Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202024 LÍF&STARF Elín Svafa Thoroddsen er ein af Geysisfjölskyldunni í Haukadal: Rekur glæsihótel ásamt stórfjölskyldunni á uppeldisslóðum Ara fróða – Í glænýju 77 herbergja Hótel Geysi er mikil áhersla lögð á að nota afurðir beint frá bónda Geysir í Haukadal er einn af allra, allra vinsælustu ferðamanna­ stöðum landsins enda umsvifin í ferða þjónustu á staðnum mikil og alltaf verið að bæta í í því sambandi. Nýjasta byggingin á svæðinu var tekin í notkun síðasta sumar en það er glæsilegt hótel með 77 herbergjum, þar af 6 svítum. Öll herbergin eru með fallegu útsýni yfir sveitina. Þar er áhersla líka lögð á að nota afurðir beint frá bónda. Elín Svafa Thoroddsen er ein af Geysisfjölskyldunni og settist hún niður með blaðamanni til að fara yfir sögu svæðisins, stöðuna í dag og framtíðina. Elín er kona Sigurðar Mássonar frá Geysi en hann er sonur þeirra Sigríðar Vilhjálmsdóttur og Más Sigurðssonar, sonar Sigurð­ ar glímukóngs Íslands, sem var frumkvöðull í uppbyggingu ferða­ þjónustu í Haukadal. Þau eiga fjórar dætur en þær eru: Sara Jasmín, 18 ára, Saga Natalía, 8 ára, Emelía Ísold, 5 ára og Antonía Elín, 4 ára. Með embættispróf í lögfræði - En hvar er Elín Svafa upprunnin? „Ég er fædd í Reykjavík en flutti síðan í Garðabæinn þar sem ég bjó þangað til ég flutti á Geysi í Haukadal árið 2010. Eftir útskrift úr Verslunarskóla Íslands hóf ég nám í lögfræði. Ég útskrifaðist með embættispróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008. Lokaritgerðin mín var á sviði mannréttinda í viðskiptum og bar titilinn: „Responding to the human rights challenges of being a foreign owned Internet company in China.“ Áhugasvið mitt í lögfræði er á sviði mannréttinda í viðskipt­ um. Ég starfaði sem lögfræðingur eftir útskrift hjá embætti Tollstjóra en meðfram námi starfaði ég hjá Sýslumanninum í Hafnarfirði og hjá dóms­ og kirkjumálaráðu­ neytinu. Í dag starfa ég hjá Hótel Geysi og hef gert það núna í tíu ár. Þekking mín og reynsla úr lögfræðinni nýtist vel í rekstri fyrirtækisins og hef ég komið að ýmsum störfum innan fyrirtækis­ ins, til dæmis markaðsmálum og fjármálum. Ég sit einnig í stjórn Geysir Glímu sem og í stjórn Hótel Geysis,“ segir Elín. Foreldrar hennar eru þau Bjarni Thoroddsen, framkvæmdastjóri Stálsmiðjunnar/Framtaks og Ástríður H. Thoroddsen, formaður skólastjórnar Hússtjórnarskólans í Reykjavík og stjórnarkona og ritari mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Systkini Elínar eru þau Eyjólfur Már Thoroddsen, ljósmyndari og eigandi ferðaþjónustufyrirtækis­ ins Arctic Advanced, og Bryndís Erna Thoroddsen, félagsráðgjafi og deildarstjóri Njálsgötu og Hringbrautar, sem eru úrræði fyrir heimilislausa með miklar og flókn­ ar þjónustuþarfir. Ari fróði er ættfaðir Haukdæla - Haukadalur er þekktur sögu- staður á Íslandi en fyrir hvað er staðurinn þekktastur fyrir? „Já, Haukdælir voru ein helsta valdaætt landsins frá því á landnámsöld og fram undir lok 13. aldar. Þeir eru kenndir við Haukadal í Biskupstungum en komnir í beinan karllegg frá Ketilbirni gamla, landnámsmanni á Mosfelli í Grímsnesi. Teitur sonur hans er sagður hafa byggt fyrstur bæ í Skálholti. Sonur hans var Gissur hvíti Teitsson, sem kom mikið við sögu kristnitökunnar og var faðir Ísleifs Gissurarsonar, fyrsta biskupsins í Skálholti. Einn þriggja sona Ísleifs var Gissur Ísleifsson biskup en annar var Teitur prestur í Haukadal, fósturfaðir Ara fróða, og hann er talinn ættfaðir Haukdæla. Teitur Ísleifsson, stofnað fyrsta lærdóms­ setrið hér á landi. Á Sturlungaöld voru þeir ein af fáum áberandi valdaættum í landinu og voru lengst af í bandalagi við Ásbirninga gegn Sturlungum,“ segir Elín þegar hún rifjar upp söguna af staðnum. Glímukóngurinn Sigurður Greipsson Sigurður Greipsson var glímukóngur Íslands 1922–1927 og stofnaði þá íþróttaskólann í Haukadal sem hann rak til 1969. Hann keppti fyrst opin­ berlega 13 ára gamall og stóð hann sig svo vel að hinir eldri og reyndari glímumenn áttu fullt í fangi með að verjast brögðum hans