Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 202032
Bændur þurfa líka að lifa! – Herhvöt ungu mannanna!
„Enginn bóndi, enginn sjómaður,
ekkert líf. Ísland er að verða eitt
besta landbúnaðar land heimsins;
,,vitið þér það?“ Grasræktarland,
rigningar land, kuldinn er auðlind,
kalda og heita vatnið og búf jár
stofnarnir fjársjóður. Ekkert
eitur í móðurjörð. Minnsta
pensilín notkun í dýr í heiminum,
ekkert pensilín í fóður.“
Svona hljómaði upphringingin
frá vini í útlöndum þennan örlaga
ríka morgun. En það var venjulegur
mánudagur í febrúar, vikan að byrja
og ég er að aka yfir Hellisheiði í
slyddu sem von bráðar mun breytast
í rigningu.
Að hitta unga bændur
Síminn hringir og ég svara, heyri
ungs manns rödd hinum megin, hann
kynnir sig, Birgir Þór Haraldsson,
bóndi á Kornsá í Vatnsdal. Erindið
er að bjóða mér með sér síðdegis
upp í hreppa og tungur að hitta
unga bændur, sauðfjárbændur.
Hann segist verða kominn á Selfoss
klukkan sex, ég slæ til og segist
bíða á gamla Bellubar, sem enn
ber nafn Bellu vinkonu minnar frá
Kjartansstöðum, sem lifir í hárri
elli.
Bóndinn á Kornsá er barnungur
sauðfjárbóndi og rennur blóðið til
skyldunnar að berjast fyrir landbúnaði
og bættum kjörum bænda. Hann
segir að fyrst munum við aka upp
að Götu í Hrunamannahreppi þar
séu vaskir drengir að smíða, þeir
Trausti Hjálmarsson í
Austurhlíð og Rúnar
Björn Guðmundsson á
Vatns leysu og þar muni
bætast í hóp inn Jón Bjarnason,
hrepps nefndarmaður, galvaskur
Sjálfstæðismaður af framsóknarkyni
frá Seglbúðum og Skipholti
ásamt Aðalsteini Orra Arasyni úr
Skagafirði og af Vaðbrekkukyni.
Smiðirnir eru að ljúka störfum
svo við tökum snarpan fund um
stöðu landbúnaðarins og mikilvægi
hans í matvælaframleiðslu landsins
og fæðuöryggi.
Það liggur við að ungu mennirnir
jarmi, svo mikill er áhugi þeirra
á að reisa sauðfjárbúskapinn og
landbúnaðinn úr félagslegri nauð
eigin samtaka og hann verði ekki
áfram niðursetningur í horni ríkis
stjórnarinnar. Við tökum djarfa
ákvörðun strax þarna í Götu, enda
við hæfi þar sem Grímur Sæmund
sen í Bláa Lóninu er eigandi
viðburða hússins og sá hefur nú
lyft grettistaki í ferðaþjónustunni.
Strákarnir verða sammála
um slagorð fyrir uppreisnina og
baráttuna; „Bændur verða líka
að lifa.“
Þeir segja að það sé óboðlegt
að borga aðeins 450 krónur til
bóndans á kílóið af besta lambakjöti
heimsins, sannkallaðri villibráð.
Lambakjöt er ekki „hænsnamatur
á hundafati“ svo vitnað sé til orða
þess merka manns Helga heitins
Haraldssonar á Hrafnkelsstöðum.
Bæði hryggur og lambalæri ættu að
vera á pari við dýrustu nautasteik,
segja þeir.
Trausti upplýsir að reiknað tap
sauðfjárbænda út frá vísitölu séu
sjö milljarðar á sjö árum, eða einn
milljarður á ári. Úps, heyrist í
smið unum. Ég sting því upp á 750
kr. á kíló í haust og ekkert lamb
í sláturhús fyrr en öll félögin hafi
fallist á verðið.
Í Færeyjum fá bændur
1.890 kr. á kílóið hef ég eftir
bóndanum í Kirkjubæ. Þeir halda
að sláturleyfis hafar og gömlu
bændurnir verði þessu mótfallnir
og verslunin brjáluð. Við verðum
sammála um að þetta sé eins og
hver önnur verkalýðsbarátta upp á
líf og dauða og, „verður sé bóndinn
launa sinna“, verðið er slegið 750
kr. á kíló.
Sauðkindin er félagsmálatröllið
Þá höldum við að Langholtskoti,
þar stendur til að sóna gemlinga
Unnsteins bónda, mættur er Gunnar
Björnsson, bóndi á Sandfelli í Öxar
firði ásamt Rögnvaldi Leifssyni,
ungum manni frá Leifsstöðum í
sömu sveit.
