Fréttablaðið - 22.05.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 1 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 2 . M A Í 2 0 2 0
Nýr Škoda Superb iV
Rafmagn & bensín
Verð frá 5.190.000 kr.HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/skodasalur www.skoda.is
Fjöldi manns lagði leið sína á Klambratún í gær þar sem veitingamenn höfðu lagt matarvögnum og seldu borgarbúum skyndibita. Flestir voru úlpuklæddir þrátt fyrir ágætt veður. Miðað
við veðurspána ætti þeim að vera óhætt að skilja úlpurnar eftir heima um helgina því spáð er blíðviðri á Suðvesturlandi bæði í dag og á morgun og allt að 18 stiga hita. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNMÁL Frumvarp forsætis-
ráðherra um breytingar á ýmsum
lögum um eignarráð og nýtingu
jarða mætir nokkuð harðri and-
stöðu meðal landeigenda. Meðal
markmiða frumvarpsins er að
sporna gegn of mikilli samþjöppun
í eignarhaldi lands og uppkaupum
erlendra lögaðila á íslensku jarð-
næði en undirbúningur frumvarps-
ins hófst um svipað leyti og breski
auðmaðurinn Jim Ratcliffe jók enn
við jarðeignir sínar hér í fyrra.
Í umsögnum um frumvarpið er
því haldið fram að tiltekin ákvæði
frumvarpsins fari í bága við ákvæði
stjórnarskrárinnar um eignarrétt,
atvinnufrelsi og jafnræði. Með
umsögn Veiðifélagsins Strengs í
Vopnafirði, sem er að mestu í eigu
Ratcliffes, fylgir ítarlegt lögfræðiálit
Dr. Carls Baudenbacher, fyrrver-
andi forseta EFTA-dómstólsins, sem
unnið var fyrir Streng vegna máls-
ins. Í álitinu eru færð rök fyrir því að
tiltekin ákvæði frumvarpsins fari í
bága við ákvæði EES-samningsins.
Ákvæðið sem helst sætir gagn-
rýni varðar áskilnað um samþykki
ráðherra fyrir aðilaskiptum að
landi ef kaupandi eða aðilar honum
tengdir eiga samanlagt 1.500 hekt-
ara lands fyrir. Gagnrýnt er hve opið
og vítt vald ráðherra hefur til að
samþykkja eða banna aðilaskiptin.
En í álitsgerð Bauden bachers fyrir
Streng er sérstaklega fjallað um
ákvæði þess efnis að ef kaupandi
eða tengdir aðilar eigi samanlagt
10.000 hektara lands eða meira
skuli ráðherra synja umsókn um
aðilaskipti nema unnt sé að sýna
fram á sérstaka þörf kaupanda fyrir
meira landrými.
Í álitinu segir að þótt frumvarpið
hafi í sjálfu sér lögmæt markmið,
feli 10.000 hektara hámarkið í sér
óréttlætanlega takmörkun á frjálsu
flæði fjármagns og frelsi til atvinnu-
rekstrar. Þá sé meðalhófs ekki gætt
þar sem vægari úrræði virðist til-
tæk, ákvæði frumvarpsins fari í
bága við meginreglur um jafnræði
fyrirsjáanleika laga.
„Það kemur mér ekki á óvart að
þeir sem hafa verið að safna að sér
jörðum leggist gegn takmörkunum
á slíkri samþjöppun,“ segir Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra og
bætir við:
Ég vænti þess að sérfræðingar
sem unnu málið fyrir mig muni
bregðast við þessum athugasemd-
um.“ – sar
Telur frumvarpið í andstöðu við EES
Frumvarp forsætisráðherra um takmarkanir á eignarhaldi jarða mætir andstöðu meðal hagsmunaaðila sem segja það andstætt
stjórnarskrá. Fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins segir það fara gegn EES-samningnum í áliti sem félag í eigu Jims Radcliff aflaði.
Það kemur mér
ekki á óvart að þeir
sem hafa verið að safna að
sér jörðum leggist gegn
takmörkunum á slíkri
samþjöppun eigna.
Katrín Jakobsdóttir,
forsætisráðherra