Fréttablaðið - 02.06.2020, Page 48
EINN VIÐSKIPTA-
VINUR SAGÐI AÐ
ÞETTA VÆRI DELLUBÓKABÚÐ,
BÓKABÚÐ FYRIR FÓLK SEM
HEFÐI DELLU FYRIR EINHVERJU.
Sigríður Erla Gunnars-dóttir stendur vaktina í bókabúðinni Sjónarlind á Bergstaðastræti og þang-að hafa margir litið inn í gegnum árin, enda eru
bækurnar sem þar eru til sölu ein-
staklega eigulegar. Búðin hét áður
Bókabúð Steinars, en Steinarr Guð-
jónsson stofnaði hana á sínum tíma
og rak lengi ásamt fjölskyldu sinni.
Sigríður keypti verslunina árið
2011 þegar þáverandi eigendur
buðu hana til sölu. „Ég þekkti búð-
ina og hafði átt þar viðskipti. Ég hef
ánægju af bókum og langaði að vera
í bókabúð,“ segir Sigríður.
Í þessari fallegu verslun er að
finna alls kyns fagtengdar bækur,
um myndlist, ljósmyndun, kvik-
myndir, fatahönnun, arkitektúr,
bíla, f lugvélar, ferðalög, matreiðslu,
smíði og handavinnu, svo eitthvað
sé nefnt. „Einn viðskiptavinur sagði
að þetta væri dellubókabúð, bóka-
búð fyrir fólk sem hefði dellu fyrir
einhverju. Margir hafa á orði að
þetta sé öðruvísi bókabúð,“ segir
Sigríður. „Ég sel ekki skáldsögur, en
undantekning frá því eru íslenskar
skáldsögur á pólsku og alls kyns
barnabækur.“
Spurð hvernig reksturinn gangi
segir hún hreinskilnislega: „Erfið-
lega, þetta gengur ekki upp. Ég veit
ekki hvenær ég hef vit á því að hætta
þessu. Ég er enn að þrjóskast við.“
Gaman að velja bækur
Viðskiptavinir eru fjölbreytilegur
hópur. Fyrir kóvitfaraldurinn
var mikið um að erlendir ferða-
menn litu við í búðinni og svo mun
örugglega verða áfram eftir kóvit.
„Þeir eru ekki að versla mikið, enda
eru hér bækur sem eru þeim mun
aðgengilegri heima fyrir. Þeim
finnst samt gaman að skoða bóka-
búðir og sumir taka myndir af
bókunum. Bandaríkjamenn sem
hingað koma tala um hversu gaman
sé að sjá bækur en þar í landi hefur
bókabúðum fækkað. Það er auð-
velt að panta bækur á netinu og
fá þær sendar heim, en það að sjá
bækurnar sjálfar áður en maður
kaupir hefur reynst mörgum bráð-
skemmtileg upplifun.“
Viðskiptavinir Sigríðar eru flest-
ir í leit að bókum til gjafa. „Það er
ákaflega gaman að vera með fólki
að velja bækur. Fólk kemur og
spyr kannski um eitthvað ákveðið
efni og maður leitast við að svara.
Maður reynir að sameina það sem
kaupandann langar til að gefa við
það sem þiggjandinn hefur áhuga
á,“ segir Sigríður.
Fallið í freistni
Vitaskuld kemur fólk síðan einnig
til að kaupa bækur fyrir sig. „Við-
horfið er samt dálítið á þá leið að
það sé munaður að kaupa bók
handa sjálfum sér,“ segir Sigríður.
„Hér áður fyrr voru bækur gefn-
ar á jólunum og sagt var að fólk
opnaði pakkann og síðan dytti
allt í dúnalogn af því að fólk færi
strax að lesa. Þannig væru jólin á
Íslandi. Um leið er hugsunin sú að
bók sé eitthvað sem maður gefur
öðrum og fær frá öðrum. Að kaupa
bók handa sjálfum sér þykir ekki
sjálfsagt, það er nánast eins og að
hafa látið freistast,“ segir Sigríður
í Sjónarlind.
Upplifun
í öðruvísi
bókabúð
Það er upplifun að
koma í skemmti-
lega bókabúð.
Sjónarlind á Berg-
staðastræti er ein-
mitt bókabúð af
þeirri tegund.
Það er ákaflega gaman að vera með fólki að velja bækur, segir Sigríður. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
B
irt m
eð fyrirvara um
verð- og m
yndabrengl.
GENGIÐ
FRYSTUM
Óbreytt verð: 4.490.000 kr.
Fimm ára
ábyrgð
+ 178 hestöfl, 400 Nm
+ 2ja tonna dráttargeta
+ Fjórhjóladrif með læsingu
+ Ótrúlega rúmgóður
+ Gott aðgengi
+ Fimm ára ábyrgð
ÖRF
Á SÝ
NIN
GAR
EIN
TÖK
Á LA
GER
!
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Bílaríki, Akureyri
Glerárgötu 36
Sími: 461 3636benni.is
2 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING