Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202032 Bændur þurfa líka að lifa! – Herhvöt ungu mannanna! „Enginn bóndi, enginn sjómaður, ekkert líf. Ísland er að verða eitt besta landbúnaðar land heimsins; ,,vitið þér það?“ Grasræktarland, rigningar land, kuldinn er auðlind, kalda og heita vatnið og búf jár­ stofnarnir fjársjóður. Ekkert eitur í móðurjörð. Minnsta pensilín notkun í dýr í heiminum, ekkert pensilín í fóður.“ Svona hljómaði upphringingin frá vini í útlöndum þennan örlaga­ ríka morgun. En það var venjulegur mánudagur í febrúar, vikan að byrja og ég er að aka yfir Hellisheiði í slyddu sem von bráðar mun breytast í rigningu. Að hitta unga bændur Síminn hringir og ég svara, heyri ungs manns rödd hinum megin, hann kynnir sig, Birgir Þór Haraldsson, bóndi á Kornsá í Vatnsdal. Erindið er að bjóða mér með sér síðdegis upp í hreppa og tungur að hitta unga bændur, sauðfjárbændur. Hann segist verða kominn á Selfoss klukkan sex, ég slæ til og segist bíða á gamla Bellubar, sem enn ber nafn Bellu vinkonu minnar frá Kjartansstöðum, sem lifir í hárri elli. Bóndinn á Kornsá er barnungur sauðfjárbóndi og rennur blóðið til skyldunnar að berjast fyrir landbúnaði og bættum kjörum bænda. Hann segir að fyrst munum við aka upp að Götu í Hrunamannahreppi þar séu vaskir drengir að smíða, þeir Trausti Hjálmarsson í Austurhlíð og Rúnar Björn Guðmundsson á Vatns leysu og þar muni bætast í hóp inn Jón Bjarnason, hrepps nefndarmaður, galvaskur Sjálfstæðismaður af framsóknarkyni frá Seglbúðum og Skipholti ásamt Aðalsteini Orra Arasyni úr Skagafirði og af Vaðbrekkukyni. Smiðirnir eru að ljúka störfum svo við tökum snarpan fund um stöðu landbúnaðarins og mikilvægi hans í matvælaframleiðslu landsins og fæðuöryggi. Það liggur við að ungu mennirnir jarmi, svo mikill er áhugi þeirra á að reisa sauðfjárbúskapinn og landbúnaðinn úr félagslegri nauð eigin samtaka og hann verði ekki áfram niðursetningur í horni ríkis­ stjórnarinnar. Við tökum djarfa ákvörðun strax þarna í Götu, enda við hæfi þar sem Grímur Sæmund­ sen í Bláa Lóninu er eigandi viðburða hússins og sá hefur nú lyft grettistaki í ferðaþjónustunni. Strákarnir verða sammála um slagorð fyrir uppreisnina og baráttuna; „Bændur verða líka að lifa.“ Þeir segja að það sé óboðlegt að borga aðeins 450 krónur til bóndans á kílóið af besta lambakjöti heimsins, sannkallaðri villibráð. Lambakjöt er ekki „hænsnamatur á hundafati“ svo vitnað sé til orða þess merka manns Helga heitins Haraldssonar á Hrafnkelsstöðum. Bæði hryggur og lambalæri ættu að vera á pari við dýrustu nautasteik, segja þeir. Trausti upplýsir að reiknað tap sauðfjárbænda út frá vísitölu séu sjö milljarðar á sjö árum, eða einn milljarður á ári. Úps, heyrist í smið unum. Ég sting því upp á 750 kr. á kíló í haust og ekkert lamb í sláturhús fyrr en öll félögin hafi fallist á verðið. Í Færeyjum fá bændur 1.890 kr. á kílóið hef ég eftir bóndanum í Kirkjubæ. Þeir halda að sláturleyfis hafar og gömlu bændurnir verði þessu mótfallnir og verslunin brjáluð. Við verðum sammála um að þetta sé eins og hver önnur verkalýðsbarátta upp á líf og dauða og, „verður sé bóndinn launa sinna“, verðið er slegið 750 kr. á kíló. Sauðkindin er félagsmálatröllið Þá höldum við að Langholtskoti, þar stendur til að sóna