Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.03.1988, Síða 14
Námskeið fyrir foreldra/að
standendur fatlaðra barna,
Frá því haustið 1984, hafa félögin
Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra, Styrktarfélag vangefinna og
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra staðið
fyrir námskeiðshaldi fyrir aðstandendur
fatlaðra bama. Samstarf um svo brýnt mál
varð að raunveruleika fyrir tilstuðlan
Sjálfsbjargar lsf., en á þingi Sjálfsbjargar
1984, var gerð ályktun þess efnis, að
Sjálfsbjörg skyldi beita sér fyrir foreldra-
fræðslu í samstarfi við önnur hagsmuna-
félög fatlaðra. Námskeið þessi urðu að
raunveruleika, og var fyrsta námskeiðið
haldið í Ölfusborgum í nóvember 1984.
Samstarf fyrrgreindra félaga hófst frá
og með þessu námskeiði í Ölfusborgum.
Þessi samtök mynda síðan bakhóp,
sem samanstendur af fulltrúa frá hverju
félagi, ásamt foreldrafulltrúum frá SAF-
ÍR, Styrktarfélagi vangefinna og Styrkt-
arfélagi lamaðra og fatlaðra (kvenna-
deild). Einnig situr framkvæmdastjóri
námskeiðanna alla fundi bakhópsins, og
boðar fundi eftir því hvað er að gerast, en
allar ákvarðanir varðandi námskeiðin
eru teknar í bakhóp.
Frá þessum tíma hefur þetta starf verið
stöðugt, og haldin hafa verið 15 nám-
skeið, flest í Reykjavík, en farið hefur
verið um allt land. (Akureyri, Vestfirði
og víðar). AIls hafa tekið þátt í þessum
námskeiðum um 250 foreldrar.
Þessi námskeið hafa verið svokölluð
grunnnámskeið, og hefur þar verið fjall-
að um m.a. tryggingamál, þjónustu, sál-
fræði- og læknisfræðilega hlið mála s.s.
greiningu og kreppukenningar, og einnig
hefur verið fjaliað um þjálfun og hjálpar-
tæki. Þessi námskeið voru mjög stór í
sniðum, með 6 fyrirlesurum og foreldra-
fulltrúa, auk þess sem boðið var upp á
barnagæslu, og voru börn í umsjá sér-
menntaðs starfsfólks.
Þessi námskeið tókust í alla staði ákaf-
lega vel, og var ánægja foreldra (að-
standenda) mjög mikil, en við sáum það
á því, að í lok hvers námskeiðs var gert
námskeiðsmat.
Það varð síðan úr, að okkur þótti tími
til kominn til þess að þróa þessi nám-
skeið áfram, og var settur saman vinnu-
hópur til þess að koma með tillögur um
það hvernig framhald þessara mála gæti
orðið.
Vinnu hópsins lauk s.l. sumar, og kom
hann með tillögur að fjórum nám-
skeiðum:
1. Grunnámskeið.
2. Námskeið fyrir foreldra barna á for-
skólaaldri.
3. Námskeið fyrir foreldra unglinga.
4. Fullorðinsárin.
Samþykkt var að byrja á því að hafa
námskeið fyrir foreldra forskólabarna,
svo og foreldra unglinga.
Einnig var samþykkt að Greiningar-
og ráðgjafarstöð ríkisins myndi taka yfir
grunnnámskeiðin, þar sem þeir væru í
mestum tengslum við foreldra yngri
barna svo og hefðu þeir yfirsýn yfir allar
nýfatlanir hjá börnum. Þessi námskeið
Greiningarstöðvarinnar hófust í febr. s.l.
Haldin hafa verið tvö námskeið, eitt af
hvorri gerð, (forskólabörn) (unglingar),
og voru þau haldin í nóvember 1987, en
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur
lánað Reykjadal í Mosfellssveit fyrir
námskeiðin.
Þetta eru helgarnámskeið, og er ekki
gert ráð fyrir barnagæslu eins og á fyrri
námskeiðum. Hámarksþátttaka foreldra
er 15, og er reiknað með því að foreldrar
sofi á staðnum. Einnig er reiknað með 3—
4 foreldrum utan af landi, og er þeim þá
greiddur ferðakostnaður. Fyrirlesarar eru
fjórir á hvoru námskeiði um sig, og eru
þeir þessir:
Börn á forskólaaldri.
Stefán Hreiðarsson, læknir.
Vilhelm Norðfjörð, sálfræðingur.
María Björk Ingvadóttir, félagsráðgjafi.
Guðlaug Sveinbjörnsdóttir, foreldri.
Um unglingsárin.
Sveinn Már Gunnarsson, læknir.
Tryggvi Sigurðsson, sálfræðingur.
Lára Björnsdóttir, félagsráðgjafi.
Ásta B. Þorsteinsdóttir, foreldri.
Foreldrarfulltrúarnir eru einnig fyrirles-
arar.
Námskeiðin skiptast á að vera fyrirlestr-
ar og hópvinna foreldra. Ákveðið hefur
verið að halda tvö námskeið af hvorri gerð
fram að vori.
Nýr framkvæmdastjóri hefur tekið við
námskeiðunum af Guðrúnu Ögmunds-
dóttur félagsráðgjafa og er það Kristín
Jónsdóttir þroskaþjálfi.
Allar nánari upplýsingar og innritun fer
fram í síma 91-32961 milli kl. 17.30 og
19.30.
Framkvæmdastjóri námskeiðanna
Kristín Jónsdóttir.
Sjálfsbjörg landssamband fatlaðra
Landssamtökin Þroskahjálp
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Styrktarfélag vangefinna.
Eftirtalin námskeið eru í boði:
I. FORSKÓLAALDUR — fyrstu skólaárin.
Fyrirlesarar eru:
Stefán Hreiðarsson, læknir
Vilhelm Norðfjörð, sálfræðingur
María Ingvadóttir, félagsráðgjafi
Guðlaug Sveinbjarnardóttir, foreldri
Námskeiðin eru helgarnar 19.—20. mars og 23.—24. apríl.
II. Unglingahópur.
Fyrirlesarar eru:
Sveinn Már Gunnarsson, Iæknir
Tryggvi Sigurðsson, sálfræðingur
Lára Björnsdóttir, félagsráðgjafi
Ásta B. Þorsteinsdóttir, foreldri
Námskeiðin eru helgarnar 16.—17. apríl og 7.—8. maí.
Námskeiðsstaður er Reykjadalur í Mosfellssveit
Þetta eru helgarnámskeið ætluð 15 foreldrum eða einstakl-
ingum.
Námskeiðsgjald er kr. 1 200,00. Innifalið í því er fæði,
gisting og námskeiðsgögn. Ferðakostnaður fyrir fólk utan af
landi er greiddur. Öll námskeiðin eru haldin í Reykjadal í
Mosfellssveit.
Mæting kl. 8.45 á laugardegi.
Ath. Allar nánari upplýsingar og innritun fer fram í síma 91-
32961 milli kl. 17.30 og 19.30.
14