Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Side 5
ber á liðnu ári. Kynnt voru drög að
frumvarpi um félagsíbúðasjóð.
Markmiðið er að knýja fram breytingar
á hinu félagslega húsnæðislánakerfi til að
létta hag þeirra, sem ekki eiga þess kost
að taka þátt í baráttunni á hinum almenna
húsnæðismarkaði. Um aðild Ö.B.Í. að
nefndum, stjórnum og starfhópum er birt
sérstök skrá og vísast til hennar.
Minnt var á aðild að tveimur alþjóða-
samtökum: Nordisk förening for rehabilit-
ering og Rehabilitation International.
Greint frá utanferðum í tengslum þar við.
Tölvumiðstöð fatlaðra.
Rætt var um Tölvumiðstöð fatlaðra,
hlutverk hennar og nauðsyn á eflingu
hennar, en hún hefur nú starfað í tvö ár.
Fjárveiting hefur verið af skornum
skammti og nauðsyn ber til að aðildarfé-
lög veiti þar meira fé.
Hugmyndir hafa komið upp um það
(O.’O), að bandalagið ætti að standa að
framleiðsu og þróun hjálpartækja.
Allt er þetta til athugunar og væntan-
legra aðgerða í framhaldi af því.
Sértæk verkefni — styrkir.
Með bættum hag opnast leiðir til að veita
styrki til ýmissa sértækra verkefna.
Drög að reglum gera ráð fyrir að
ákveðinni prósentu af þeim hluta, sem
ætlaður er til félagslegra framkvæmda
verði varið til styrkveitinga.
Samstarf við löggjafann.
Því var fagnað að það færðist í vöxt að
Alþingi leitaði umsagnar bandalagsins
um mál er varða fatlaða.
Hins vegar var harmað það samráðs-
leysi er var við setningu laga um kaup
öryrkja á bifreiðum, en sú lagasetning
var keyrð gegnum þingið á örskotshraða.
Samning reglugerðar var hins vegar í
samráði við samtök fatlaðra og þar var
reynt að stoppa í göt svo sem unnt var.
Þáttur heyrnarlausra.
Ýmis fleiri mál voru reifuð í skýrslu
formanns.
Sérstaklega var getið fundar stjórnar
Ö.B.Í. um málefni heyrnarlausra. Gagn-
merkur fundur, þar sem fjölmargt skýrð-
ist og rætt var um brýnar úrbætur.
í framhaldi af þessu var vikið sérstak-
lega að fjölmiðlamálum heyrnarlausra.
Vítavert er hverja meðferð táknmáls-
fréttir hafa hlotið í dagskránni hjá núver-
andi fréttastjóra sjónvarps.
Daufheyrst hefur verið við öllum ósk-
um Félags heyrnarlausra og Ö.B.Í.
Réttilega var bent á hinar miklu beinu
tekjur sjónvarps af „lottóinu“ sem skipta
miljónum.
Réttmæt krafa að einhverju af þeim
fjármunum, sem R.Ú.V. fær þannig á
silfurfati verði varið til að rétta hlut
þeirra, sem eiga einskis annars fjölmiðils
völ en sjónvarps.
Félagsmálaráðherra hefur lýst ein-
dregnum vilja sínum til þess að taka
sérstaklega á málefnum þessa hóps.
Ýmislegt að lokum.
Vakin var athygli á því að greiðslur til
forráðamanna barna skv. 10. grein laga
um málefni fatlaðra væru alltof lágar og
ráðuneytið væri að brjóta launasaminga
með þeim.
Væntanlegt er rit um líf og starf fatl-
aðra, gefið út af fyrirtækinu Frjáls mark-
aður. Bandalagið var beðið um að tilnefna
fólk í ritnefnd og var svo gert. Ritinu mun
verða dreift í 85000 eintökum og er út-
koma þess líkleg á útmánuðum.
Að síðustu ræddi formaður framtíðar-
sýn og fjölgun verkefna.
Gat sérstaklega um fasta ráðningu
framkvæmdastjóra Ásgerðar Ingimars-
dóttur hjá Ö.B.Í.
Stjórnarfundir á starfsári voru 15 og
svipaður fundafjöldi hjá framkvæmd-
aráði.
r
Oddur Olafsson —
atgervismaður, engum líkur.
Við berum gjarnan saman fortíð og nú-
tíð, þegar okkur þykir sem árangur hafi
orðið sem umtalsverður sé, þegar áfang-
ar hafa náðst, sem skila okkur vel fram á
veg. Ekki þarf langt til baka að leita til að
sjá verulegar andstæður á allflestum svið-
um þjóðlífs okkar.
Ekki hvað síst á þetta við, hvað varðar
heilsugæslu og félagslega aðstöðu hvers
konar. Par hefur margt breyst svo, að til
byltingar má fremur teljast.
Að baki liggur mikil barátta, sem
fjöldi fólks hefur háð fyrir sameigin-
legum áhugamálum á leið til betra og
bjartara lífs.
Þar hefur afl fjöldans sagt til sín um
áhrif og úrbætur, en ekki mun minna um
vert að á hverri tíð hafa einstaklingar til
forystu valist og í fremstu víglínu barist,
sem öðrum fremur hafa haft kjark og
kraft, lipurð og lagni, ásamt með ódeigri
baráttulund. Mörg góð nöfn munu þar
geymd fyrir sögu síðari tíma, en oft njóta
einstaklingar þessa ekki í nútíðinni svo
sem vert væri.
Par kemur oft til hógværð og hjartans
lítillæti þeirra, sem eiga þó að baki hvað
besta baráttusögu.
Þegar ég fór að huga að fréttabréfi
Ö.B.Í. ómaði þó sterkar og var efst í
huga eitt nafn margra ágætra, en það var
nafn Odds Ólafsonar fyrrum alþingis-
manns og yfirlæknis og núverandi
heiðursformanns Ö.B.Í.
Oddi kynntist ég ágæta vel á öðrum
vettvangi, á Alþingi og mat hann því
meir, sem ég fékk færi betri og fleiri til að
kynnast honum og hugðarefnum hans.
Á vettvangi Alþingis var hann sífellt
vakinn og sofinn í hvers konar réttinda-
baráttu fyrir fatlaða og sjúka.
Með dæmafárri elju og óbilandi
sannfæringarkrafti vann hann þessum
málum öllum hið mesta gagn, enda var
reynslan ærin og frábær þekking kom
honum að góðu gagni. En einmitt á
vettvangi Öryrkjabandalagsins á Oddur
starfssögu hvað besta og bjartasta og
væri ekki við hæfi að minnast þess í litlu
viðtali, þó enn sé Oddur að, þó enn njóti
Ö.B.Í. hans ágætu starfsorku.
Byggingarsaga Ö.B.Í. er ævintýri lík-
ust og eins og í öllum góðum ævintýrum
er einhver undrasproti á ferð, einhver
prins, sem úr álögum leysir og úr læðingi
vekur áður óþekkta krafta.
Og er nú ekki best að byrja að spyrja:
5