Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. febrúar 2020 7
Plast eða annað rusl sést iðulega við þjóð-
vegi landsins þar sem það hangir á girðing-
um, í trjám eða liggur í skurðum og á víða-
vangi. Lesandi Bændablaðsins segir mikið
um plastmengun á Kjalarnesi.
Lesandi Bændablaðsins sendi blaðinu línu
þar sem hann benti á að plastrusl og ekki síst
rúlluplast væri áberandi á Kjalarnesi. Hann
benti einnig á að erindi vegna plastmengunar
innar í Kjalarnesi hefði margoft verið sent á
Reykjavíkurborg undanfarin ár en að ekkert
hafi verið gert í málinu.
„Þannig er að mjög mikið er um að heyrúll
ur, þar sem ekki hefur verið gengið frá lausum
plastendum, séu látnar standa úti hér um allt
Kjalarnes á veturna og yfirleitt endar það á
sama veg, þ.e.a s. plastið fýkur af rúllun
um og dreifist á stór svæði, festist í trjám og
girðingum og er svo mikil lýti og mengun að
það er ólýsanlegt. Fullt af fólki í sjálfboða
vinnu eyðir svo sínum frítíma í að tína þetta
upp á vorin.
Svo eru fjölmörg dæmi um að hrossum sé
gefið úti og er þá plastið ekki einu sinni fjar
lægt heldur fýkur það sína leið þegar hrossin
hafa lokið við heyið.
Ég hef sjálfur
tilkynnt það mál
í nokkur skipti en
án árangurs.
Núna eftir
föstudagsveðrið
er ástandið hræði
legt. Hvert sem
litið er er plast.
Svæðið sem er
venjulega verst
er frá Móum og
að Grundarhverfi
og svo þegar
keyrt er niður að
Brautarholti er
heill hellingur af
heyrúllum bæði
frá seinasta sumri
og eldri sem eru
að verða plastlausar.
Ég er sjálfur uppalinn í sveit og get staðið
við það að það að geyma heyrúllur úti á túni
yfir veturinn er í besta falli slóðaskapur. Til
hvers eru þessir menn að leggja tíma og pen
ing í að heyja og þurfa svo að henda rúllunum
ár eftir ár þegar plastið er fokið um allt? Það
standa gamlar ónýtar rúllur sem augljóslega
verða ekki notaðar í þyrpingum við veginn
niður að SÁÁ, til móts við Saltvík Esjumegin
og hellingur á leið út að Brautarholti sem eiga
bara eftir að dreifast enn meir.“ /VH
LÍF&STARF
Sveinn Ásgeirsson stýrði um árabil þætti sem nefndist „Vel mælt“. Til viðtals hjá Sveini komu margir hag
yrðingar og skáld þess tíma. Sveinn sendi
hinum virku vinstrimönnum, Kristjáni
frá Djúpalæk og Rósberg G. Snædal,
vísu sem ætluð var til að espa þá félaga til
kveðskapar:
Magnast himins myrkravöld
mjög til allra fanga,
starir á oss stjörf og köld
Stalíns afturganga.
Ekki stóð á viðbrögðum þeirra félaga.
Rósberg svaraði að bragði:
Austur í Moskvu eigið þér
afturgöngur flestar,
en á móti ógna mér
aðrar nær- og vestar.
Og Kristján kvað til svars með þremur
vísum:
Aldrei myndu augu blíð
ykkur lengi skína,
fer hér eins og forðum tíð,
fjandinn þekkir sína.
Aldrei vandur vinum að
var sá Kremlar-DÝI,
enda niður kappann kvað
Krúsi á fylleríi.
Að því mætti gjarnan gá,
guðir koma, fara,
bráðum ykkur brostin á
beggja augu stara.
Í einum öðrum þætti Sveins Ásgeirssonar
„Vel mælt“ orti Einar frá Ósi:
Sá er munur mönnum á
sem meta ljóð og ríma,
að atómskáldið er ennþá
á undan sínum tíma.
Allt í hófi er einna best,
einnig stakan fleyga.
Afdrif gætu orðið flest
sem ofnautn gullna veiga.
Á fundi í Sjálfstæðisfélaginu flutti Knútur
Otterstedt rafveitustjóri klukkutíma erindi
um rafmagnsmál, sem eðlilega var mjög
hlaðið útreikningum og talnaformúlum.
