Fréttablaðið - 02.06.2020, Qupperneq 22
KOSTIR OG GALLAR
Ford Ranger Raptor
Grunnverð: 11.190.000 kr
Vélarstærð: 1.996 rsm
Hestöfl: 213
Tog: 500 Newtonmetrar
Upptak 0-100 km: 10,5 sek.
Hámarkshraði: 170 km.
CO2: 281 g/km
L/B/H: 5.363/2.180/1.873 mm
Hjólhaf: 3.220 mm
Eyðsla bl. ak: 10,8 lítrar
n Afl
n Fjöðrun
n Sportsæti
n Hefðbundin innrétting
n Mun dýrari en WildTrak
KOSTIR GALLAR
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
Það var ekki
hægt annað en
að finna veg
með góðum
árfarvegi til
að prófa nýjan
Ford Ranger
Raptor. MYNDIR/
TRYGGVI ÞORMÓÐS-
SON
Öflug 2 l dísilvélin er þýðgeng, eyðslugrönn, með tíu þrepa sjálfskiptingu.
Hver man ekki eftir lokaatrið
inu í Back to the Future, þar sem
Marty vaknar og hefur eignast
draumabílinn, Toyota SR5
Extra Cab pallbíl. Það er dáldið
þannig sem manni líður eftir að
hafa prófað Ford Ranger Rap
tor, manni finnst maður hafa
vaknað upp í annarri framtíð
og maður spyr sig hvort þetta sé
virkilega pallbíll, svo skemmti
legur er hann.
Fjöðrunin er það sem aðgreinir
hann frá öðrum svipuðum bílum
og gerir hann að lúxusjeppa um
leið og torfærutrölli. Meira er lagt
í undirvagn og hann kemur á Fox
Pro dempurum, sem eru stillan-
legir. Auk þess er hann með 150
mm meiri sporvídd en WildTrak
og er með 30% meiri fjöðrunar-
getu. Búið er að henda burtu blað-
fjöðrunum að aftan, en í staðinn
er komin fjölliða gormafjöðrun.
Bíllinn er líka allur stærri en hefð-
bundinn Ford Ranger og einnig
hærri, en undirvagninn hefur
hækkað um 51 mm. Undir honum
eru breið 33 tommu BFGoodrich
torfærudekk með stífari hliðum
á 17 tommu felgum. Annað sem
aðgreinir hann frá öðrum pall-
bílum er, að framstuðarinn er
festur við grindina og er sérstök
hlífðarpanna undir vélinni, auk
dráttarlykkja.
Sama vél og í WildTrak
Það má næstum bjóða Ford
Ranger Raptor hvað sem er, en
meðal annars var farið með
bílinn á illfæran og grýttan slóða.
Um leið er hann með fæturna
á jörðinni og er ekki spólandi í
öllum beygjum á malbiki, eins
og aðrir jafn öflugir pallbílar
myndu gera. Það er líka furðu-
létt að taka á stýri í jafn stórum
bíl og Ranger Raptor er. Bíllinn
kemur með sex akstursstillingum
sem hafa áhrif á fjöðrun, stýri og
skiptingar. Tveggja lítra vélin í
Raptor er sú sama og í WildTrak og
skilar hún 213 hestöflum sem gerir
hann að öflugasta pallbílnum í
þessum flokki. Hún er einstaklega
skemmtileg með góðu togi, þýð-
geng en jafnframt eyðslugrönn, en
Ford Ranger Raptor - enginn venjulegur pallbíll
Með
alvöru
fjöðrun
Raptor er ekki mikið breyttur fyrir utan leðurinnréttingu og sportsæti.
6 BÍLAR 2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U R