Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2020, Síða 13

Víkurfréttir - 12.03.2020, Síða 13
13 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 12. mars 2020 // 11. tbl. // 41. árg. 12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR Hvernig var fermingardagurinn þinn? Helga Jakobsdóttir: Pabba fannst ófært að dóttirin mætti í reiðstígvélum í kirkjuna „Ég fermdist 11. apríl 1976 í Keflavíkur- kirkju, prestur var séra Ólafur Oddur Jónsson. Minningin úr athöfninni sjálfri er óljós. Við mættum í kjallara kirkjunnar þar sem við fórum í fermingarkyrtlana og gengum þaðan meðfram kirkjunni og inn um aðalinnganginn. Þetta var allt mjög fullorðins og hátíðlegt. Mér fannst dagurinn í heild frábær og tók virkan þátt í undirbúningi hans með fjölskyld- unni. Við bjuggum á Tjarnargötunni og veislan var haldin heima. Mig minnir að foreldrar mínir hafi keypt veitingar til að hafa í veislunni og að það hafi verið pottréttur eða svokallað strog- anoff, hrísgrjón og hrásalat. Þetta fannst okkur framandi en það létti á undirbúningi og var gott. Síðan hafa örugglega verið kökur, kaffi og gos í glerflöskum. Ekki má gleyma að það var mjög flott að bjóða upp á sígarettur í veislum, þær voru í þar til gerðu boxi sem var á bakka ásamt statífi fyrir eldspýtustokk og að auki var öskubakki í stíl. Þessi bakki hafði heiðurssess á sófaborðinu í stofunni og svo blésu gestir reyknum yfir alla.“ Ekki mikill utanbókarlærdómur Í fermingarfræðslunni hittust krakkanir í Kirkju- lundi sem er gamalt hús við Kirkjuveg 22a sem átti stað í minningum Helgu. „Í þessu húsi bjuggu afi minn og amma en að þeim látnum seldu mamma og systur hennar kirkjunni húsið og það varð safnaðarheimili kirkjunnar. Margt minnti á tímann þegar ég var barn í þessu húsi þó því hafi verið breytt. Við undirbúning fermingarinnar var notuð sérstök bók sem átti örugglega að leiðbeina okkur um kristnidóminn og lífsreglurnar, mér fannst erfitt að lesa hana og man ekki hvað stóð í henni. Við vorum saman þarna bekkjarsystkinin og séra Ólafur Oddur. Ég held að við höfum verið óþekk og yfirmáta málglöð í þessum tímum. Utanbókalærdómur var ekki mikill, ekki eins og hjá systkinum mínum. Ég held ég hafi lært Litlu biblíuna, Trúarjátninguna og Faðir vorið. Ég lærði enga sálma utanbókar. Í minningunni var söngurinn í athöfninni ekki skemmtilegur og ræða prestsins óskiljanleg.“ Fékk bjútíbox og heillaskeyti Helga var ánægð með fermingarveislu sínu og fannst hún frábær. Í veisluna komu margir gestir, ættingjar og vinir foreldra hennar. „Það komu líka vinir mínir og við vorum eitthvað að kíkja til hvers annars, bekkjarfélagarnir, því við vorum öll að fermast á sama degi. Fermingargjafirnar mínar voru hefðbundnar þessa tíma. Ég fékk úr og gullhring frá for- eldrum mínum. Svefnpoka og matreiðslubók frá systkinum mínum. Síðan fékk ég ýmislegt annað en nefni til dæmis skartgripi eins og kross, rúnarstaf, armband og hring eftir Jens. Ég fékk líka bjútíbox og eitthvað af peningum. Send voru heillaskeyti, ég fékk mörg og fannst það skemmtilegt en þau virðast að mestu af- lögð í dag.“ Ég var alsæl með fermingardressið en ekki pabbi Helga segir ótrúlega gaman að minnast ferm- ingartískunnar sem þá var. „Ég fékk að velja það sem mér fannst flottast og keypt var buxnapils, rúllukragabolur, kápa og kúrekastígvél. Ég kom alsæl heim úr Reykjavík, við mamma höfðum farið á milli búða og valið þetta dress. Pabbi minn var ekki eins sáttur og við fórum í annan fataleiðangur og þá var keypt dragt en það er jakki, pils og buxur, blússa í stíl og skór. Pabba fannst ófært að dóttirin mætti í reiðstígvélum í kirkjuna og unglingurinn átti ekki að klæðast óléttukápu. Samkvæmt hefðum og venjum fékk ég sálmabók, hvítan hálsklút til að hafa undir kyrtlinum, hvíta hanska og blúnduklút inn í sálmabókina.“ Erfitt að sofna kvöldið fyrir fermingu „Ég man að ég átti mjög erfitt með að fara að sofa kvöldið fyrir ferminguna því mér fannst ekkert vera tilbúið heima fyrir veisluna en hafði litlar áhyggjur af athöfninni í kirkjunni. Ég fór í hárgreiðslu eldsnemma á fermingar- daginn. Ég hafði safnað hári í þrjú ár til að getað farið í greiðslu fyrir ferminguna. Það var blásið á mér hárið og sett í krullujárn því ég ætlaði að hafa slöngulokka. Ég er með mjög lint og þunnt hár, svo greiðslan lak mjög hratt úr þó notað hafi verið hárlakk af stífustu gerð. Sett var hvítt nellikublóm í hárið sem tíðkaðist líka á þessum árum. En í vikunni eftir ferminguna fór ég og lét klippa hárið stutt og hef eiginlega ekki verið með svona sítt hár síðan.