Bændablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 1
4. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 20. febrúar ▯ Blað nr. 557 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Landssambandi kúabænda torveldað að fylgjast með innflutningi á hráu kjöti sem heimilaður var um áramót:
Tollgæslustjóri hafnar beiðni um aðgang að
upplýsingum um innflutning á ófrosnu kjöti
– Eftirlit sagt fara hægt af stað hjá MAST en leitað verði eftir upplýsingum hjá tollinum
Landssamband kúabænda (LK)
hefur verið að reyna að fylgjast
með breytingum á innflutningi
vegna afnáms frystiskyldu á
kjötafurðir samkvæmt lögum
sem tóku gildi núna um áramótin.
Þrátt fyrir margítrekaðar til
raunir hefur þessum hagsmuna
aðila reynst ókleift að fá upp
lýsingar hjá eftirlitsaðilum auk
þess sem embætti Tollstjóra
neitar að veita slíkar upplýsingar.
Samkvæmt gögnum sem
Bændablaðið hefur undir höndum
virðist ómögulegt að fá þessar
upplýsingar sem næst rauntíma
frá opinberum aðilum og virðist
opinbert eftirlit með þessum inn
flutningi algjörlega háð upplýsinga
gjöf innflytjenda sjálfra. Er hags
muna aðilum einungis boðið upp
á samantekt innflutningstalna frá
Hagstofu Íslands, sem verða orðnar
nærri tveggja mánaða gamlar þegar
þær birtast.
Umdeildur innflutningur
Forsaga málsins er að gerðar voru
breytingar á lögum þar sem fallist
er á að farið verði að regluverki
Evrópusambandsins varðandi við
skipti m.a. með hráar kjötvörur og
egg á milli aðildarlandanna. Þar
með var afnumin sú vörn gegn
innflutningi sjúkdóma sem talin
var felast í frystiskyldu á kjöti.
Vísindamenn vöruðu við þessum
gjörningi og í könnunum kom í ljós
að meirihluti Íslendinga var þeim
sammála.
Í frétt í Bændablaðinu þann 9.
janúar sl. kom fram að Matvæla
stofnun er ekki lengur með inn
flutningseftirlit á vörum eins og
kjöti og eggjum þar sem þessar
vörur eru nú í frjálsu flæði ef þær
koma frá EESlöndum. Þar segir
einnig að samkvæmt reglum um
innflutn ing á fersku kjöti bera
innflytjendur því sjálfir ábyrgð
á að reglum um salmonellu og
kampýlóbakter sé fullnægt með
vottun um að svo sé. Vottanirnar
eru svo á ábyrgð fram leiðenda og
dreifingaraðila erlendis.
Eftirlit sagt fara hægt af stað
Höskuldur Sæmundsson, starfs
maður LK, hefur sent margítrekaðar
fyrirspurnir til stofnana ríkisins
sem fara eiga með þetta mál.
Hagstofa Íslands birtir ekki tölur
um innflutt matvæli í janúar fyrr
en um mánaðamótin febrúar/mars.
Matvælastofnun (MAST) svaraði
því til að stofnunin muni í samvinnu
við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
fylgjast með markaðssetningu
á kjöti og vera með sérstakt
verkefni fyrstu mánuði ársins við
skjalaskoðun og sýnatökur. Í svari
MAST til fulltrúa LK segir m.a.:
„Þetta virðist hins vegar hafa
farið hægt af stað. Eftirlitið mun
fylgjast með hjá dreifingaraðilum
og einnig verður leitað upplýsinga
hjá tolli. Þeir sem hyggjast flytja
kjöt til landsins hafa einnig verið
duglegir við að afla upplýsinga
um kröfur og þá hafa verið
haldnir kynningarfundir fyrir
hagsmunaaðila. Það er lítið meira
að segja á þessu stigi málsins.“
Í frétt Morgunblaðsins 17.
febrúar kemur fram að Ekran hafi
flutt inn 600 kg af nautakjöti frá
Dan mörku sem sett hafi verið í sölu
í verslunum Nettó. Bæði MAST og
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafi
tekið sýni af þeirri vöru.
