Fréttablaðið - 02.06.2020, Síða 20
Með því að læsa
innra afturhjólinu
meðan framhjólin spóla,
getur framendinn dregið
sig til.
Þrýstiloftsstútar
með kaldgasi eiga
að geta aukið upptak
bílsins og jafnvel bætt
brautartíma hans, að
sögn Elons Musk.
Mercedes-Benz
EQV er annar
bíllinn í EQ-línu fram-
leiðandans en fyrir er
EQC sem frumsýndur
var á síðasta ári.
Í nýlegu myndbandi af nýjum Ford
Bronco í dulargervi, sést jeppinn
reyna við drulluslóða í skóglendi.
Í einu atriðinu er hann að taka
þrönga beygju í kringum tré og
þar tóku glöggir jeppaáhugamenn
eftir því að bíllinn virðist bjóða
upp á það sem kallað er framspól,
eða Front dig á ensku. Það þýðir að
innra afturhjólið læsir sér í smá-
stund, á meðan framhjólin spóla
til að framendinn dragist til. Þessi
búnaður er reyndar í boði í Toyota
Land Cruiser 200 þegar hann er í
skriðgír. Það sem gerir þetta samt
spennandi fyrir Ford er að þetta er
búnaður sem aðalsamkeppnisaðili
þeirra, Jeep, hefur ekki.
Ford Bronco með
bremsulæsingu
Eftir nokkra töf vegna COVID-
19 er nýr Land Rover Defender
kominn til landsins. Fréttablaðið
hafði bílinn til reynsluaksturs um
hvítasunnuhelgina og mun grein
um bílinn birtast í næsta blaði.
Vegna lækkaðs gengis krónunnar
hefur verð bílsins hækkað nokkuð
síðan við skrifuðum um hann
síðast. Grunnverð 110-útgáfunnar
er 12.790.000 kr. með tveggja
lítra 240 hestafla dísilvélinni.
„Styttri 90 útgáfan verður ekki í
boði strax en hennar er að vænta
með haustinu,“ segir Bjarni Þ.
Sigurðsson framkvæmdastjóri
hjá Land Rover á Íslandi. „Allar
gerðir 110-bílsins eru í boði núna,
en við munum þó ekki geta sýnt
X-gerðina fyrr en í lok sumars,“
sagði Bjarni enn fremur. Eflaust
eru margir sem bíða spenntir eftir
að prófa þennan nýja Defender
sem óhætt er að segja að sé mikið
breyttur frá fyrri gerð.
Nýr Defender kominn til landsins
Nýr Mercedes-Benz EQV raf bíll
er kominn í sölu hjá Bílaum-
boðinu Öskju, en hann verður
frumsýndur síðar í sumar. Nú
þegar hefur verið mikil eftir-
spurn eftir EQV, sem er stór
lúxusbíll og rúmar allt að 8
farþega, en EQV er rafmögnuð
útgáfa af V-Class.
EQV er með 90 kWst rafhlöðu
undir gólfinu og rafmótor sem skil-
ar bílnum 204 hestöflum. Drægnin
er um 418 kílómetrar samkvæmt
af WLTP-staðli en hámarkstog
bílsins er 362 Newtonmetrar.
Hægt verður að hlaða bílinn upp
í allt að 80% rafhlöðu á innan við
45 mínútum. EQV er tæknivæddur
í innanrýminu og búinn MBUX
margmiðlunarkerfi og er með
stóru, stafrænu mælaborði. Þá er
hann einnig búinn allra nýjustu
aksturs- og öryggiskerfum frá
Mercedes-Benz. Hægt er að breyta
-sætauppstillingum að vild, en
bíllinn er bæði ætlaður til einka-
nota og fyrirtækjareksturs. EQV
er annar bíllinn í EQ-fólksbílalínu
Mercedes-Benz en sportjeppinn
EQC var frumsýndur á síðasta ári
og hefur fengið mjög góðar við-
tökur. eVito Tourer bætist svo við
EQ-línuna í nóvember á þessu ári.
eVito Tourer er einnig 100% raf bíll
og hefur sæti fyrir 7-8 farþega.
Sala hafin á Mercedes-Benz EQV
Mercedes-Benz EQV er rafmögnuð útgáfa V-Class og er mjög vel búinn bíll fyrir allt að átta farþega. Drægni hans verður allt að 418 kílómetrar.
Rafhlaða EQV er 90 kWst og rafmótorinn skilar alls 204 hestöflum.
Frá reynslu-
akstri Land
Rover Defender
en hann var
prófaður við
fjölbreyttar
aðstæður um
helgina. MYND/
TRYGGVI ÞORMÓÐS-
SON
Bronco tekur beygju með bremsu-
læsingunni á, í myndbandi Ford.
Þótt stundum sé ekki að marka
allt sem Elon Musk segir, vöktu
orð hans í þætti Jay Leno athygli
á dögunum, þegar grínistinn
góðkunni reynsluók Cybertruck
pallbílnum. Þar talaði Elon Musk
um SpaceX-pakkann sem í boði
verður á Roadster-sportbílnum og
inniheldur meðal annars þrýsti-
loftsstúta sem eiga að geta aukið
upptak bílsins og jafnvel bætt
brautartíma hans. Kallaði hann
þá kaldgasstúta, sem verða stað-
settir bak við númeraplötuna og
jafnvel á hliðum hans líka. Loks
sagði hann að vegna áherslu Tesla
á Cybertruck-pallbílinn yrði
framleiðslu á Roadster seinkað til
2022. Áður hefur Elon sagt að Tesla
Roadster sé aðeins 1,9 sekúndur
í hundraðið og með 1000 km
drægni svo að forvitnilegt verður
að sjá hvort það muni standast.
Tesla Roadster
knúinn þrýstilofti?
Roadster með SpaceX-pakkanum.
4 BÍLAR 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R