“ Komin í fullorðinna manna tölu eftir fermingu Altarisgangan var þá að sögn Helgu ekki í ferm- ingarathöfninni sjálfri heldur kvöldið eftir. Hún segir að það hafi verið mikið afslappaðri athöfn og fjölskyldan hafi notið þess að koma í kirkjuna og sameinast uppi við altarið. Eftir athöfnina var svo sest við borðstofuborðið í stofunni heima og spjallað. „Ég er yngst systkina minna og nú vorum við öll komin í fullorðinna manna tölu. Aldrei kom annað til greina en að láta ferma sig í kirkjunni og maður minntur á að allir eigi að staðfesta skírnarheitið sitt því að eins og segir í barnabæninni: „Í guðsóttanum gef þú mér að ganga í dag svo líki þér“.“ Þorvarður Guðmundsson: Bara góðar minningar frá þessum degi „Ég fermdist 30. mars árið 1980 og í minningunni var þetta bjartur dagur, frekar kalt og ég man að við fórum fyrst í kjallarann í Keflavíkurkirkju þar sem við vorum klædd í fermingarkyrtlana. Þegar tíminn var kominn gengum við út og fram fyrir kirkju til að ganga inn í sjálft kirkjuskipið Það var skítkalt þegar við komum fram fyrir kirkjuna og biðum þess að fara inn. Fermingardagurinn var góður og ég á bara góðar minningar frá þessum degi.“ Varð að vera með risastóra slaufu Þorvarður segir að hann hafi örugglega farið í klippingu þó hann muni ekk- ert sérstaklega eftir því. „Ég var mjög ákveðinn að vera ekki í jakkafötum heldur fékk ég mér buxur og stakan jakka, ullarvesti, skyrtu og bindi. Ég þurfti þó að vera með risastóra slaufu á meðan ég var í kyrtlinum. Mamma tók ekki annað í mál.“ Veisluborðið svignaði undan kræsingunum „Veislan var kökuveisla og var haldin heima hjá okkur á Kirkjuteignum. Pabbi var á sjó á þessum tíma og kom ekki í land fyrr en daginn fyrir ferminguna og því þurftum við mamma að vera búin að flestu svo að allt gengi upp. Ég man að við fengum lánaða klappstóla úr gamla Kirkjulundi svo það væru fyrir alla gestina. Mamma bakaði helling af kökum og veisluborðið svignaði undan rjómakökum og slíku góðgæti.“ Rútuferðalag eftir fermingu Séra Ólafur Oddur fermdi Þorvard og hann man að þau lásu bókina Líf með Jesú en ekki hafi þurft að læra mikið utan af. „Við þurftum þó að kunna Trúarjátninguna og Faðir vorið. Við lærðum mest um siðfræði minnir mig. Í lok fermingarfræðslunnar fórum við í rútuferð að Skógum undir Eyjafjöllum með Ólafi Oddi og Randy Træen, handavinnukennara í Holtaskóla. Þar var svo reynt að henda manni út í Skógá og urðu flestir holdvotir og kaldir. Að lokum var svo farið í sund á Skógum.“ Keypti húsgögn fyrir peningana „Ég fékk aðallega peninga, 235.000 gamlar krónur, en líka bækur og slíkt. Ég fékk meðal annars fjórar orðabækur sem nýttust mér vel í skólanum fram á fullorðinsár. Ég keypti mér svo hús- gögn í herbergið mitt, skrifborð, rúm og lampa sem enn er til.“ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GRÉTAR ÞÓR SIGURÐSSON Austurgötu 11, Keflavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. apríl kl. 13. Signý Hrönn Sigurhansdóttir Gunnar Þór Grétarsson Sólveig Gísladóttir Bryndís Grétarsdóttir Hafsteinn Guðmundsson Magnea Grétarsdóttir Sigurður R. Magnússon og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma, mágkona og tante GUÐLAUG HALSÖR SIGVARDSDÓTTIR Lalla Vesturgötu 38, Keflavík, andaðist þriðjudaginn 3. mars í faðmi fjölskyldunnar. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 13. mars klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SOS Barnaþorpin. Sigurður Ragnarsson Kristín Linda Ragnarsdóttir Sveinbjörn Gizurarson Guðný Ásta Ragnarsdóttir Guðjón Bragason Davíð Örn Sveinbjörnsson Fjóla Dögg Halldórsdóttir Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson Guðlaug María Sveinbjörnsdóttir Birkir Eyþór Ásgeirsson Sunneva Kristín Guðjónsdóttir Salómon Blær, Elísa Björt og Annika Bára Davíðsbörn Elsa Halsør og fjölskylda Anbjørg Halsør og fjölskylda Elskuleg systir okkar, mágkona, frænka, stjúpmóðir og stjúpamma, GUÐLAUG SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR Vatnsnesvegi 28, Reykjanesbæ, varð bráðkvödd á heimili sínu laugardaginn 22. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Helgi Jensson Kristjánsson Sigurður Kristjánsson og fjölskyldur. 4ra herbergja íbúð til leigu á góðum stað í Reykjanesbæ. Þrjú svefnherbergi, stofa og sólstofa. Þvottahús á hæðinni. Leiga 185.000 á mánuði. Þriggja mánaða trygging óskast í reiðufé. Engin gæludýr. Upplýsingar : bobbyuno1@yahoo.com SMÁAUGLÝSINGAR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.