og fimi. Sigurður lærði við Hóla í Hjaltadal og æfði þar af kappi enda gæddur óþrjótandi íþróttaáhuga. Hann nam svo íþróttafræði við lýðháskólann í Voss veturinn 1919–1920 og við Íþróttaskóla Niels Bukhs í Ollerup í Danmörku. Samhliða búskap og skóla­ stjórn var Sigurður mjög virkur í æskulýðsmálum og var meðal annars formaður Héraðs sam ­ bandsins Skarphéðins (HSK) í 44 ár, starfaði í stjórn Ung menna­ félags Íslands og var stjórnarmaður í Íþróttasambandi Íslands. Hann hlaut riddarakross Fálkaorðunnar árið 1959 og var kjörinn heiðurs­ formaður HSK árið 1966. Sigurður fékk sæmdar heitið Glímukóngur Íslands árið 1922 þegar hann sigr­ aði keppnina um Grettisbeltið. Hann varð glímukappi Íslands fimm sinnum og tók þátt í tveim­ ur glímuförum til Danmerkur og Noregs. Dagurinn byrjaði með Müllers-æfingum Sigurður rak íþróttaskólann ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Bjarna­ dóttur, í samfellt 43 ár og munu um 900 nemendur hafa útskrifast þaðan. Einnig lét Sigurður gera sundlaug, var hún grafin niður á fasta hrúðurklöpp og veggir hlaðnir úr mýrarhnausum. Á þessum árum var enginn vegur heim að Haukadal og reyndar voru Biskupstungur að mestu óvegaðar. Nægur jarðhiti var hins vegar á Geysi og vatnsafl til virkjunar fyrir hendi. Árið 1932 var rafstöð byggð við Beiná og nýtti hann einnig hverahitann til upphitunar. „Dagurinn byrjaði með Müllers­ æfingum klukkan átta, svo var kennd heilsufræði, íþróttasaga, reikning­ ur, íslenska, danska, bókfærsla og landafræði. Eftir hádegisverð tóku við íþróttir úti og glíma fram að kaffi. Sigurður kenndi sjálfur allar íþróttir og íþróttasögu. Hann lagði mikla áherslu á að stæla og herða nemendur og beitti fortölum og hvatningu til að fá þá til að leggja sig alla fram. Sigurður vandi nemendur sína á að hlaupa úr íþróttasalnum í sundlaugina, 20 metra, sama hvernig veðrið var,“ segir Elín brosandi. Árið 1945 var íþróttaskólinn stækkaður og byggt vandað steinhús með leikfimisal og íbúð. Friðrik 8. konungur heimsótti Geysi 1907 Sigurður Greipsson var augljóslega einn af frumkvöðlunum í ferða­ þjónustu á Íslandi, því aðeins þrettán ára gamall var hann sendur norður í fjöll með hesta til að sækja erlenda ferðamenn, átti hann að koma niður í Eyjafjörð. Hann hafði aldrei farið þessa leið áður, var sagt vel til en villtist af leið og kom niður í Timburvalladal sem gengur út úr Fnjóskadal. Þar fór hann niður dalinn, komst til byggða og var vísað á réttar slóðir. Einnig fylgdi hann útlendingum frá Haukadal norður yfir, allt til Akureyrar og rak svo hestana lausa suður. Hann var einn fyrsti bóndinn á Íslandi sem hafði starf af að sinna ferðamönnum og fylgja þeim um landið. „Já, frá því að hann settist að á Söndunum við Geysi árið 1927 og fram á síðustu æviár sín rak hann þar veitingasölu. Þegar von var á Friðriki 8. konungi að Geysi sumarið 1907 var byggt konungshús sem stóð lengi og kom ferðamönnum í góðar þarfir. Sigurður nýtti skólahúsið fyrir ferðaþjónustu á sumrin og stundaði ferðamannaleiðsögn,“ segir Elín. Már og Sigríður tóku við Sonur Sigurðar, Már Sigurðsson, tók við rekstrinum á Geysissvæðinu ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Vilhjálmsdóttur. Már var einnig íþróttakennari eins og faðir sinn en hóf uppbyggingu á ferðaþjónustu við Geysi í Haukadal árið 1972 og helgaði sig uppbyggingunni frá ár­ inu 1993. Nöfn Sigríðar og Más eru samofin sögu ferðaþjónustu á Íslandi og voru þau miklir brautryðjendur og frumkvöðlar á sviði ferðaþjón­ ustu á Íslandi. Löngu áður en farið var að líta á hana sem alvöru at­ vinnugrein tóku þau daglega á móti fjölda innlendra og erlendra gesta og buðu upp á gistingu, mat og fræðslu. Sannfærð um að ferðamönnum ætti eftir að fjölga til muna á komandi Nýjasta byggingin á Geysissvæðinu, Hótel Geysir, sem er 77 herbergja hótel með sex svítum. Mynd / Eyjólfur Már Thoroddsen Elín Svafa Thoroddsen og fjórar dætur þeirra Sigurðar, þær Sara Jasmín, Saga Natalía, Emelía Ísfold og Antonía Elín. Mynd / Eyjólfur Már Thoroddsen

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.