gemlinga Unnsteins bónda, mættur er Gunnar Björnsson, bóndi á Sandfelli í Öxar­ firði ásamt Rögnvaldi Leifssyni, ungum manni frá Leifsstöðum í sömu sveit. Gunnar segir það sannkallaða skemmtiferð að koma suður og hitta bændur og sóna féð. Hann sér allt í galdratækinu hvenær lömbin komu undir upp á dag. Og þarna eru mættir Bjarni Valur Guðmundsson í Skipholti og Eiríkur Kristófersson á Grafarbakka, einn fjárflesti bóndinn í hreppnum. Okkur er fagnað og Unnsteinn bóndi segir að mikil hamingja og félagslíf fylgi blessaðri sauðkindinni, hann finni það best eftir að hann tók fé aftur. Hann hafði fengið sér 16 gimbrar í haust og einn hrút. Útkoman er góð, ein geld allar hinar tvílembdar og aðeins ein einlembd. Fallegur kollóttur hrútur hefur misst tign sína, strax orðinn sauður því ræktunin gengur best séu hrútar ekki hafðir gamlir. Við ræðum um ofeldi búfénaðarins, offeitar ær eru oftar geldar. Ofeldi borgar sig illa á mönnum og skepnum og Kári Stefánsson segir þetta vera heimsku. Við drekkum kaffi undir mynd inni af föður Unnsteins, Hermanni Sigurðssyni, á einum frægasta gæðingi Íslands, Blæ frá Langholtskoti. Við ræðum hvernig sauðfjárbyggðirnar eru að fara í eyði, jarðirnar falli út hver af annarri því lífskjörin séu ekki ungu fólki boðleg. Og þeir halda að það sé rétt hjá mér að Kínverjar kunni að byggja íslenskar sveitir í framtíðinni og flytja kjötið út um Finnafjörð. Nú sé ástandið fyrir norðan ekki gott því þeirra gamli foringi sauðfjárbændanna, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum og Fjóla kona hans, skipti rúmi sínu, hún sofi Ratklifsmegin en hann Íslandsmegin. Landið er á förum úr höndum bændanna. EES­ samningurinn gaf enga undanþágu og nú er Ísland þetta náttúruundur þar sem auðjöfrar geta á einni nóttu keypt upp heilu héruðin, eins og Þistilfjörð,Vopnafjörð eða bara Hrunamannahreppinn. Fálkinn er floginn af gaflinum Næst er ferðinni heitið að Vatnsleysu til Rúnars bónda Guðmundssonar en hann hefur byggt eitt glæsilegasta fjárhúsið í landinu. Við göngum inn í helgidóminn, förum í bláa sokka á fæturna en setjum ekki upp bláu höndina, allt er snurfusað og fínt, ærnar fallegar og loftslagið heilnæmt eins og á besta hóteli. Strax vekur það athygli mína að fálkinn, merki Sjálfstæðisflokksins, er horfinn af gaflinum. En í þessu fjárhúsi var haldinn frægasti stjórnmálafundurinn fyrir síðustu kosningar, Bjarni Benediktsson stóð undir ránfuglinum og boðaði mönnum trú og bændum bjartsýni. Aftari röð frá vinstri: Jón Bjarnason, Birgir Þór Haraldsson, Trausti Hjálmarsson. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Svanhvít Jónasdóttir, Guðni Ágústsson og Kristín Magnúsdóttir. Ungu Sjálfstæðismennirnir í fjárhúsinu á Vatnsleysu við gaflinn þar sem fálkinn var. Birgir Þór Haraldsson, Aðalsteinn Orri Arason, Jón Bjarnason og Rúnar Björn Guðmundsson bóndi. Í fjárhúsinu í Langholtskoti. F.v. Unnsteinn Hermannsson, Bjarni Guðmundsson, Gunnar Björnsson, Rögnvaldur Leifsson, Jón Bjarnason, Birgir Þór Haraldsson, Guðni Ágústsson og Eiríkur Kristófersson. Trausti Hjálmarsson með forystu­ sauðinn Keisara. Hermann Sigurðsson í Langholtskoti á Blæ 1966 á Landsmóti hestamanna á Hólum. LESENDABÁS – Í HEIMSÓKN HJÁ SAUÐFJÁRBÆNDUM

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.