Fréttablaðið - 02.06.2020, Side 2
Nú þegar skóinn
kreppir í hagkerf-
inu er enn mikilvægara að
tryggja að gjöld hækki ekki
á fólk og fyrirtæki.
Eyþór Arnalds,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
í Reykjavík
Veður
Víða hæg suðvestlæg átt og dálitlar
skúrir í kvöld.Gengur í suðvestan
5-13 m/s eftir hádegi á morgun,
hvassast norðvestanlands. Hiti 7
til 16 stig, Hlýjast á Austurlandi.
SJÁ SÍÐU 18
l Hekkklippur l Keðjusagir l Sláttuorf
l Grasklippur l Greinaklippur l Blásarar
RAFHLÖÐUGARÐVERKFÆRI
Nota sömu rafhlöður og önnur Makita 18 V rafhlöðuverk færi.
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnesi 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
3%
Góður dagur á Geirsnefi
Hundaeigendur eiga athvarf á uppfyllingunni sem nefnd er Geirsnef og er við ósa Elliðaánna. Jafnan er þar mikið fjör er kátir hundar hittast og
bregða á leik. Eigendur þeirra eru yfirleitt öllu rólegri og spjalla saman um heima og geima. Í gær var þar meðal annarra rannsóknaprófessorinn
Guðmundur Oddur Magnússon, sem jafnan er kallaður Goddur, á tali við mann sem kvað óþarft að nafns hans yrði getið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓLK „Ég hafði undirbúið bónorðið í
nokkra mánuði, en svo skall COVID
á og allt fór í klessu,“ segir Ástral-
inn Gareth Robinson sem ætlaði
að biðja kærustu sinnar, Anneke
Meehl, í fyrirhuguðu ferðalagi
þeirra til Íslands.
„Við gerðum okkur smám saman
grein fyrir því að það myndi ekki
verða af ferðinni,“ segir Gareth
sem þrátt fyrir vonbrigðin lét ekki
deigan síga. Hann sendi inn fyrir-
spurn til íslenska samfélagsins á
vefsíðunni Reddit þar sem hann bað
um aðstoð Íslendinga.
„Fyrst við komumst ekki til
Íslands langaði mig að fá mynd frá
Íslandi sem hefði persónulega skír-
skotun fyrir okkur,“ segir Gareth
sem spurði hvort einhver hefði tök
á að taka mynd úr íslenskri náttúru
sem hann mætti nota þegar hann
bæði Anneke að giftast sér.
Svörin létu ekki á sér standa.
Innan skamms hafði Gareth fengið
mörg skilaboð. „Það kom mér mikið
á óvart hversu margir buðust til að
hjálpa,“ segir hann. „Einn þeirra
var í f lugnámi og bauðst til að taka
myndir af Vatnajökulsþjóðgarði
þegar aðstæður leyfðu, en ég þurfti
því miður að afþakka vegna tíma-
rammans.“
Einn bauðst til að taka myndir
skammt frá Vík og þáði Gareth
það. Skömmu síðar fékk hann
senda mynd með glæsilegu útsýni
yfir íslenska náttúru ásamt skilti
með áletruninni „Viltu giftast mér,
Anneke?“
Gareth fór svo með Anneke á
uppáhaldspizzastaðinn þeirra í
Ástralíu og þóttist leita að upp-
lýsingum um opnunartíma í sím-
anum sínum. Hann rétti svo Anneke
símann sem varð hissa þegar hún sá
bónorðið. „Það tók hana smá tíma
að fatta þetta en hún sagði já,“ segir
Gareth sigri hrósandi.
„Ég fór upp á Höttu yfir Heiðar-
vatni til að taka myndina sem er
tæplega tveggja tíma ferð fótgang-
andi,“ segir góðhjartaði Víkverjinn
sem kallar sig Mána. Hann hefur
búið á Íslandi í sjö ár og hefur áður
rétt Íslandsvinum hjálparhönd.
„Það var líka einhver frá Kan-
ada sem var að leita að ritvél með
íslenskum stöfum (þ, ð, æ) og var ég
með eina sem ég sendi þeim,“ segir
Máni og útilokar ekki að hjálpa
f leiri fjarlægum biðlum með bón-
orð í framtíðinni.
Anneke og Gareth stefna að því
að heimsækja Ísland að ári.
arnartomas@frettabladid.is
Ástrali á biðilsbuxum
fékk hjálp frá Íslandi
COVID-19 hindraði Gareth Robinson í að biðja Anneke Meehl í Íslandsferð.
Áætlanir Ástrala um
bónorð á Íslandi runnu
út í sandinn er flug-
samgöngum var aflýst
vegna COVID-19. Hann
leitaði til íslenska sam-
félagsins á vefsíðunni
Reddit. Það var heilla-
skref og bónorðið varð
að veruleika.
REYK JAVÍK Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisf lokksins hafa óskað eftir
umræðu í borgarstjórn um erfiða
stöðu Sorpu vegna gas- og jarðgerð-
arstöðvarinnar í Álfsnesi. Sveitar-
félögin á höfuðborgarsvæðinu sam-
þykktu tæplega milljarðs króna lán
til fyrirtækisins til að klára stöðina.
Reykjavík á um 56 prósenta hlut í
Sorpu. Helgi Þór Ingason tók við
sem framkvæmdastjóri fyrr á þessu
ári í kjölfar skýrslu innri endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar, og
hefur hann unnið að aðgerðaráætl-
un sem átti að líta dagsins ljós fyrir
lok maí en hefur sú vinna dregist.
„Klúðrið í kringum gas- og jarð-
gerðarstöð SORPU dregur dilk á
eftir sér. Milljarða framúrkeyrsla
mun að óbreyttu lenda lóðbeint á
heimilum og fyrirtækjum. Í vetur
ákvað Reykjavíkurborg að fara í
ábyrgð fyrir neyðarlánum til að
f leyta fyrirtækinu fram að sumr-
inu,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti
Sjálfstæðisf lokksins í Reykjavík.
„Nú þegar skóinn kreppir í hag-
kerfinu er enn mikilvægara að
tryggja að gjöld hækki ekki á fólk
og fyrirtæki. Þess vegna viljum við
svör við hver heildarkostnaðurinn
verður, hvort hækka þurfi gjald-
skrár og hvernig borgarstjóri skýri
þessi mistök.“ – ab
Óska eftir að
málefni Sorpu
verði rædd
COVID-19 Ferðamálaráðherra Spán-
ar, Maria Reyes Maroto, vakti um
helgina væntingar um að ferðamenn
frá Norðurlöndunum og Þýska-
landi gætu heimsótt Kanarí eyjar og
Baleareyjarnar jafnvel um miðjan
júni, áður en ferðafólki verður
almennt hleypt að landinu frá 1. júlí.
Þetta kemur fram í breskum og
spænskum fjölmiðlum sem segja
að Bretar verði ekki meðal þeirra
sem fái að heimsækja Spán á næst-
unni vegna þess að þeim hafi ekki
tekist nógu vel að hemja útbreiðslu
COVID-19.
– gar
Kanarí gæti
opnað á Ísland
Strandlíf á Tenerife.
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð