefið út frumútgáfu af Software Cata- logue, en það er skrá yfir fyrstu 100 forritin sem skráð hafa verið í gagna- banka um hugbúnað fyrir fatlaða Nor- disk software database. Skráin hefur að geyma ýtarlegar upplýsingar um viðkom- andi hugbúnað og má þar nefna að lýsing á honum er á tungumáli viðkomandi þjóðar sem skráir hann og stutt lýsing á ensku. Á vegum NNH eru tveir gagna- bankar fyrir tölvubúnað: Nordisk software database og gagnabanki um hjálpartæki fyrir fatlaða Nordisk hjelpe- middel database. Gagnabankarnir eru í tölvu Handikappinstitutet í Solna við Stokkhólm. Fyrirhugað er námskeið fyrir þá sem koma til með að þjóna bankanum frá hverju landanna. Á næstunni mun verða sent út eyðublað til fyrirtækja og stofnana þar sem viðkomandi aðilar verða beðnir um að skrá hugbúnað sem nýtast megi fötluðum og er í notkun á íslandi. Mér þykir hér viðeigandi að benda þeim fötluðum, sem ætla að tölvu- búnaður geti létt þeim tilveruna á, að möguleikar eru á styrkjum og lánum til að verða sér úti um viðeigandi búnað og veitir miðstöðin upplýsingar og ráðgjöf í því sambandi. Að lokum vil ég biðja alla þá, sem eitthvað hafa til málanna að leggja, varð- andi tölvubúnað fyrir fatlaða, að hafa samband við mig. Einnig er mér ljúft að aðstoða hvern þann sem leitar eftir upplýsingum um viðeigandi tölvubúnað fyrir fatlaða. Tölvumiðstöð fatlaðra er til húsa að Hátúni 12, 105 REYKJAVÍK sími 689494 eða 29133. Reykjavík, 11. febrúar 1988 Sigurjón Einarsson 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.