Fréttablaðið - 02.06.2020, Blaðsíða 10
Núverandi rekstrar
fyrirkomulag
samkvæmt þjónustusamn
ingunum er ekki sjálfbært
fyrirkomulag á rekstri.
Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur
hjá Sambandi sveitarfélaga
Margir ykkar eru
aumir. Þið verðið að
handtaka fólk, þið verðið að
elta fólk uppi og setja það í
tíu ára fangelsi.
Donald Trump,
forseti Banda-
ríkjanna
Miðvikudaginn 10. júní 2020 kl. 16.30
Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
6. Önnur mál
Ársfundur SL lífeyrissjóðs
2020
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
DAGSKRÁ
Reykjavík 20.05.2020
Stjórn SL lífeyrissjóðs
HJÚKRUNARHEIMILI Í fundargerð
bæjarráðs Vestmannaeyja síðastlið-
inn mánudag kom fram að ákveðið
hefði verið að Vestmannaeyjabær
myndi segja upp rekstrarsamningi
á milli Sjúkratrygginga Íslands og
Vestmannaeyjabæjar um rekstur
öldrunar- og hjúkrunarheimilisins
Hraunbúða. Núverandi samningur
fellur úr gildi í nóvember og er
endurnýjunarákvæði til eins árs
sem rennur út um næstu helgi.
Sú ákvörðun var tekin nokkrum
dögum eftir að Fréttablaðið greindi
frá ágreiningi milli Akureyrarbæjar
og ríkisins um rekstur nýs hjúkr-
unarheimilis þar sem ríkið vill að
Akureyrarbær ábyrgist rekstur
heimilisins ef það verður byggt.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru fjölmörg sveitarfélög
að íhuga stöðu sína vegna óánægju
með núverandi fyrirkomulag og
gætu þau stigið sama skref og Vest-
mannaeyjar á næstu vikum eða
mánuðum. Eitt þeirra er Horna-
fjörður en þetta staðfesti Matt-
hildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri
Hornafjarðar, í samtali við Frétta-
blaðið. Að hennar sögn kemur í ljós
í næstu viku hvort framlengja eigi
þjónustusamninginn við Sjúkra-
tryggingar Íslands og hallaðist hún
að því að bæjarfélagið myndi ekki
nýta sér ákvæðið. Reksturinn hefði
verið þungur á síðasta ári eða nær
50 m.kr. taprekstur og stefnir allt í
annað eins tap á þessu ári. Aðspurð
sagði Matthildur að hún hefði heyrt
af óánægju hjá öðrum sveitar-
félögum sem reka slík heimili. Það
gætir einnig ósættis á Ísafirði með
núverandi rekstrarfyrirkomulag
og bæjarfélagið vill losna undan
samningnum.
Tryggvi Þórhallsson, lögfræð-
ingur hjá Sambandi sveitarfélaga,
kannaðist við óánægjuraddirnar
þegar Fréttablaðið ræddi við hann.
„Við höfum heyrt af útbreiddri
óánægju hjá sveitarfélögunum
með þetta rekstrarfyrirkomulag
sem ríkið býður upp á. Núverandi
rekstrarfyrirkomulag samkvæmt
þjónustusamningnum er ekki sjálf-
bært fyrirkomulag á rekstri,“ sagði
Tryggvi og hélt áfram:
„Um árabil hefur verið sterk
aðhaldskrafa á öldrunarþjónustuna
í landinu. Ríkið ber formlega ábyrgð
á öldrunarþjónustu í landinu en
ábyrgðinni er skipt og er því að
mörgu leyti hjá sveitarfélögunum
sem reka öldrunarheimilin.“
Tryggvi segir að deilan sé ekki ný
af nálinni og tók aðspurður undir
það að komið væri að úrslitastund
um hver skyldi axla ábyrgðina til
frambúðar.
„Það er hægt að taka undir að það
sé komið að ögurstundu í þessum
samskiptum, ákveðnu uppgjöri á
því hver skal axla ábyrgðina og taka
þetta til sín. Efnahagsástandið gerir
það að verkum að það mun reyna á
saumana í allri opinberri þjónustu.“
Tryggvi segir hætt við að slíkt komi
niður á sveitarfélögunum. „Hætta
á því að þetta geti orðið endur-
tekning frá niðurskurðinum eftir
bankahrunið fyrir rúmum tíu árum
þegar reynt var að velta verkefnum
á sveitarfélagið. “
Fréttablaðið sendi inn fyrirspurn
til heilbrigðisráðuneytisins til að
kalla eftir viðbrögðum og vísaði
ráðuneytið í yfirlýsingu frá heil-
brigðisráðherra.
„Það er vissulega áhyggjuefni ef
sveitarfélög telja sér ekki fært að
sjá um rekstur hjúkrunarheimila
fyrir fólk í heimabyggð og slík staða
vekur upp margvíslegar spurningar.
Þær spurningar snúast að hluta til
um rekstrargrundvöll heimilanna,
en einnig og ekki síður um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga og
um ábyrgð sveitarfélaga á þjónustu
við íbúa í heimabyggð. Hjúkrunar-
heimili eru ekki sjúkrahús, þau
eru heimili fyrir veikt fólk, oftast
mjög aldrað. Sveitarfélög bera sam-
kvæmt lögum ábyrgð á búsetu íbúa
sinna, þar sem segir t.d. í lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga (39. gr.)
að félagsmálanefnd eða öldrunar-
málaráð skuli tryggja framboð á
hentugu húsnæði fyrir aldraða og
jafnframt skipuleggja félagslega
þjónustu. Ábyrgð ríkisins á heil-
brigðisþjónustu er alveg skýr. Skilin
þarna á milli eru hins vegar óljós og
það er stórt viðfangsefni sem þarf
að finna á góða lausn til framtíðar.
