Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Side 7

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Side 7
Starfsfólkið í allri sinni dýrð. R léttari nótum — og þó. Nýtt starf þar sem öndvegisfólk er ekkert að gefa stranga og leiðandi lýsingu á verksviði og athöfn allri kallar vissulega á alla athygli þess, sem er að hefjast handa. Og fyrsta spurningin, sem á hug- ann leitar er sú, hversu að skuli farið, hvernig skuli unnið, svo eitthvað gagn geti orðið af. Því óneitanlega er það örlítið betra, að unnt sé að segja, að gagn sé gert, að ekki sé til einskis unnið. En jafnframt er líka horft til margra, óleystra verkefna og glöggt, að ekki verður verkefnaskortur, ef vilji og hug- kvæmni leggjast á eitt. Og það er svipast um á vettvangi og verður fyrst fyrir að kanna hvað verið sé að iðja allt í kring. Nýliðinn býr við konuríki mikið en kært og ekki orð um það meira eitt sér. En talandi um kvennaveldið, sem öllu ræður í ríki því, verður nýliðanum vel ljóst og fljótt fullljóst, að ekki er þar slegið slöku við. Þar er raunar allt á fullu alla daga og ótrúlegt hversu mörgu og misjöfnu er í að snúast — ótrúlegt ekki raunar þegar þess er gætt, hversu mörgu er sinnt, og skiptir þá ekki ináli um skyldu eður ei. Má víst segja, að fyrirferð þess, sem ekki tengist starfssviði utan efa sé fullt eins mikil, ef ekki meiri. Erindrekstur við skrifstofuna er nánast ótæmandi og erindi fólks af ólíkum toga. Það má með sæmilegum sanni segja, að þar sé sinnt öllu milli himins og jarðar, þó flest verkefnin séu býsna jarðbundin, og leyst er úr öllum iífsins gátum — svona innan mannlegra marka. Þetta minnir raunar mjög á stórheimili fyrri tíma, þegar húsmóðirin þurfti að hafa á öllu góða gát, svo hún fengi þann dóm að hún væri í senn hjúasæl en samt athugul og einörð. Þessum húsmæðrum virðast þær vera líkar, sem ríkjum ráða á skrifstofu Ö.B.Í. Til þeirra er leitað af fólki í alls kyns erindum, mögulegum sem ómögulegum, allt frá smæstu fyrirgreiðslu yfir í lífs- vandamálin sjálf í öllu sínu oft yfirþyrm- andi veldi. Aðeins skal í leiftursýn litið til þeirra, en ekki gleymt þeim er annars staðar ráða ríkjum og bera veg nokkurn og vanda, þó þau vilji eðlilega þoka nokkuð í mínum huga fyrir náinni návist eðalkvennanna alltsjáandi og alltgetandi. Þegar komið er inn á skrifstofuna situr þar fyrir svörum Guðríður Gísladóttir og greiðir úr vanda fólks af fjölbreytilegasta tagi. Oft er þar biðröð fólks, sem er t.d. að sækja meðölin sín, kaupa frímerki, fá hina og þessa Ieiðsögn nú eða biðja um kvinnurnar hinar, sem innar eru. Peningamálin eru hennar sérgrein enda húsaleigu- „spesialisti“ Ö.B.I. og inná milli svarar hún mjúkri rödd í símann eða vélritar „fingrum fimum með filmstjörnubros á vör“, eins og eitt sinn var ort. Innar á ganginum situr framkvæmda- stjóri Ö.B.Í. með öll þess þungu mál á herðum sér, með „lottó“ blik í ljómandi augum eins og raunar er aðaleinkennið á staðnum á eftir elskuseminni. Ásgerður Ingimarsdóttir er félags- málafrömuður skrifstofunnar og lætur sér fátt óviðkomandi. Nýliðinn, sem þekkir hana m.a. úr fyrra starfi sínu, sem ritara úthlutunar- nefndar öryrkjabifreiða, veltir því gjarnan fyrir sér hvernig og hvenær hún hafi getað sinnt því starfi með einstökum ágætum, svo erilsamt sem það var — með öllu öðru. Fundahöld, smá og stór og skipulagning kringum það, næstu skref 'í starfinu, að ógleymdum öllum viðtölunum eru hennar sérgrein svo og er hún sérfræð- ingur í að sitja fundi og lætur stundum nærri að hún sitji tvo í einu. Biðlistinn hennar eftir húsnæði er enn alltof langur og veldur ógleði oft á tíðum, en Ásgerður tekur óþoli og argi fólks með svo kristilegri ró, að hún gæti fengið verðlaun Fíladelfíu út á það, gott ef ekki 7

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.