Gunnar segir það sannkallaða
skemmtiferð að koma suður og
hitta bændur og sóna féð. Hann sér
allt í galdratækinu hvenær lömbin
komu undir upp á dag. Og þarna eru
mættir Bjarni Valur Guðmundsson í
Skipholti og Eiríkur Kristófersson á
Grafarbakka, einn fjárflesti bóndinn
í hreppnum.
Okkur er fagnað og Unnsteinn
bóndi segir að mikil hamingja
og félagslíf fylgi blessaðri
sauðkindinni, hann finni það best
eftir að hann tók fé aftur. Hann hafði
fengið sér 16 gimbrar í haust og
einn hrút. Útkoman er góð, ein geld
allar hinar tvílembdar og aðeins ein
einlembd. Fallegur kollóttur hrútur
hefur misst tign sína, strax orðinn
sauður því ræktunin gengur best séu
hrútar ekki hafðir gamlir.
Við ræðum um ofeldi
búfénaðarins, offeitar ær eru
oftar geldar. Ofeldi borgar sig
illa á mönnum og skepnum og
Kári Stefánsson segir þetta vera
heimsku.
Við drekkum kaffi undir
mynd inni af föður Unnsteins,
Hermanni Sigurðssyni, á einum
frægasta gæðingi Íslands, Blæ
frá Langholtskoti. Við ræðum
hvernig sauðfjárbyggðirnar eru að
fara í eyði, jarðirnar falli út hver
af annarri því lífskjörin séu ekki
ungu fólki boðleg. Og þeir halda
að það sé rétt hjá mér að Kínverjar
kunni að byggja íslenskar sveitir í
framtíðinni og flytja kjötið út um
Finnafjörð.
Nú sé ástandið fyrir norðan
ekki gott því þeirra gamli foringi
sauðfjárbændanna, Jóhannes
Sigfússon á Gunnarsstöðum og
Fjóla kona hans, skipti rúmi sínu,
hún sofi Ratklifsmegin en hann
Íslandsmegin. Landið er á förum
úr höndum bændanna. EES
samningurinn gaf enga undanþágu
og nú er Ísland þetta náttúruundur
þar sem auðjöfrar geta á einni nóttu
keypt upp heilu héruðin, eins og
Þistilfjörð,Vopnafjörð eða bara
Hrunamannahreppinn.
Fálkinn er floginn af gaflinum
Næst er ferðinni heitið að
Vatnsleysu til Rúnars bónda
Guðmundssonar en hann hefur
byggt eitt glæsilegasta fjárhúsið
í landinu. Við göngum inn
í helgidóminn, förum í bláa
sokka á fæturna en setjum
ekki upp bláu höndina, allt er
snurfusað og fínt, ærnar fallegar
og loftslagið heilnæmt eins
og á besta hóteli. Strax vekur
það athygli mína að fálkinn,
merki Sjálfstæðisflokksins, er
horfinn af gaflinum. En í þessu
fjárhúsi var haldinn frægasti
stjórnmálafundurinn fyrir síðustu
kosningar, Bjarni Benediktsson
stóð undir ránfuglinum og boðaði
mönnum trú og bændum bjartsýni.
Aftari röð frá vinstri: Jón Bjarnason, Birgir Þór Haraldsson, Trausti Hjálmarsson. Fremri röð frá vinstri: Guðrún
Svanhvít Jónasdóttir, Guðni Ágústsson og Kristín Magnúsdóttir.
Ungu Sjálfstæðismennirnir í fjárhúsinu á Vatnsleysu við gaflinn þar sem
fálkinn var. Birgir Þór Haraldsson, Aðalsteinn Orri Arason, Jón Bjarnason
og Rúnar Björn Guðmundsson bóndi.
Í fjárhúsinu í Langholtskoti. F.v. Unnsteinn Hermannsson, Bjarni Guðmundsson, Gunnar Björnsson, Rögnvaldur
Leifsson, Jón Bjarnason, Birgir Þór Haraldsson, Guðni Ágústsson og Eiríkur Kristófersson.
Trausti Hjálmarsson með forystu
sauðinn Keisara.
Hermann Sigurðsson í Langholtskoti
á Blæ 1966 á Landsmóti hestamanna
á Hólum.
LESENDABÁS – Í HEIMSÓKN HJÁ SAUÐFJÁRBÆNDUM