Tollgæslustjóri efast um rétt LK
Höskuldur leitaði til embættis
Toll stjóra og óskaði vikulegs að
gengis, eða sem næst rauntíma,
að upplýsingum um innflutning á
nautakjöti er varðaði 28 tiltekna
tollflokka.
Tollgæslustjóri svaraði fyrir
spurninni 17. febrúar síðastliðinn.
Þar er dreginn í efa réttur fyrir
spyrjanda til að fá umbeðin gögn
og þar er það ekki talin skylda
stjórnvalda að veita almenningi
aðgang að þeim gögnum. Þar segir
m.a.:
„Stjórnvöldum er hins vegar
hvorki skylt að útbúa ný skjöl né
taka saman tölulegar upplýsingar
úr skjölum sínum á grundvelli
ákvæðisins, sbr. 3. málsl. 1. mgr.
5. gr. Í athugasemdum við ákvæðið
í frumvarpi til upplýsingalaga er
tekið fram að með orðalaginu
„fyrirliggjandi gögn“ beri m.a. að
skilja sem svo að réttur til aðgangs
að gögnum nái aðeins til þeirra
gagna sem til eru og fyrir liggja
hjá stjórnvöldum á þeim tímapunkti
þegar beiðni um aðgang er sett fram
og í þeirri mynd sem þau eru á þeim
tíma.“
Umbeðin gögn ekki sögð
fyrirliggjandi hjá embættinu
„Embættið hefur yfirfarið ofan
greinda beiðni og leiddi skoðun
í ljós að umbeðin gögn eru ekki
fyrirliggjandi hjá embættinu. Um
er að ræða gögn sem óskað er eftir
að veitt yrðu vikulega, sem næst
rauntíma innflutnings á tilgreindum
vörum. Með vísan til áðurgreinds
ákvæðis upplýsingalaga, þá leggja
lögin ekki þá skyldu á stjórnvald
að útbúa ný gögn, en ljóst er að
embættið þyrfti að gera það ef
veita ætti aðgang að umbeðnum
upplýsingum.“
Tollgæslustjóri hafnar beiðni LK
um aðgang að upplýsingum
Embætti Tollstjóra tekur síðan
af öll tvímæli og neitar fulltrúa
Land ssambands kúabænda um að
fá upplýsingar um innflutning á
ófrosnu kjöti. Þar segir:
„Með vísan til þessa þá hafnar
Tollgæslustjóri beiðni um aðgang
að upplýsingum um innflutning
á ófrosnu kjöti. Þá skal geta þess
að Hagstofa hefur að geyma allar
tölfræðilegar upplýsingar um
innflutning og hefur það hlutverk að
miðla tölfræðilegum upplýsingum
til almennings, fyrirtækja, stofnana
og stjórnvalda sbr. 2. mgr. 1. gr. laga
nr. 163/2007 um Hagstofu Íslands
og opinbera skýrslugerð.“
Athyglisvert er að daginn
eftir neitun tollstjóraembættisins,
barst LK svar frá atvinnuvega og
nýsköpunarráðuneytinu. Þar er
vísað í sömu tölur frá tollinum og
LK hafði óskað eftir og tollurinn
sagðist ekki hafa undir höndum.
Þar kemur fram að flutt hafi verið
inn 680 kg af ófrystum hrygg
sneiðum, nautalundum og nauta
hryggvöðvum. /HKr.
Umhverfisstefna fyrir
íslenskan landbúnað er í mótun
8 16
Íslenskir fiskimenn í norska
fiskveiðistjórnunarkerfinu
Rekur glæsihótel ásamt stórfjölskyldunni
á uppeldisslóðum Ara fróða
24–25
Íslenska kokkalandsliðið gerði góða ferð til Stuttgart á Ólympíuleikana í matreiðslu með íslenskt hráefni og náði að vinna gull í tveimur flokkum og þriðja sæti í heildarstigagjöf á leikunum.
– Sjá nánar á blaðsíðu 2.
og með gullverðlaun í tveimur flokkum
Mynd / Kokkalandsliðið – Snorri Victor Gylfason