Fréttablaðið - 02.06.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 4 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 2 . J Ú N Í 2 0 2 0
Njóttu sumarsins á Volkswagen California
Nýja T6.1 línan er mætt
Atvinnubílar
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · hekla.is/volkswagensalur
n Mjög sammála 32%
n Frekar sammála 29%
n Hvorki né 22%
n Frekar ósammála 8%
n Mjög ósammála 9%
DÓMSMÁL Tryggingastofnun ríkis-
ins lét hjá líða að efna dómsátt sem
gerð var við tvo einstaklinga í lok
apríl, þar til forstjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins var boðaður til
fyrirtöku um fjárnám hjá stofnun-
inni á miðvikudaginn í síðustu
viku.
Samkvæmt sáttinni bar TR að
greiða tveimur öryrkjum samtals
rúma fimm og hálfa milljón króna.
Dómsáttin á sér um það bil tíu ára
aðdraganda eða frá því stofnunin
breytti túlkun sinni á ákvæðum
um búsetuskrerðingar í lögum um
almannatryggingar árið 2009.
Þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um
almannatryggingar hafi úrskurðað
árið 2011 að túlkun stofnunarinnar
stæðist ekki, lét stofnunin sér ekki
segjast og hélt sig við túlkun sína,
sem leiddi óhjákvæmilega til skerð-
ingar bóta hjá fjölda örorkulífeyris-
þega.
Velferðarráðuneytið tók á þeim
tíma afstöðu með TR og höfðuðu
tveir einstaklingar dómsmál á
hendur stofnuninni til að fá skorið
úr um málið með aðfararhæfum
dómi.
Dómsátt var gerð í málinu í
lok apríl, einkum með vísan til
álits Umboðsmanns Alþingis um
búsetuskerðingarnar sem birt var
vorið 2018 og nýrri afstöðu ráðu-
neytisins í kjölfar þess.
Tryggingastofnun efndi hins
vegar ekki sáttina innan greiðslu-
frests og því lögðu öryrkjarnir fram
aðfararbeiðni hjá sýslumanni.
Greiðsla barst loks síðastliðinn
föstudag eftir að sýslumaðurinn á
höfuðborgarsvæðinu boðaði for-
stjóra Tryggingastofnunar, Sigríði
Lilly Baldursdóttur, til fyrirtöku um
fjárnám.
– aá / sjá síðu 4.
Fjárnám vofði
yfir TR að
kröfu öryrkja
Sýslumaður boðaði forstjóra Tryggingastofnunar
ríkisins til fyrirtöku um fjárnám hjá stofnuninni
í síðustu viku. Stofnunin efndi ekki dómsátt í
máli um búsetuskerðingar innan greiðslufrests og
leituðu gagnaðilar sáttarinnar til sýslumanns með
aðfararbeiðni. Greiðsla barst loksins á föstudag.
UMHVERFISMÁl Stjórnvöld á Íslandi
ættu að taka loftslagsbreytingum
jafn alvarlega og áskorunum vegna
COVID-19 að mati 61 prósents
landsmanna, samkvæmt nýrri
könnun Gallup fyrir Landvernd.
„ Niðu r s t ö ðu r n a r s ý n a að
Íslendingar sk ilja alvör una á
bak við hamfarahlýnun,“ segir
Auður Önnu Magnúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Landverndar. Ríkið
sé of hallt undir hagsmunaöf l.
Úr svörunum má lesa að þeir
sem eru yngri, betur menntaðir,
tekjulægri og búsettir á höfuð-
borgarsvæðinu eða nærri því, telja
helst að taka eigi áskorunum vegna
loftslagsvandans alvarlega.
– gar / sjá síðu 6
Ríkið taki breytt loftslag
af alvöru eins og COVID
Gæsapar spókaði sig í Elliðaárdal í gær undir Árbæjarstíf lu þar sem glænýir ungar þess reyndu sig við fyrstu
sporin á bökkum Elliðaánna, vegfarendum í útivistarparadísinni til ánægju og yndisauka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sigríður Lilly
Balursdóttir.
forstjóri TR
Ríkisstjórn
Íslands ætti að
taka áskorunum
vegna loftslags-
breytinga jafnalvar-
lega og áskorunum
vegna COVID-19.