Jakob Ó. Pétursson, Árni Böðvarsson
og Bjarni frá Gröf sem og Gísli Árnason
sátu þennan fund í Sjálfstæðisfélaginu, en
höfðu allir verið í fagnaði (Varðarafmæli)
kvöldið áður. Undir fyrirlestri Knúts sótti
mjög svefn að fundarmönnum, en ekki
svo að þeir næðu ekki að yrkja sig frá
leiðindunum. Jakob Ó. orti svo:
Ákaft svefninn sækir á,
sumir eru að falla í dá,
enginn loka augum má,
yrði Knútur vondur þá.
Árni Böðvarsson átti næsta leik:
Ef að sækir svefninn á,
súptu betur glasi á.
Í sjóinn rennur sérhver á,
sem að Knútur bendir á.
Flutti tölur, ótt bar á,
enginn brosti á meðan,
en það streymdi okkur hjá
ofan garðs og neðan.
Þá var komið að Bjarna frá Gröf:
Rafurmagns ég ræðu naut,
ríkt á Knútur lofið.
Eitt er víst að enginn hraut,
þótt ýmsir hafi sofið.
Gísli Árnason átti næsta innlegg:
Hann er að verða húmorslaus,
hárið þunnt og gisið.
Þegar Bjarni hengir haus
hátt er ekki risið.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
244MÆLT AF
MUNNI FRAM
Lesandi Bændablaðsins sendi blaðinu línu þar sem hann benti á að plastrusl
og ekki síst rúlluplast væri áberandi á Kjalarnesi.
Miklar veðurskemmdir á Suðurlandi
í veðurofsanum 14. febrúar
Töluverðar skemmdir urðu í ofsaveðrinu
á Suðurlandi sem gekk yfir landið 14.
febrúar. Einhverjir hefðu þó getað búist
við meira tjóni miðað við hvað spáin
var slæm og víða rauðar viðvaranir.
Rafmagnsleysi kom sér víða illa í sveitum
og þá var mikið um að tré brotnuðu og
rúður í gróðurhúsum.
Ríkislögreglustjóri hafði lýst yfir óvissu
stigi almannavarna fyrir allt landið vegna
aftakaveðurs föstudaginn 14. febrúar. Rauð
veðurviðvörun var gefin út fyrir stóran hluta
Vesturlands, höfuðborgarsvæðið og austur
með suðurströnd landsins. Óveðrið hafði
víðtæk áhrif á landinu þar sem samgöngur
og almennur rekstur fór úr skorðum.
Viðvaranir Veðurstofu Íslands og
Almanna varna gerðu það að verkum að fólk
var viðbúið. Án efa hefur það komið í veg
fyrir enn meira tjón en þó varð og hugsanleg
slys á fólki. /HKr./MHH Stór og gömul tré rifnuðu upp með rótum í Laugarási í Bláskógabyggð í veðurhamnum, sem
lýsir best hvað veðrið var rosalega vont. Mynd / Páll Skúlason.
Súrheysturninn á bænum Skíðbakka II í Austur-Landeyjum beyglaðist saman í rokinu og var
í kjölfarið togaður niður. Turninn, sem var 21 metri á hæð og 18 tonn að þyngd, hefur verið á
Skíðbakka í rúmlega 30 ár. Hann var notaður undir korn og sem fjarskiptamastur hin síðari ár.
Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Hlaða á bænum Minna-Hofi á Rangárvöllum splundraðist í veðrinu og gaflinn úr fjárhúsinu fauk
úr. Engin kind slasaðist eða meiddist í hamaganginum. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Tugir rafmagnsstaura brotnuðu og ollu raf-
magnsleysi, m.a. í Landeyjunum, undir Eyja-
fjöllum, í Mýrdalshreppi og í Skaftárhreppi.
Margir staurar brotnuðu austan við Hvolsvöll
þar sem þessi mynd var tekin. Mynd / MHH
Öllum útköllum og björgunaraðgerðum á
Suður landi var stýrt frá almannavarnateymi,
sem er með sína aðstöðu í Björgunarmiðstöð-
inni á Selfossi. Mynd / MHH