Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Blaðsíða 15
Stjórn Öryrkjabandalags íslands. Arnþór Helgason, Blindrafélgið, for- maður, Ólöf Ríkarðsdóttir, Sjálfsbjörg, varafor- maður, Jóna Sveinsdóttir, Foreldra- og styrktarfé- lag heyrnarlausra, ritari, Hafliði Hjartarson, Styrktarfélagi vangef- inna, gjaldkeri, Andrés Kristjánsson, Heyrnarhjálp, Arinbjörn Kolbeinsson, Gigtarfélag Islands, Elín Pálsdóttir, Blindravinafélagið, Garðar P. Jónsson, S.Í.B.S., Hafdís Hannesdóttir, M.S. félagið, Magnús Þorgrímsson, Geðhjálp, Oddur Bjarnason, Geðverndarfélagið, Sigurjón Grétarsson, Laufið, Vigfús Gunnarsson, Styrktarfélag lam- aðra og fatlaðra, Vilhjámur B. Vilhjámsson, Félag heyrnarlausra. Áheyrnarfulltrúi: Jóhann Pétur Sveinsson, Félag ungra fatl- aðra. Helstu nefndir og ráð. Umferðarráð: Halldór S. Rafnar. Öldrunarráð: Jóna Sveinsdóttir. Ferlinefnd: Arnþór Helgason og Vigfús Gunnarsson. Samráðsnefnd um málefni fatlaðra: Hall- dór S. Rafnar. Afgreiðslunefnd öryrkjabifreiða: Kári Sigurbergsson. Ráöstefnur áNorrænu tækniári. Norræna nefndin um málefni fatlaðra (NNH) hyggst í tilefni af Norrænu tækni- ári halda tvær ráðstefnur. Ráðstefnurnar verða haldnar í tengslum við sýninguna „Forsorg og Hospital“ sem haldin verður dagana 17. til 19. maí í Herning. Þann 18. verður ráðstefna sem ber titilinn Tölvan sem hjálpartæki og þann 19. verður ráð- stefna sem ber titilinn samskipti með nýrri tækni. Opinber tilkynning og þátt- tökueyðublöð verða ekki tilbúin fyrr en í lok mars. Fyrir íslands hönd sitja Ólöf Ríkarðs- dóttir, forstöðumaður og Björn Ön- undarson, tryggingayfirlæknir í stjórn NNH og veita þau eða undirritaður fús- lega nánari upplýsingar um fyrirhugaðar ráðstefnur. Sigurjón Einarsson sími 72355 Lokaorð. Hér birtist ykkur fyrsta fréttabréf Ör- yrkjabandalags íslands eða málgagn þess, ef menn kjósa það heldur. Knýjandi nauðsyn er á lifandi tengsl- um milli stjórnar og skrifstofu Ö.B.Í. og hinna einstöku aðildarfélaga. Tengsl skapa skilning, skila árangri ef rétt er á haldið. Kynning á einstökum þáttum í starf- semi heildarsamtakanna er upphafið. Það þótti vel við hæfi að hefja útgáf- una með því að lýsa inn í þessa starfsemi, sýna í knöppu en ljósu máli, hvað fram fer á vegum Ö.B.Í. og innan veggja þess. En umfram allt þarf fréttabréfið að vera vakandi og lifandi vettvangur fyrir alla, sem þar eiga erindi nokkurt. Aðildarfélögin eiga nú leik. Þau geta snúið sér til umsjónarmanns fréttabréfsins með það,sem þau vilja sér- staklega geta um í starfsemi sinni eða hvað þau eru með á prjónunum. Allt að sjálfsögðu innan hæfilegra lengdartak- markana. Kynning á einstökum félögum Ö.B.Í. er sjálfsögð og um þann þátt mun umsjónarmaður sjá og hafa samband það tímanlega , að unnt sé að hafa á hrað- bergi helstu upplýsingar varðandi félags- starfið. Þó ritstjórinn svokallaði hafi margt ritað um dagana, hefur hann aldrei rit- stýrt neinu nema sjálfum sér, svo þetta er alger frumraun á þessu sviði. í þessari frumraun hefur hann notið alúðarfyllstu aðstoðar ýmissa góðra starfskrafta, for- manns og framkvæmdastjóra þó fyrst og síðast. Frumraunin er lögð í ykkar dóm og framhaldið fer ekki síður eftir ykkur, því gagnkvæm tengsl ein koma að gagni. Eitt er víst, öll eigum við vissa samleið og sú samleið þarf að skila okkur sem allra lengst fram á vonbjartan veg. 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.