Um þetta hef ég átt viðræður við
Samband íslenskra sveitarfélaga og
þær viðræður munu halda áfram og
vonandi leiða okkur að niðurstöðu.
Í síðustu samningum rekstrar-
aðila hjúkrunarheimila og Sjúkra-
trygginga Íslands sem undirritaður
var um áramótin er bókun um að
ráðist verði í kostnaðargreiningu
á rekstri heimilanna. Sú greining
mun án efa leiða margt í ljós sem
getur nýst í viðræðum um rekstur-
inn til framtíðar, hvað er vel gert og
hvað má betur fara.“
kristinnpall@frettabladid.is
Pattstaða ríkis og sveitarfélaga
Nokkur sveitarfélög íhuga að segja upp samningi við Sjúkratryggingar Íslands um rekstur hjúkrunar
heimila vegna mikils rekstrarkostnaðar. Komið sé að úrslitastund um hver eigi að axla ábyrgðina.
Ríkið ber ábyrgð á öldunarþjónustu í landinu en ábyrgðinni er skipt milli þess og sveitarfélaga. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Svíþjóðarferð gæti orðið dýr.
BANDARÍKIN Donald Trump, for seti
Banda ríkjanna vill 10 ára fangelsi
yfir þeim taka þátt í mót mælunum
sem ríða nú yfir landið vegna dauða
Geor ge Floyd sem kafnaði í höndum
lög reglu fyrir viku.
Þetta kemur fram í frétt Skynews
en um mæli Trump féllu á síma fundi
sem for setinn átti með ríkis stjórum
og lög reglu yfir völdum í Banda-
ríkjunum. Sam kvæmt heimildum
CBS news frétta stöðvarinnar sagði
Trump ríkis stjórum landsins að
kalla inn þjóð varnar liðið til þess
að kæfa niður mót mælin.
„Þeir [mót mælendurnir] munu
vaða yfir ykkur og þið eigið eftir að
líta út eins aular,“ sagði Trump við
ríkis stjórana.
„Margir ykkar eru aumir. Þið
verðið að hand taka fólk, þið verðið
að elta fólk uppi og setja það í tíu
ára fangelsi og þið munið aldrei
sjá svona hluti aftur,“ sagði Trump
á síma fundinum en fréttastöðin
hefur hljóð upp töku af fundinum í
sínum fórum.
Dóms má la ráð her ra Ba nd a-
ríkjanna, Bill Barr, var einnig á
síma fundinum og lét hann ríkis-
stjórana vita að sér stakur starfs-
hópur muni eltast við þá sem hvetja
til ó eirða.
Mót mæli héldu á fram í gær og er
það sjötti dagurinn í röð. Út göngu-
bann var sett á í nærri 40 borgum
Banda ríkjanna en fjöl margir virtu
það að vettugi.
Meir ihlut i mót mæla hef u r
farið fram með frið sömum hætti
en þó sló í brýnu milli ó eirða-
lög reglu og mót mælenda í New
York, Chi cago, Fíladelfíu og Los
Angeles, þar sem tára gasi var beitt.
Dæmi eru um að kveikt hafi verið
í lög reglu bílum og fólk farið ráns-
hendi um verslanir. -mhj
Bandaríkjaforseti vill
fangelsa mótmælendur
COVID-19 Móðir hins níu ára gamla
Pedros er ó sátt við flug fé lagið I beria
Express eftir að sonur hennar var
neyddur til að sitja við hlið far þega
með kóróna veiruna í f lugi á leið til
Kanarí eyja.
Fjöl skyldan sat ekki saman og sat
Pedro með manni sem hafði farið í
skimun nokkru fyrr. Skömmu fyrir
f lug tak fékk maðurinn að vita að
hann væri sýktur. Pedro og móðir
hans eru nú kominn í fjórtán daga
sótt kví ásamt öðrum úr vélinni. –
mhj
Sat hjá sýktum
Ferðalag Pedros byrjar í sóttkví.
Svíþjóðarfarar
borgi sóttkví
DANMÖRK Danir sem heimsóttu
Svíþjóð um hvítasunnuhelgina
gætu sjálfir þurft að greiða fyrir
fjórtán daga sóttkví við heimkom-
una, nema þeir hafi verið í Svíþjóð
til að vinna. Þetta segir Danmarks
Radio.
„Hafi starfsmaður sjálfur valið
að fara í frítíma sínum, myndi það
venjulega þýða að hann verði sjálfur
að borga fyrir þessa fjórtán daga,“
er haft eftir Sanne Stadil, aðstoðar-
forstjóra Samtaka iðnaðarins í Dan-
mörku. Mögulega mætti þó leysa
málið með því að þeir sem geti vinni
heima í sóttkvínni.
Danska utanríkisráðuneytið
ræður Dönum frá ferðalögum sem
ekki teljast nauðsynleg nema leiðin
liggi til Íslands, Noregs eða Þýska-
lands eftir 15. júní. – gar
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð